Síða 1 af 1

Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 17:27
af chaplin
Ég veit ekki með ykkur, en ég er hyped fyrir þessu!






Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 17:31
af Hausinn
Var kominn tími á að uppfæra leikinn. Ég vona bara að það verði betra anti-cheat þetta skiptið.

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 17:36
af k0fuz
Já lúkkar spennandi. En að kúlur sem fara í gegnum smoke búi til "tunnel vision" er svolítið skrítið að mínu mati.

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 17:52
af GuðjónR
Lofar góðu!

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 18:41
af Semboy
Wow. Takk fyrir. Vissi ekki cs 2 var a thing.
Eg spila bara dota 2,cs go,tf2 og akkurat i thetta order.
Er med 800kr turn, loksins er eithvad not fyrir thessu nuna.

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 18:46
af Skari
Er vitað hvað verður um skinnin, það hlýtur að flytjast yfir er það ekki ?

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 19:01
af chaplin
Skari skrifaði:Er vitað hvað verður um skinnin, það hlýtur að flytjast yfir er það ekki ?


Jubb! :)

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 19:03
af Dr3dinn
Er staðfest með skininn eða þarf maður að fara selja allt fyrir nokkur hundruð usd? :S

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 19:09
af L0ftur
Spennó Spennó! Kominn tími til, flott lighting í þessum videóum.

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 19:18
af svensven
Dr3dinn skrifaði:Er staðfest með skininn eða þarf maður að fara selja allt fyrir nokkur hundruð usd? :S


Staðfest að þau fari með.

counter-strike.net/cs2 skrifaði: YOUR ITEMS IN A WHOLE NEW LIGHT
Bring your entire CS:GO inventory with you to Counter-Strike 2. Not only will you keep every item you’ve collected over the years, but they’ll all benefit from Source 2 lighting and materials.

In addition to supporting legacy models and finishes, all stock weapons have been upgraded with high-resolution models, and some weapon finishes take advantage of these new models.

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 20:20
af Vaktari
k0fuz skrifaði:Já lúkkar spennandi. En að kúlur sem fara í gegnum smoke búi til "tunnel vision" er svolítið skrítið að mínu mati.


Kastar grensu í smokeinn og þá fer hann.
Ert ekki með neinar sérstakar kúlur í byssunni.
Eða það er allavega það sem ég tók frá myndbandinu

Sry ég er að bulla það er líka þegar skotið er í gegnum smoke al þá kemur svona gat í smokeinn.
Afsakið...

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 21:58
af agust1337
Smooya er að spila hann núna, þetta lúkkar ferkar flott held ég!
https://www.twitch.tv/smooyacs

Re: Counter Strike 2

Sent: Mið 22. Mar 2023 22:29
af Frost
Þó svo að ég spili ekki leikinn lengur þá er gaman að sjá þessa þróun. Þetta lýtur skemmtilega út.

Re: Counter Strike 2

Sent: Fim 23. Mar 2023 06:58
af Moldvarpan
Gaman að sjá það sé progress í þessu. Kominn tími til. Þó efast ég um að ég fari í þennan FPS kleppara aftur.

Hlakkar meira til eftir Diablo 4 sem kemur út 6.júní :)

Re: Counter Strike 2

Sent: Fim 23. Mar 2023 09:06
af Dr3dinn
Mjög gaman að horfa á streymaranna í gær.

Skítlokkar og bara spennandi tímar framundan.

Re: Counter Strike 2

Sent: Fim 23. Mar 2023 11:41
af KristinnK
Semboy skrifaði:Wow. Takk fyrir. Vissi ekki cs 2 var a thing.
Eg spila bara dota 2,cs go,tf2 og akkurat i thetta order.
Er med 800kr turn, loksins er eithvad not fyrir thessu nuna.


Þegar Dota 2 fór úr Source 1 í Source 2 varð leikurinn auðveldari í keyrslu, ekki þyngri. Counter-Strike er líka þannig leikur að rammatíðni skiptir öllu máli, atvinumennirnir vilja geta keyrt leikinn á 500+ fps (tvöfalda rammatíðni skjásins sem þeir nota, sem er 240+ Hz), þannig Valve myndi aldrei breyta leiknum þannig að hann verður þungur í keyrslu fyrir jafnvel fólk með 10 ára gömul skjákort.

Þú verður að halda áfram leitinni að einhverju til að nýta þessa 800 þúsund króna tölvu.

Re: Counter Strike 2

Sent: Fim 23. Mar 2023 12:01
af brynjarbergs
Hef spilað frá því að þú þurftir að boota CS upp í gegnum Half Life og man ekki eftir því að hafa verið jafn hyped fyrir update.

LET'S GO!

Re: Counter Strike 2

Sent: Fim 23. Mar 2023 12:40
af chaplin
Það sem er búið að birta úr CS 2 er víst ekki öll sagan og er Valve núna að tweak-a leikinn út frá feedbacki. Það besta við þetta af öllu er að með því að nota Source 2 vélina er þróunarteymi Valve að taka álíka mikið stökk eins og að fara úr assembly í unreal. Að lagfæra bögga og gera breytingar, skv. þeim sem fengu að prufa leikinn hjá Valve (fyrir nokkrum mánuðum), var gert í realtime.

Tester: "Það er svolítið skrítið að gera <action>"
Dev: "<Typie type>, svona, þetta ætti að vera betra."

Sömuleiðis verður það víst unaður að smíða ný möp, svo það er spennandi.

k0fuz skrifaði:Já lúkkar spennandi. En að kúlur sem fara í gegnum smoke búi til "tunnel vision" er svolítið skrítið að mínu mati.


Af því sem ég best veit, að skjóta stakri kúli í smoke gerir nánast ekkert, ef þú klára heila klippu þá gætir þú séð smá stund í gegnum smoke áður en það fyllist aftur í gatið. Sömuleiðis með handsprengjur, hreinsar smoke í smá stund, en svo kemur hann aftur. Mér finnst þetta vera brilliant.

Frost skrifaði:Þó svo að ég spili ekki leikinn lengur þá er gaman að sjá þessa þróun. Þetta lýtur skemmtilega út.


Ég hætti í 1.6 um 2007-2008 en tók aftur upp stríðshanskann þar sem vinnan plataði mig til að taka þátt í Firma Mótinu (special shoutout til ELKO1337 fyrir að niðurlægja okkur). Fyrir mótið hafði ég aldrei spilað CSGO en ég verð að segja að þetta er skemmtilegri leikur en ég bjóst við þótt ég geti ekkert í honum.