Síða 1 af 1

PS5 hvar er best að kaupa ?

Sent: Mán 03. Jan 2022 20:08
af AJ Beyblade
Hvar er best að kaupa PS5 ? Bíða eftir að elko droppi eða skrá sig á biðlista ? Hvað er þetta annars langt process.. ?

Re: PS5 hvar er best að kaupa ?

Sent: Mán 03. Jan 2022 20:11
af Fennimar002
Mæli ekki með að fara á biðlista hjá Tölvutek allavega, félagi minn beið í meira en ár þar til hann hætti við og sótti um endurgreiðlsu.

Re: PS5 hvar er best að kaupa ?

Sent: Mán 03. Jan 2022 21:48
af TheAdder
AJ Beyblade skrifaði:Hvar er best að kaupa PS5 ? Bíða eftir að elko droppi eða skrá sig á biðlista ? Hvað er þetta annars langt process.. ?

Skráðu þig á biðlistann/póstlistann hjá Elko, vertu svo tilbúinn þegar þú færð póst, þú hefur c.a. 30 min til þess að ganga frá kaupum áður en sendingin klárast yfirleitt.

Re: PS5 hvar er best að kaupa ?

Sent: Mán 03. Jan 2022 23:39
af Viggi
Betriverd.is eru líka solid ef þú ert þolinmóður. Keypti mína í lok júní og fékk hana í byrjun október

Re: PS5 hvar er best að kaupa ?

Sent: Þri 04. Jan 2022 09:14
af orn
+1 á betriverd.is -- pantaði mína um miðjan sept og fékk afhent milli jóla og nýárs. Hefði getað fengið fyrr ef ég hefði tekið Disc edition.