VoLTE og VoWiFi í OnePlus síma


Höfundur
ecoblaster
Fiktari
Póstar: 85
Skráði sig: Mið 19. Maí 2010 17:58
Reputation: 8
Staða: Tengdur

VoLTE og VoWiFi í OnePlus síma

Pósturaf ecoblaster » Mán 10. Feb 2025 22:47

Ég fékk mér nýlega OnePlus 13 síma en var í vandræðum að fá síman til að tengjast inn á VoLTE og VoWiFi hjá Nova.

Sendi póst til Nova sem svöruðu því að þetta var ekki þeirra megin heldur símtækið sjálft.

Eftir stutt Google leit komst ég að því að OnePlus þarf að "opna fyrir það" í símtækinu samhliða því hjá hvaða farsímafyrirtæki símtækið er að tengjast inn á.

Þar sem mér finnst frekar hæpið að OnePlus muni einhvern tímann í bráð koma með uppfærslu til að opna fyrir þetta í þessum síma ákvað ég að leysa úr þessu sjálfur og fann lausn á þessu þannig hérna eru leiðbeiningar hvernig á að fá OnePlus 13 til að tengjast inn á VoLTE og VoWiFi án þessa þurfa root-a símann.

---- Þeir sem vilja prófa þetta gera það á sinni eigin ábyrgð!----

Shizuku aðferðinn

1. Þar sem VoLTE og VoWiFi stillingarnar eru faldar þarf að nota Shizuku, hérna eru leiðbeiningar fyrir það https://shizuku.rikka.app/guide/setup/
2. Vanalega hefur verið nóg að fá stillingarnar upp og virkja VoLTE og VoWiFi þar en þar sem Ísland er ekki inni í þeim löndum sem OnePlus er með opið fyrir það þarf að fara flóknari leið.

Kafaði dýpra ofan í þessa kanínuholu og spurði ChatGPT hvað stjórnar því hvort tækið getur tengst inn á VoLTE og VoWiFi eða ekki.
Svarið sem ég endaði á að fá var að þetta er ákvarðað í MBN skrá: "mcfg_sw.mbn" sem er í símtækinu:

What is an MBN File in Relation to Wi-Fi Calling?
An MBN (Modem Binary) file is a configuration file used by Qualcomm modems to define network-related settings. It includes:
✅ Carrier-specific settings
✅ VoLTE (Voice over LTE) & VoWiFi (Wi-Fi Calling) configurations
✅ Network bands and protocols
✅ APN settings


Breyta MBN skráni

Þessar leiðbeiningar eru skrifaðar með það í huga að þetta er gert í Windows 10/11 tölvu
Gögn sem þarf fyrir þetta:
Qualcomm USB Driver
Platform-Tools
ADB USB drivers
EfsTool með MBN skrána til að skrifa inn í símann
(Þetta upload er með MBN skrá sem ég fann frá Vodafone í Þýskalandi eftir langa leit í gegnum MBN dumbum frá reddit og xda-developers sem virkuðu rétt og opnuðu bæði fyrir VoLTE og VoWiFi)

1. Fyrsta skrefið er að ná ADB samskiptum við OnePlus símann. Til setja það upp þarf að byrja á því að ná í SDK Platform Tools frá Google og vista það t.d undir C:\temp\platform-tools\

2. Tengja símann við tölvuna og hafa símann í "Charge Only " mode

3. Fara í Settings->System&Update->Developer Options í OnePlus símanum. (ef Developer Options er ekki þarna þarf að fara Settings → About device → Tap "Build number" 7 times)

4. Opna cmd og keyra cd C:\temp \platform-tools\ (eða á þann stað sem þú vistaðir platform tools á)

5. Keyra adb devices, færð staðfestingu í síman til að heimila ADB samskipti

6. Vera með device manager opið til að sjá hvort það vantar driver fyrir ADB eða Qualcomm USB Driver, ef það vantar þarf að ná í það og setja það upp

7. Keyra adb reboot ftm, síminn endurræsir sig og á skjánum ætti að birtast kínverskir stafir

8. Keyra ADB shell og síðan þessa skipun: setprop sys.usb.config diag,serial_cdev,rmnet,adb
Ef allt hefur virkaði rétt ætti að birtast eitthvað í líkingu við þetta: Qualcom HS-USB Diagnostics 9091 undir Ports í device manager

Screenshot 2025-02-10 222338.png
Screenshot 2025-02-10 222338.png (14.4 KiB) Skoðað 4104 sinnum


9. Opnan annan cmd glugga og keyra cd yfir á þá slóð sem þú afþjappaðir EfsTool, t.d C:\temp\EfsTools-0.14\

10. Keyra þessa skipun til að staðfesta að EfTools er með samskipti við síman: EfsTools.exe efsInfo
Ef það virkar rétt ætti að koma texti með skilaboð svipuð þessum:
Use serial port 'COM3'
Version: 1, MaxDirectories: 50, MapPathnameLength: 1024, MaxFileSize: 0, MaxFilenameLength: 768, MaxMounts: 36, MaxSymlinkDepth: 0

