Síða 4 af 8

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Sun 01. Jún 2014 17:14
af ofurgorn
Sælir.

Heimskuleg spurning: Hefur einhver kannað hversu mikið mál væri að gera sarp fyrir Plex? Væri það eiithvað skylt þessu?

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Mán 30. Jún 2014 23:45
af Dagur
Ég er búinn að endurskrifa þetta og nýja útgáfan ætti að detta inn á xbmc hjá ykkur á morgun eða á miðvikudag.

Breytingarnar;

  • Flestir (vonandi allir) þættir ættu að virka núna (síður með nýja útlitinu ættu ekki að vera vandamál)
  • Allt á hlaðvarpinu ætti að virka
  • Hægt að hlusta á útvarpsstöðvarnar í beinni útsendinu
  • Hraðvirkara (betri kóðasöfn og skilvirkari skröpun)

Stór hluti af þessu var líka að hreinsa til í kóðanum þar sem sá gamli var verulega sóðalegur. Ég er svo búinn að færa þetta á github og vona að einhverjir verði til í að hjálpa til við að viðhalda þessu. Sjá: https://github.com/Dagur/sarpur-xbmc

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Mán 30. Jún 2014 23:50
af Dagur
Ég gleymdi að bæta við að það er eitt þekkt vandamál. Ég lendi stundum í því að fá villu þegar ég er að flakka hratt á milli í flokkunum (rúv þjónninn að hafa hemil á mér?). Ef þið lendið slíku þá virkar yfirleitt að bíða í smástund og reyna aftur.

Þessi uppfærsla kemur á frodo. Ég mun kíkja á það næst að flytja þetta á Gotham.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Þri 01. Júl 2014 23:18
af Dagur
Afsakið spamið en nýjasta útgáfan er ekki alveg málið (það er ekki hægt að opna hana). Ég er búinn að senda inn nýja útgáfu.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Lau 05. Júl 2014 11:55
af dreymandi
ef maður ætlar að fara dl xbmc til að geta seð ruv. í útlöndum. hvaða xbmc á að sækja gotham eða ?

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Lau 05. Júl 2014 11:58
af Dagur
dreymandi skrifaði:ef maður ætlar að fara dl xbmc til að geta seð ruv. í útlöndum. hvaða xbmc á að sækja gotham eða ?


Ég er ekki búinn að flytja þetta á gotham en það er næst á dagskrá.

Ef þú ætlar að horfa á þetta í útlöndum þá reikna ég með að þú þurfir að nota VPN eða DNS þjónustu (prófaðu amk fyrst að horfa á í browser og sjáðu til hvort það virkar).

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Lau 05. Júl 2014 12:00
af Dagur
btw, ég gerði aftur mistök þegar ég gaf út nýja útgáfu. Þetta ætti að vera komið í lag núna. Ég læt nýjustu útgáfuna fyglja hérna með ef þið viljið redda þessu strax.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Lau 05. Júl 2014 14:24
af dreymandi
kann ekkert á þetta sem þú talar um. ef ég nota síðuna þá sé ég ekki erlenda þætti. prófaði hola.org og það virkar ekki eða ég kann ekkert á þetta. gat ekki fengið neitt til að virka.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Sun 06. Júl 2014 09:21
af Dagur
Þú þarft líklega vpn þjónustu sem er með server á Íslandi eins og t.d Vypervpn eða hidemyass. Ég er samt langt frá því að vera sérfræðingur í þessu

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Mán 07. Júl 2014 15:30
af Klemmi
Þetta er kannski ekki algjörlega on topic, en ekki veist þú eða einhver annar hér hvernig hægt er að horfa á útsendingu RÚV.is í gegnum VLC Player eða einhvern annan spilara sem virkar á Windows XP?

Mamma er með gamla P4 borðtölvu sem hún vildi nota til að horfa á sjónvarpið, en hún ræður ekki við flash playerinn á RÚV.is.

Hef aldrei notað XBMC, kannski einfaldlega hægt að setja það upp á Windows og nota svo pluginið þitt?

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Mán 07. Júl 2014 15:40
af Dagur
Báðir kostirnir ættu að vera mögulegir.

Ef hún vill bara horfa á beina útsendingu þá getur hún prófað þessa slóð (í browser eða vlc):
http://sip-live.hds.adaptive.level3.net ... /live.m3u8

Það er líka mjög auðvelt að setja XBMC upp á windows (download + run) þannig að þú ættir bara að prófa.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Mán 07. Júl 2014 22:01
af marijuana
Klemmi skrifaði:Þetta er kannski ekki algjörlega on topic, en ekki veist þú eða einhver annar hér hvernig hægt er að horfa á útsendingu RÚV.is í gegnum VLC Player eða einhvern annan spilara sem virkar á Windows XP?

Mamma er með gamla P4 borðtölvu sem hún vildi nota til að horfa á sjónvarpið, en hún ræður ekki við flash playerinn á RÚV.is.

