Síða 1 af 1
vantar plaststikki fyrir heatsink!
Sent: Fim 07. Sep 2006 23:27
af Mazi!
sælir vaktarar ég var að fá mér vatns kælingu en lendi svo í því að mér bráð vantar þetta stikki hérna sem er á myndini til að festa heatsínkið
getur einhver sagt mér hvort ég geti fengið svona plaststikki ?

Sent: Fim 07. Sep 2006 23:49
af Bassi6
Ég á svona þú getur fengið það ef þú sækir
sorry mitt er 478
Sent: Fim 07. Sep 2006 23:52
af Mazi!
Bassi6 skrifaði:Ég á svona þú getur fengið það ef þú sækir
hvar ertu og hvað villtu fyrir ?

Sent: Fim 07. Sep 2006 23:56
af Bassi6
Er í 101 vil fá 0 kr en þetta er fyrir 478
Sent: Fös 08. Sep 2006 12:35
af Mazi!
Bassi6 skrifaði:Er í 101 vil fá 0 kr en þetta er fyrir 478
ahh já reyndar vantar fyrir s939
Sent: Fös 08. Sep 2006 12:39
af ÓmarSmith
ég á svona somewhere

nenni helst ekki að leita.
Annars fékk ég svona gefins nirrí TASK.
spurning um að kanna TASK, START og fleiri búðir.
Sent: Fös 08. Sep 2006 12:58
af beatmaster
Eða tölvuvirkni, þeir eiga oft e-ð auka dót
Svo vantar mig ennþá Medion driver-ana Mazi

Sent: Fös 08. Sep 2006 13:16
af ManiO
Skiptir maður um svona ef maður setur upp nýtt og stærra heatsink? Ef svo er þá get ég látið eitt stykki frá mér, þeas þegar Kísildalur fær Big Typhoon í hús.
Sent: Fös 08. Sep 2006 16:18
af Mazi!
hann guðbjartur í kísildal reddaði þessu fyrir mig

Sent: Fös 08. Sep 2006 23:11
af Skoop
ég smellti big typhoon á mitt asrock dual sata 2 ...
það er ekki beint notendavænt, því það er vonlaust að skrúfa rærnar á festingarnar sem koma uppúr plötunni sem er bakvið móðurborðið
ég þurfti því að nota lengri týpu af ræm(rær) en þær sem fylgdu með big typhooninu
en allavega þarftu ekki að nota Þetta plaststykki, þú notar bara járn H lagaða hlutinn sem fylgir heatsinkunu og smellir því aftan á móðurborðið
mæli eindregið með fingraræm (skrítið orð)
ég á semsé svona plaststykki einhversstaðar sem þú mátt fá
Sent: Fös 08. Sep 2006 23:36
af Mazi!
svona lúkkar þetta hjá mér

Sent: Lau 09. Sep 2006 02:03
af Blackened
Skoop skrifaði:ég smellti big typhoon á mitt asrock dual sata 2 ...
það er ekki beint notendavænt, því það er vonlaust að skrúfa rærnar á festingarnar sem koma uppúr plötunni sem er bakvið móðurborðið
ég þurfti því að nota lengri týpu af ræm(rær) en þær sem fylgdu með big typhooninu
en allavega þarftu ekki að nota Þetta plaststykki, þú notar bara járn H lagaða hlutinn sem fylgir heatsinkunu og smellir því aftan á móðurborðið
mæli eindregið með fingraræm (skrítið orð)
ég á semsé svona plaststykki einhversstaðar sem þú mátt fá
Öhm.. orðið er "ég notaði lengri gerðina af róm"
held allavega að það sé "rór um rær frá róm til ráa" eða eitthvað þannig
Bah.. ég hef ekki hugmynd um það annars í því ástandi sem ég er í núna
og það er líka langt síðan ég var í grunnskóla og lærði þetta
Allavega tala ég alltaf um eina ró og margar rær í vinnuni
tildæmis þegar þú sagðir fingraræm.. þá segi ég "fluguróm" en ekki "fluguræm" í vinnuni
...Annars væri gaman ef að einhver sem að er vel að sér í íslensku gæti komið og staðfest þetta endanlega
Sent: Sun 17. Des 2006 00:18
af beatmaster
Hér eru rær, um rær, frá, róm, til róa