Síða 1 af 1

Viðarkassi

Sent: Lau 05. Okt 2002 04:03
af Dári
Hérna er brill hugmynd sem ég rakst á arstechnica, tölvukassi úr við, er ekki einhver smiður hérna sem gæti riggað svona upp fyrir mann.........Guðjón :wink:

Sent: Lau 05. Okt 2002 04:09
af kemiztry
Magnaður kassi! :D
Hvað ætli þetta ferlíki sé þungt fully loaded? Ætli maður þurfi að lakka þá kassann öðru hverju? :D

Sent: Lau 05. Okt 2002 04:10
af Atlinn
það væri svo sem ekki nett rosalega mikið mál að gera þetta, ef maður hefur réttu verkfærin í það...
Þetta yrði ekkert rosalega þungt ef gert úr réttum við, og nei það þarf ekki að lakka þetta oft ef þetta er rétt lakkað í byrjun þarf ekki að lakka þetta aftur fyrr en eftir svona 20 ár...
btw. þá er ég að verða búinn að læra smíði

Sent: Lau 05. Okt 2002 04:55
af kiddi
Hvað myndirðu taka fyrir að smíða svona kassa? :-) Ef við gefum okkur það að þú búir til prótótýpu og þarafleiðandi ert búinn að reikna allt út og gera ráð fyrir öllu svo þetta sé komið í vana?

Sent: Lau 05. Okt 2002 14:01
af Atlinn
ufff veit ekki en það væri gaman að gera þetta. hehe ég er meira að segja í einum áfanga ú skólanum þar sem er verið að kenna manni að reikna út hvað maður þarf mikið efni o.fl. hehe...
einn svona kassi myndi samt sem vera eitthvað í kringum 20. þús í efniskostnað. 8)

Flottur kassi

Sent: Sun 06. Okt 2002 14:03
af GuðjónR
Þessi kassi er svakalega flottur, ég myndi stilla honum upp inn í stofu ef ég ætti hann.
Til að gera svona kassa þannig að vel sé þá þarf svakalega góðann harðvið, það þarf líka að hafa aðgang að öflugum og góðum vélum.
Handföngin á kassanum eru fræst með öflugum fræsurum og allir kubbarninr í frontinum eru sagaðir með sérstaklega fíntenntum sögum fyrir svona harðvið.
Takið eftir skúffunni á CD-ROM, heldur betur nákvæmni að gera þetta.
Svo þarf maður að vera með nákvæmar teikningar nema að maður nenni að finna upp "hjólið" aftur.
Ég á ekki von á því að framleiðsla á svona kössum myndi nokkur tíman borga sig.
En það gæti verið gaman að henda saman svona kassa one day.
..........................................:ban..........................................

Sent: Mán 07. Okt 2002 12:35
af Atlinn
yrðir reyndar meira en einn dag að gera svona kassa

Sent: Mán 07. Okt 2002 13:01
af Asgeir
Ég sá nu einn íslending með viðarkassa á síðasta skjalfta, reyndar var hann ekki svona flottur en samt úr við.

Sent: Mán 07. Okt 2002 13:38
af Atlinn
jamm sá einhvertiman mynd af honum á huga

Sent: Fim 10. Okt 2002 20:26
af Atlinn
jæja ég er allveg að fara að hann mér viðar kassa sem ég ætla að dunda mér við að smíða og hafa sem server kassa heima...svona tolvukassi sem er bara eins og skraut hehe :8)

Sent: Fim 10. Okt 2002 20:45
af kemiztry
ef þú átt digital myndavél þá væri flott ef þú myndir taka myndir af projectinu og deila með okkur hérna :D

spítudrif?

Sent: Sun 02. Mar 2003 02:22
af coel
af hverju er geisladrifið líka úr við? :/

Re: spítudrif?

Sent: Sun 02. Mar 2003 03:28
af MezzUp
coel skrifaði:af hverju er geisladrifið líka úr við? :/

Auðvitað til þess að passa í heildarlookið..... það væri asnarlegt ef að allt væri geðveikt vel gert og pússað og síðan væri eitthvað hvítt geisladrif sem að styngi í stúf við kassann.

Geisladrifið er auðvitað ekki úr við heldur er bara viðar front á því

Sent: Mán 03. Mar 2003 00:52
af Dári
Coel: Kanski að slappa af með að endurvekja nánast hálfs árs gamla þræði.

Sent: Mán 03. Mar 2003 13:29
af MezzUp
hehe

Sent: Fim 27. Nóv 2003 11:12
af viddi
þá vek ég hann aftur nú!