Hef aldrei notað XBMC, kannski einfaldlega hægt að setja það upp á Windows og nota svo pluginið þitt?



netútvarps forritið er með þetta líka.
viewtopic.php?f=7&t=54443

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Mið 20. Ágú 2014 15:14
af bizz
Sælir.

Er mikið mál að koma þessu í virkni fyrir Gotham? Annað, þekkiru hvaðan þetta stream kemur? rtmp://ruvruverllivefs.fplive.net/ruvru ... ve/stream1
Mér finnst eins og það sé örlítill gæðamunur á því og svo ruv.is.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Þri 26. Ágú 2014 18:50
af flicker
Sæll Dagur...

Takk fyrir snilldar plugin... ég er að reyna að fá þetta til að virka á openelec en það gengur illa..
En ég held að ég sé búinn að finna hvað er að...
ég fæ þessa villu þegar ég keyri addonið en ég virðist ekki vera með script.module.requests í xbmc... getur ekki verið að þú þurfir að bæta því við requires í addon.xml?

Kóði: Velja allt

18:26:04 T:2856282944   ERROR: EXCEPTION Thrown (PythonToCppException) : -->Python callback/script returned the following error<--
                                             - NOTE: IGNORING THIS CAN LEAD TO MEMORY LEAKS!
                                            Error Type: <type 'exceptions.ImportError'>
                                            Error Contents: No module named requests
                                            Traceback (most recent call last):
                                              File "/storage/.xbmc/addons/plugin.video.sarpur/default.py", line 8, in <module>
                                                from sarpur import actions, logger
                                              File "/storage/.xbmc/addons/plugin.video.sarpur/sarpur/actions.py", line 6, in <module>
                                                import scraper
                                              File "/storage/.xbmc/addons/plugin.video.sarpur/sarpur/scraper.py", line 4, in <module>
                                                import requests, re
                                            ImportError: No module named requests
                                            -->End of Python script error report<--

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Fim 04. Sep 2014 08:56
af kristfin
ég var að setja sarpinn upp á raspberry pi, raspbmc 13.2.
þegar ég reyni að opna sarp kemur alltaf eh script error og ekkert gerist?

hugmynd um hvernig ég leysi það?

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Sun 28. Sep 2014 15:28
af Dagur
Ég prófaði að uppfæra þetta þannig að requests er sótt. Vonandi lagar þetta openelec/raspbmc vandamálið.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Sun 28. Sep 2014 19:30
af slapi
Veit ekki hvort þessi spurning hefur komið áður en ætli sé flókið að fá svipað plugin fyrir PLEX? Ég notaði þetta mikið þegar ég var með Raspbmc installað á Pi-ið mitt. Eina sem ég sakna eftir ég færði mig yfir.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Mið 08. Okt 2014 21:03
af Dagur
Ég var að henda inn nýrri útgáfu sem ætti að detta inn næsta sólarhringinn (fyrir Gotham líka). Hún er vonandi töluvert stabílli og ætti ekki að vera vandamál á OpenElec.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Fim 09. Okt 2014 10:14
af Stutturdreki
Takk, kíki á þetta i kvöld (ef ég kemst í sjónvarpið) :happy

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Fim 09. Okt 2014 10:37
af Dagur
Stutturdreki skrifaði:Takk, kíki á þetta i kvöld (ef ég kemst í sjónvarpið) :happy


Þetta dettur inn þegar þeir svara þessum pósti http://sourceforge.net/p/xbmc/mailman/message/32911176/ :)

Útgáfunúmerið ætti að vera 3.2.0

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Þri 14. Okt 2014 19:51
af Dagur
Þetta er loksins dottið inn. Þeir voru óvenjulengi að þessu.

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Þri 14. Okt 2014 20:15
af slapi
http://addons.xbmc.org/show/plugin.video.sarpur/
er Ennþá 3.13 hjá mér og líka þarna

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Þri 14. Okt 2014 20:22
af Dagur
slapi skrifaði:http://addons.xbmc.org/show/plugin.video.sarpur/
er Ennþá 3.13 hjá mér og líka þarna


Ég gerði check for updates hjá mér og þá datt þetta inn (á Gotham)

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Þri 14. Okt 2014 20:44
af NiveaForMen
Dagur skrifaði:
slapi skrifaði:http://addons.xbmc.org/show/plugin.video.sarpur/
er Ennþá 3.13 hjá mér og líka þarna


Ég gerði check for updates hjá mér og þá datt þetta inn (á Gotham)



Sama hér, ásamt nokkrum öðrum! Mjög gott

Re: Sarpur: XBMC Viðbót til að horfa á efni af rúv.is

Sent: Fös 31. Okt 2014 21:03
af bizz
Þetta er flott þegar streamið helst stöðugt. Það dettur hins vegar reglulega út og þá þarf nokkrar tilraunir til þess að fá það af stað aftur. Þetta er reyndar líka svona í flash útgáfunni á ruv.is. Eru aðrir að lenda í þessu og ef svo er hefur einhver sett einhvern buffer á þetta til að gera meira stöðugt?