Síða 1 af 1

Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Lau 27. Ágú 2016 04:33
af HalistaX
Jæja drengir,

Er einhver kominn með þetta skrímsli?

Hvað finnst ykkur? Hvernig smakkast?

Að mínu mati er þetta klárlega Game of the Year!

Hann er svakalegur!!!! O:)

Re: Deus Ex: Mankind Devided

Sent: Lau 27. Ágú 2016 04:37
af HalistaX
Ég er bara búinn að vera í honum. Er kominn með 26 tíma síðan í fyrradag þegar ég byrjaði að spila :P Ég get ekki hætt.

Hann er svo góður að ég er búinn að vera að vona síðustu 10 in-game tímana að það séu svona 40 tímar eða lengra þangað til hann endar!

Ég dýrka þennan leik!

Re: Deus Ex: Mankind Devided

Sent: Lau 27. Ágú 2016 09:19
af HalistaX
Ooooooooooooog var að klára hann....

Hands down, besti leikur síðari ára. Fer beinustu leið inná top 10 listann minn, sem ég veit ekki enn hvernig ég raða honum.

En þessi leikur er 10/10. Do recommend!

#TriplePost

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Lau 27. Ágú 2016 20:26
af Daz
Betri en næsti DX á undan? Þarf maður að hafa að spilað þá alla/einhvern til að njóta þess nýjasta? (Spyr ég sem elskaði upphaflega leikinn en hef ekki gefið mér tíma í fleiri útgáfur)

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Lau 27. Ágú 2016 22:29
af HalistaX
Daz skrifaði:Betri en næsti DX á undan? Þarf maður að hafa að spilað þá alla/einhvern til að njóta þess nýjasta? (Spyr ég sem elskaði upphaflega leikinn en hef ekki gefið mér tíma í fleiri útgáfur)

Það er náttúrulega best að hafa spilað Human Revolution líka, en í byrjun leiksins er vídjó sem summar up allt það sem þú þarft að vita. :)

Annars, já, MIKLU betri en sá á undan!

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Sun 28. Ágú 2016 00:17
af Minuz1
hef verið að fylgjast með ChristopherOdd https://www.youtube.com/channel/UCdAy0K ... 2_Qp0yNk2g
lýtur mjög vel út, býður upp á fjölbreyttar lausnir á helstu vandamálum.

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Sun 28. Ágú 2016 10:16
af HalistaX
Fór í gegnum leikinn fyrst í Medium bug laust..... Er hinsvegar ansi hræddur um að save game'ið mitt sé brick'að núna í New Game+. Nema auðvitað að framleiðandinn lagi þessi leiðindi... ...þetta ves...

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Sun 28. Ágú 2016 13:06
af Galaxy
Nú verð ég eiginlega að tjekka á honum

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Sun 28. Ágú 2016 15:55
af Revenant
Mjög fínn leikur. Það helsta sem böggaði mig var lip sync-ið í cutscene-unum.

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Sun 28. Ágú 2016 17:53
af HalistaX
Revenant skrifaði:Mjög fínn leikur. Það helsta sem böggaði mig var lip sync-ið í cutscene-unum.

Mjeh, truflaði mig í cut scene'inu fyrir fyrsta mission'ið/tutorial'ið en svo fór ég að venjast því :)

Re: Deus Ex: Mankind Divided

Sent: Þri 30. Ágú 2016 07:59
af HalistaX
Er að reyna að vinna hann á erfiðasta difficulty'inu.... Það er Permadeath.... Og það er erfitt!

Ekki það að leikurinn sjálfur sé erfiður, alls ekki. Það er aðallega heimska mín sem drepur mig alltaf hahahaha :P

Made it to Golem City last time, er að byrja leikinn í örugglega 5 skiptið núna :lol: :lol:

Er líka að reyna að vinna hann undetected og án þess að drepa neinn svo að þetta er enn erfiðara fyrir mig :P