Síða 1 af 1

Vantar aðstoð heim Yfirklukkun

Sent: Mán 08. Mar 2021 18:46
af Aðstoð
Vantar manneskju til að koma til mín og gera tölvuna hjá mér frábæra með þá í huga einhvern sem kann yfirklukkun og veit nákvæmlega hvað hann er að gera.

Móðurborð Z370-H
Intel I78700
16gb 3600mhz
Evo960 256gb
H55 Hydro kæling
Rtx 2080 skjákort

Er með xmp profile turbo 4.7ghz
Langar í 5 og aðstoð með bios stillingarnar.

Aisuit3, Languard,gamefirst fannst það gera allt verr í leik svo nota það ekki.
Gerði kannski vitlaust.

Reykjavík

Re: Vantar aðstoð heim Yfirklukkun

Sent: Mán 08. Mar 2021 18:47
af J1nX
það væri líklegra betra að þú myndir láta fylgja í póstinum hvernig tölvu og kælingu þú ert með :)

Re: Vantar aðstoð heim Yfirklukkun

Sent: Mán 08. Mar 2021 19:02
af mercury
J1nX skrifaði:það væri líklegra betra að þú myndir láta fylgja í póstinum hvernig tölvu og kælingu þú ert með :)

X2 og mögulega hvar á landinu hann er staddur.

Re: Vantar aðstoð heim Yfirklukkun

Sent: Mán 08. Mar 2021 19:17
af Gurka29
Það er brandari hvað það er auðvelt að yfirklukka í dag miðað við í gamla daga.

Margar leiðir til þess að gera þetta en hækkaðu bara multiplier og keyrðu Linpack eða prime95 til þess að stress prófa. Ef að tölvan verður óstöðug hækkaðu þá Vcore aðeins og prufaðu aftur.
Tók alltaf 24 tíma í prime95 en það er eflaust óþarfi.

Myndi ekki fara mikið yfir 1.35v á Intel og vera með massíva kælingu ef þú ferð það hátt.

Re: Vantar aðstoð heim Yfirklukkun

Sent: Mán 08. Mar 2021 20:04
af jonsig
Ef þetta er nýlegur ryzen AMD, þá DRAM Calculator for Ryzen. Hann basicly gerir þetta fyrir þig á nokkuð öruggan hátt.