Síða 1 af 1

Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Fim 16. Feb 2023 03:09
af Olithorv
Og það er einum of gott... þetta er svo mikið kirsuberið ofan á rjómatertuna sem þessi frábæri leikur er.

Og nei, það er ekki vegna þess að mig vantar að láta þýða fyrir mig enskuna, en afþví það er einhvað svo fáranlega fyndið og steikt, á góðan hátt, að lesa og fara í gegnum leikinn með *nánast* allt á íslensku. Þið munið fatta hvað ég meina ef/þegar þið spilið leikinn :lol:
Það er að vísu ekki allt 100% þýtt en það er greinilega markmiðið hjá þeim þar sem að meira að segja stillingarnar og menu-ið er þýtt. Og í hverju updatei koma inn fleiri þýðingar.

Þetta er líka alls ekki einhver google-translate þýðing, heldur er þýðandinn greinilega að vanda sig að finna gömul íslensk orð sem passa vel inní leik sem byggist á norrænni goðafræði. En það gengur stundum erfiðlega hjá honum sýnist mér afþví sumar þýðingarnar eru frekar tæpar :lol:

Mæli mikið með leiknum..ef maður fýlar indie,rpg,survival,crafting og þess háttar leiki. Kostar einhvað klink og ég er kominn með ca. 250klst i leiknum.

Ég og vinir mínir erum að verða búnir að skoða mest allt sem komið er, en það væri samt snilld ef einhver meistari hérna myndi henda í góðan dedicated server fyrir íslendinga

Læt nokkrar myndir fylgja með svo þið fáið brot af þessari snilld:
https://imgur.com/a/o8cjacE

Mynd
Mynd
Mynd

Re: Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Fim 16. Feb 2023 10:22
af Kristján
Þetta er mjög vel gert :D

Re: Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Fim 16. Feb 2023 10:28
af chaplin
Drulluhristingur. Mudshake? :lol:

Mjög töff!

Re: Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Fim 16. Feb 2023 11:48
af Hizzman
Frekar gott, málfræðin er samt ekki alveg 100%

td:

altarisstað

fyrstu bráð þinni

Leðurkyrtill og fleiri nafnorð sem eru í bútum, smit frá ensku

endingarmestu

etv mátt finna betra orð en lagfæristöðvar

þetta er samt vel gert og mörg flott orð þarna

Re: Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Sun 19. Feb 2023 15:13
af Climbatiz
spilaði nú Rokk hér í denn, sem var íslenskaður Rockstar (1989) leikur

er meiraðsegja með íslensku útgáfuna af leiknum vistaðann á tölvunni heima, er dos samt leikur

https://obscuritory.com/sim/rockstar/

Re: Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Þri 21. Feb 2023 10:40
af ChopTheDoggie
Svo er Minecraft með íslenska þýðingu og svo er Jotun með það líka ásamt voice acting.
Ég held að Valheim væri ekki sú fyrsti leikurinn þá \:D/

Re: Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Þri 21. Feb 2023 12:31
af Mondieu
Sumt þarna er kannski einum of beinþýtt úr ensku og stundum eru notuð tvö orð yfir hlut í stað samsetts orðs (þetta er reyndar orðið frekar algengt hjá fólki í dag). Engu að síður er þetta flott framtak. Það getur verið mjög vandasamt að þýða yfir á annað tungumál.

Re: Valheim fyrsti(?) tölvuleikurinn með íslenska þýðingu.

Sent: Mið 01. Mar 2023 08:38
af Climbatiz
fyrir þá sem nota DosBox, þá er hérna íslenski Rokk leikurinn ;}
https://www.mediafire.com/file/hjqflkrn ... k.rar/file