Síða 1 af 1

Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 13:29
af GullMoli
Eftir umræðuna hérna: viewtopic.php?f=57&t=89705

Þá fór ég að velta fyrir mér, þið sem eruð með UDM Pro.. hvaða notkun eruði með í gangi sem krefst þessarar græju?

Ég var að reyna að réttlæta fyrir sjálfum mér að uppfæra úr 6 ára gamla TP-Link routernum mínum. Hinsvegar sýnist mér eina "alvöru" ástæðan, fyrir mig, vera ef ég ætlaði í Unifi öryggismyndavélarnar líka.

Annars er þetta svakalegur kostnaður ef þetta á bara að vera router og switch:
Rackmount kassi: 15-20þús?
UDM Pro = ~70þús komið heim frá Eurodk

Hverju er ég að missa af?

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 14:27
af kusi
Ég er sjálfur bara með Unifi Secure Gateway (USG) sem er eldra módel og ekki eins öflugt en nógu öflugt þó til að vera ekki flöskuháls með 1 gig ljósleiðaratengingu. Ég stefni samt á að uppfæra á næsta ári...

Afhverju? Það er engin góð ástæða önnur en að mér finnst þetta svöl og skemmtileg græja :)

Ef ég þyrfti að nefna einhverja ástæðu gæti ég sagt að það væri til að geta virkjað IPS/IDS. USG hefur ekki nógu öflugan örgjörva til að gera það og áfram ráð við að routa 1 gíg en Dream Machine Pro ræður við amsk. 2,5 gíg með það virkjað. En, aftur - það er í raun engin ástæða önnur en að mig langar.

Spurningin er í raun frekar hvort þú vilt vera í Unifi kerfinu eða ekki. Ef þú vilt gera það á annað borð þá er hagstæðara að kaupa Unifi Dream Machine Pro heldur en aðskilinn ódýrari Unifi router, Unifi switch og cloud key.

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 14:31
af Náttfari
Ekki gleyma UDM PRO SE sem er með innbyggðum POE Switch og 120GB SSD.

UDM PRO er með 2xWAN sem er failover ef þú er með ljós og ljósnet, eða í mínu tilfelli þá er ég með LJÓS og nota bæði WAN portin, þau gefa mér sitthvora ytri IP töluna.

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 14:34
af kusi
Náttfari skrifaði:Ekki gleyma UDM PRO SE sem er með innbyggðum POE Switch og 120GB SSD.


Einmitt græjan sem ég er með augastað á... :)

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 15:18
af Bengal
Náttfari skrifaði:Ekki gleyma UDM PRO SE sem er með innbyggðum POE Switch og 120GB SSD.

UDM PRO er með 2xWAN sem er failover ef þú er með ljós og ljósnet, eða í mínu tilfelli þá er ég með LJÓS og nota bæði WAN portin, þau gefa mér sitthvora ytri IP töluna.


En ef þú ert að tengja í sama ljósleiðaraboxið ertu þá ekki eins settur þegar tengingin dettur út?

Eða samnýtir þetta portin og þú færð út 2x1gbit = 2gbit ?

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 15:54
af Náttfari
Bengal:

Jú, Í mínu tilfelli er ég með hitt portið sem failover. Ef strengurinn yrði grafinn eða bilun í streng yrði þá væri netlaus. Skrítna við þetta er samt það að oft kemur fyrir að primary ljós tengingin er að faila og þá fæ ég meldingu að UDM PRO hafi skipt yfir á secondary portið.

Annað er hægt að segja ef þú værir með t.d ljósnet tengt í secondary WAN, þá ertu góður ef annað bilar.

Það er til einhver leið til að nýta báðar tengingarnar fyrir sitthvort LAN inn á UDM PRO, ég kann það því miður ekki.

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 16:13
af depill
Bengal skrifaði:
Náttfari skrifaði:Ekki gleyma UDM PRO SE sem er með innbyggðum POE Switch og 120GB SSD.

UDM PRO er með 2xWAN sem er failover ef þú er með ljós og ljósnet, eða í mínu tilfelli þá er ég með LJÓS og nota bæði WAN portin, þau gefa mér sitthvora ytri IP töluna.


En ef þú ert að tengja í sama ljósleiðaraboxið ertu þá ekki eins settur þegar tengingin dettur út?

Eða samnýtir þetta portin og þú færð út 2x1gbit = 2gbit ?


Upstreamið er ennþá 1 Gbps þannig þú færð 2 að ljósbreyti, 1 út úr húsi. Þú getur náð fram sama með því að defina bara aðra virtual tölu á interfaceinu í DHCP. Þannig næ ég 3 ip tölum á USG.

Ég keyri svo UDM Pro á öðrum stað í litlu fyrirtæki þar sem ég vildi hafa þetta rack mountable, enn ég er ekkert að drífa mig að skipta út USGinu heima hjá mér með hosted controller. Í þessu fyrirtæki er myndavélakerfi sem recordar á UDM Proinn, plús að Proinn er sinn eigin "cloudkey" og meikar bara sense þar.

Verandi með virkt IDS/IPS á þeim stað sem UDM Proinn er á að þá er ég ekki alveg að sjá að ég þurfi þetta heima hjá mér, enn það er bara ég :)

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 17:11
af dodzy
Ef þú ert eingöngu að pæla í interneti þá mundi ég taka unifi dream machine í dag.
Controller innbyggður, wifi + router í einum pakka

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 18:45
af Cascade
Eina ástæðan til að taka pro að minu mati er að fá þetta í 19 tommu rakka
Þeas ef þú sért með netskap

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 19:47
af TheAdder
Ég er að keyra USG, er mikið að pæla í DMP SE fyrir aukin afköst og meira en 1Gb í framtíðinni.

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fös 17. Des 2021 22:42
af oskarom
Ég var einmitt að skipta út routernum fyrir UDM Pro, ástæðan er akkúrat Unifi Protect, ætla reyndar líka að nýta mér Unifi Access, vantaði líka managed L2 switch í topologyuna á sama physical stað og router er þannig að þetta var ansi rökrétt dæmi í minni uppsetningu. Svo passar þetta smekklega vel með super micro vélinni sem ég er með útí skúr.

Var með EdgeRotuer 6P fyrir (ER-6P) sem er geggjuð græja.

Aðal atriðið í þessu fyrir mér er fyrst og fremst að vera með router og wifi aðskilið, ekki í sama tækinu. Það er mikið compromise að vera með þetta dót sambyggt, þráðlausir punktar eru frekar nettir og low-key, öflugir routerar eru það bara alls ekki, staðsetning routera er háð lagnaleiðum, rafmagn, wan og lan. Svo vil ég líka bara getað skipt út þráðlausum punktum þegar ég kemst í eitthvað betra, óþarfi að henda góðum router á bruna útsölu í hvert skipti sem það kemu nýr wifi staðall :)

P.s. það er engin ástæða henda 70þ í þetta hjá EuroDK, ég keypti minn bara beint af Ubiquiti, þetta var einhverstaðar um 60þ komið heim með DHL Express á 2 dögum. :-"

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Mán 14. Nóv 2022 15:27
af GullMoli
Jæja, tæplega ári síðar og eftir að hafa verið með UDM í tæpt ár er ég að fara flytja að því tilefni búinn að næla mér í UDM SE, myndavélar og AP :)

Helsti punkturinn er einmitt Protect, svo er SE með PoE fyrir allan aukabúnaðinn og svo futurproof uppá 2.5Gbs =< internet.

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Mán 14. Nóv 2022 22:11
af braudrist
GullMoli skrifaði:Af hverju Unifi Dream Machine Pro?


bywi.jpg
bywi.jpg (4.55 KiB) Skoðað 2594 sinnum

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Þri 15. Nóv 2022 09:38
af CendenZ
Ég er að fara uppfæra í UDM SE. Ef einhver hefur áhuga að taka USG, CK2, switch, og eina g3 pro myndavél þá er um að gera fylgjast vel með söluþráðunum á næstunni :)

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Mið 16. Nóv 2022 21:55
af Predator
Færi alltaf í managed switch + thinclient sem keyrir pfsense frekar fyrir mína parta.

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fim 17. Nóv 2022 08:41
af CendenZ
Predator skrifaði:Færi alltaf í managed switch + thinclient sem keyrir pfsense frekar fyrir mína parta.


Það er svona eins og segja að maður ætti bara fara í gamla Kiu þegar það er verið að ræða nýja Teslu með öllum cool fídusunum :guy

Re: Af hverju Unifi Dream Machine Pro?

Sent: Fim 17. Nóv 2022 09:01
af GullMoli
Predator skrifaði:Færi alltaf í managed switch + thinclient sem keyrir pfsense frekar fyrir mína parta.


Pfsense er algjör snilld, var með þannig vél í nokkur ár fyrir svona 10 árum. Með Dream Machine er ég aðalega að sækjast eftir Protect myndavélakerfinu + viðmótið/öppin þeirra eru, að mínu mati, langt á undan samkeppninni.