Síða 1 af 1

Saga sæstrengja/útlandasambönd við ísland

Sent: Mán 12. Jún 2023 14:13
af ddolobb
Youtube myndband sem sýnir sögu sæstrengi og útlandasambönd í gegn um tíðina, alveg frá fyrsta ritsímanum 1906 að nýja IRIS strengnum.
https://youtu.be/CqdOlJaAmBE

Re: Saga sæstrengi/útlandasambönd við ísland

Sent: Mán 12. Jún 2023 15:21
af sundhundur
Ég hélt að ég hefði mislesið titilinn svona hrapalega að þú værir að tala um að saga sæstrengi.

Svo sá ég að ég mislas hann ekki. Þú ættir kannski að laga titilinn, saga sæstrengJA

Re: Saga sæstrengi/útlandasambönd við ísland

Sent: Mán 12. Jún 2023 15:49
af TheAdder
sundhundur skrifaði:Ég hélt að ég hefði mislesið titilinn svona hrapalega að þú værir að tala um að saga sæstrengi.

Svo sá ég að ég mislas hann ekki. Þú ættir kannski að laga titilinn, saga sæstrengJA

Ég féll fyrir sama bragði, hélt að Rússar væru með svakalegt svar við lokun sendiráðsins! :megasmile

Gaman að sjá þetta myndband samt og þróunina hjá okkur.

Re: Saga sæstrengja/útlandasambönd við ísland

Sent: Sun 18. Jún 2023 23:28
af kjartann
Sá þetta um daginn. Flott myndband. Gerir mig samt alltaf leiðann þegar ég sé einhvað svona hvað það vantar af tengingum til Norður-Ameríku hjá okkur. Vegna skrautlegu leiðarinnar sem Greenland Connect tekur til kanada er biðtími í gegnum Greenland Connect til New York næstum sá sami og að taka FARICE-1 til London eða IRIS til Dublin og svo þaðan til New York.

(Svo má ekki gleyma einnokuninni á markaðinum sem Farice kemst upp með.)

Re: Saga sæstrengja/útlandasambönd við ísland

Sent: Mið 21. Jún 2023 21:19
af depill
kjartann skrifaði:Sá þetta um daginn. Flott myndband. Gerir mig samt alltaf leiðann þegar ég sé einhvað svona hvað það vantar af tengingum til Norður-Ameríku hjá okkur. Vegna skrautlegu leiðarinnar sem Greenland Connect tekur til kanada er biðtími í gegnum Greenland Connect til New York næstum sá sami og að taka FARICE-1 til London eða IRIS til Dublin og svo þaðan til New York.

(Svo má ekki gleyma einnokuninni á markaðinum sem Farice kemst upp með.)


hmm, held að average London -> NY roundtrip sé 75ms í það lægsta og svo 35-38ms Reykjavik -> london. Man ekki alveg GC roundtrip til NY enn það var töluvert lægra.

Hins vegar er stöðugleikinn á strenginum, reksturinn á Íslandi, og routing optimization allt búið að vera ekki á góðum stað frá gangsetingu. Verður áhugavert að sjá hvort að það sé nægilegt demand fyrir þessari tengingu, ég hreinlega efast um það.