Síða 1 af 1

Lén og Vefhýsing

Sent: Fim 13. Okt 2022 14:24
af aurapain
getur einhver sagt mér er einhver annar en ISNIC sem býður upp á .is lén á Íslandi?Og hverjir eru bestu vefhýsingaraðilarnir á Íslandi? ég er að íhuga HostGator vegna þess að það er ódýrara. en mig langar að vita hvort við höfum betra verð og betri þjónustu á Íslandi?

Re: Lén og Vefhýsing

Sent: Fim 13. Okt 2022 14:36
af Climbatiz
kannski að skoða https://www.netim.com/en ? þeir bjóða uppá .is lén t.d

Re: Lén og Vefhýsing

Sent: Fim 13. Okt 2022 14:50
af Njall_L
Er það ekki þannig að ISNIC á .is top-level-domain heitið svo að allir aðrir sem selja .is (eins og Netim) eru bara að endurselja frá ISNIC?

Re: Lén og Vefhýsing

Sent: Fim 13. Okt 2022 15:54
af russi
aurapain skrifaði:getur einhver sagt mér er einhver annar en ISNIC sem býður upp á .is lén á Íslandi?Og hverjir eru bestu vefhýsingaraðilarnir á Íslandi? ég er að íhuga HostGator vegna þess að það er ódýrara. en mig langar að vita hvort við höfum betra verð og betri þjónustu á Íslandi?



Lén er í sjálfu sér ekki dýrt, langbesta leiðin er kaupa það beint af isnic, í stað 3rd party sem rukkar þig lítið fyrir að byrja en smyr vel á það árið eftir.
Hýsingarkostnaður er svo allt önnur deild og þar er allskonar í boði, ég ráðlegg þér að skoða hýsingaraðila sem þú kemur með lénið til og fá verðhugmyndir á þann hátt.

Re: Lén og Vefhýsing

Sent: Fös 14. Okt 2022 06:45
af Viktor
:!: