Getur linux tölva (t.d. Mandrake) truflað windows server


Höfundur
gebbi
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fim 04. Des 2003 12:35
Reputation: 0
Staðsetning: Akranes
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Getur linux tölva (t.d. Mandrake) truflað windows server

Pósturaf gebbi » Lau 27. Nóv 2004 19:56

Getur linux tölva (t.d. Mandrake) truflað windows server?
Ég set dæmið upp þannig að í einu fyrirtæki er windows 2003 server sem þjónar 4 - 5 windows XP tölvum. Á einum stað er opið lan tengi sem tölvur sem eru ekki hluti af netkerfinu geta komist í netsamband, þær geta ekki komist inn á netkerfið sjálft.

Nú er svo mikil vírusa ásókn í windows að ég set upp linux (mandrake) til þess að þurfa ekki stanslaust að vera að vesenast í björgunaraðgerðum vegna vírusa sem komast jafnvel framhjá öllum vörnum, (er ekki með sp2).

Svo kemur allt í einu, tveimur mánuðum eftir að ég set upp linux, vandamál sem lýsir sér þannig að engin tölva í kerfinu kemst á netið. Skuldinni er umsvifalaust skellt á linux vélina og netstjórinn segir að hún hafi truflað allar hinar tölvunar.

Er þetta rétt? Ég hefði haldið að serverinn myndi bara láta linux tölvuna eiga sig vegna þess að hún er ekki skráð inn í netkerfið sjálft og ekki inni í domain eða neitt. Ég er búinn að leita á netinu að upplýsingum um svipuð mál en ekkert fundið.

Með Kveðju, gebbi


Ekki taka neitt mark á því sem ég segi, ALLT sem ég segi er LYGI !

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Lau 27. Nóv 2004 21:12

Ég þekki þetta nú ekki fullkomlega en mér þykir það mjög ólíklegt.
En það eru möguleikar þannig að ég myndi biðja netstjórann að rökstyðja það(þ.e. segja þér afhverju Linux vélin ,,truflaði" hinar) áður en þú ,,tekur á þig sökina"



Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Pósturaf Revenant » Lau 27. Nóv 2004 21:58

Mjög ólíklegt mundi ég segja.




Hawley
Nörd
Póstar: 112
Skráði sig: Fös 21. Maí 2004 22:14
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hawley » Lau 27. Nóv 2004 22:08

mun líklegra að windows sé bara að gera það sem það gerir best, hætta að virka af einngri ástæðu



Skjámynd

tms
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mán 04. Ágú 2003 00:56
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf tms » Sun 28. Nóv 2004 15:57

nei, linux tölva fer ekki að trufla windows tölvur á local neti, nema það hafi verið sett upp eitthvað forrit á hana sem viljandi gerir öðrum tölvum mein.



Skjámynd

djjason
Ofur-Nörd
Póstar: 258
Skráði sig: Fim 06. Maí 2004 23:39
Reputation: 0
Staðsetning: Boston, MA
Staða: Ótengdur

Pósturaf djjason » Sun 28. Nóv 2004 17:26

Skellir ekki netstjórinn bara umsvifalaust skuldinni á linux boxið til að fela sína vanþekkingu á þessu sviði ??? :shock:


"Only wimps use tape backup: _real_ men just upload their important stuff on ftp, and let the rest of the world mirror it"
- Linus Thorvalds

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Sun 28. Nóv 2004 17:29

djjason skrifaði:Skellir ekki netstjórinn bara umsvifalaust skuldinni á linux boxið til að fela sína vanþekkingu á þessu sviði ??? :shock:

það gæti líka vel verið




Höfundur
gebbi
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fim 04. Des 2003 12:35
Reputation: 0
Staðsetning: Akranes
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Eins og ég hélt...

Pósturaf gebbi » Sun 28. Nóv 2004 21:05

Ja há, eins og ég hélt. Það er búið að ramma mig (i've been framed). Ég ætla sko ekki að fara að taka á mig sökina fyrir það eitt að vilja forða kerfinu frá vírusa og auglýsingapest.

Það er líka annað sem ég hef reynt að segja þeim í sambandi við rekstur tölvukerfissins. Það er að vegna þess hversu oft rafmagnið fer af þá er ekki nema von að allt draslið sé í microsoftísku Krassi.

Vara aflgjafinn sem á að bjarga servernum dugar ekki nema í ca. 1/2 tíma og þá er oftast ekki búið að laga rafmagnið. Þar að auki þá ætti serverinn að pakka saman þegar þetta gerist en það gerir hann ekki.
En ég vil þakka góð svör og þessa hreinsun á minni samvisku.

Kveðja, Gebbi


Ekki taka neitt mark á því sem ég segi, ALLT sem ég segi er LYGI !


Merlin
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Fim 13. Feb 2003 14:34
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Merlin » Fös 14. Jan 2005 15:08

Ef þú ert að keyra Samba á vélinni og Samba er stillt sem masterbrowser fyrir domainið sem þú ert að keyra á getur það trufla Windows Networking talsvert.

Prófaðu að drepa Samba og sjáðu hvort ástandið skánar :)




mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 373
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Pósturaf mainman » Sun 08. Jan 2006 18:16

ég lenti í þessu hjá mér og samba var að gera þetta, hafði startað því í einhverjum fíbblaskap. dugði að drepa samba og þá fór allt í lag




Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Mán 09. Jan 2006 12:57

mainman skrifaði:ég lenti í þessu hjá mér og samba var að gera þetta, hafði startað því í einhverjum fíbblaskap. dugði að drepa samba og þá fór allt í lag


Eins árs gamall póstur og þessi sem svaraði fyrir einu ári var að segja það sama og þú varst að segja núna.



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf beatmaster » Fim 25. Jan 2007 00:22

Ég legg til að þessum þræði verði þannig að það sé póstað í hann á ca árs fresti :P


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

tms
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mán 04. Ágú 2003 00:56
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf tms » Fim 25. Jan 2007 18:17

beatmaster skrifaði:Ég legg til að þessum þræði verði þannig að það sé póstað í hann á ca árs fresti :P

The thread that just won't die :l.
Annars ætla ég að breyta minni stöðu til málsins:
Já.