11. Keyra þessa skipun til að tengjast inn á rétta rót sem MBN skráin er í símanum
EfsTools.exe writeFile -i mcfg_autoselect_by_uim -o /nv/item_files/mcfg/mcfg_autoselect_by_uim

12. Keyra þessa skipun til að uploada MBN skráni yfir í síman:
EfsTools.exe uploadDirectory -i mcfg_sw.mbn -o / -v

Þá ætti að birtast í cmd gluggann runna af afrituninni
Þegar því er lokið ferðu yfir í hinn cmd gluggann með platform-tools opið og keyrir þessa skipun til að endurræsa símann: adb reboot

Ef allt virkaði rétt á síminn að detta bæði inn á VoLTE og VoWiFi núna :D

Hafa þarf samt í huga að þessar lagfæringar gætu tapast næst þegar nýtt system update er keyrt í gegn.

Heimildir sem studdist við til að útbúa þessa lausn:

https://www.reddit.com/r/oneplus/commen ... /?sort=new

https://community.oneplus.com/thread/1284987
Síðast breytt af ecoblaster á Mán 10. Feb 2025 23:31, breytt samtals 7 sinnum.




Viggi
Geek
Póstar: 844
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 137
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: VoLTE og VoWiFi í OnePlus síma

Pósturaf Viggi » Þri 11. Feb 2025 12:32

Ég er með oneplus 12 kínaútgáfuna með global rom og volte virkaði strax hjá mér með nova. Frekar spes.


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


Zeratul
Nýliði
Póstar: 22
Skráði sig: Mán 29. Mar 2010 19:48
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: VoLTE og VoWiFi í OnePlus síma

Pósturaf Zeratul » Lau 28. Feb 2026 16:15

Takk kærlega fyrir þetta innlegg, þú bjargaðir mér alveg með þessu. Ég er einmitt búinn að vera að skoða þræði hér og þar á netinu og það er mjög gott að fá þetta hérna í auðveldum skrefum með réttum skrám og upplýsingum.

Þetta var samt aðeins öðruvísi hjá mér. Ég er með Oneplus 7T Pro með Lineageos og Microg uppsett. Mér tókst ekki að setja símann í ftm mode, hann enduræsti sig alltaf bara í system. Allar aðrar skipanir virkuðu samt og mér tókst að koma skránni yfir í símann og núna get ég hringt í gengum VoLTE. Ég fékk hins vegar ekki VoWIFI eða myndbandssímtöl til að virka með þessu. Ég þarf ekki á því að halda þannig að ég ætla ekki að fikta meira með þetta í bili, verst að ég þarf þá að sleppa öllum uppfærslum eftir þetta(Ég nenni ekki að vera að standa í þessu í hvert skipti sem það koma hugbúnaðaruppfærslur, verst bara með öryggisuppfærslunar en ég er allavega betur settur en á stock android).

Einnig þurfti ég ekki að gera fyrstu skrefin til að geta valið VOLTE stillingarnar í settings í símanum, það var alltaf virkt hjá mér.


Takk aftur, þú bjargaðir mér frá því að þurfa að kaupa nýjan síma þegar ég er með þennan sem er í fínasta lagi og endist vonandi í mörg ár í viðbót.



Skjámynd

audiophile
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1617
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 149
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: VoLTE og VoWiFi í OnePlus síma

Pósturaf audiophile » Lau 28. Feb 2026 18:12

Ég er líka með Oneplus 13 og hann virkar fínt á VoLTE allavega hjá Símanum og Sýn. Þurfti að uppfæra í Android 16 og þá datt allt inn sjálfkrafa.


Have spacesuit. Will travel.


Höfundur
ecoblaster
Fiktari
Póstar: 85
Skráði sig: Mið 19. Maí 2010 17:58
Reputation: 8
Staða: Tengdur

Re: VoLTE og VoWiFi í OnePlus síma

Pósturaf ecoblaster » Lau 28. Feb 2026 22:33

Frábært að heyra að þetta hjálpaði :)

Já lítur út fyrir að support fyrir ísland kom með í Android 16 uppfærslunni fyrir Oneplus 13, ég hef ekki þurft að gera þetta fix eftir að það kom út fyrir VoLTE.

Fyrir VoWiFi hef ég þurft að nota Shizuku og hafa þetta app inni sem er pixel IMS appið keyrt í bakrunni og keyrir scriptu til að virkja VoWiFi eftir að búið að er að virkja Shizuku

https://github.com/vvb2060/Ims/releases/tag/v3.0

nýjasta Android öryggis uppfærslan lokaði fyrir að hægt er að modify-a carrier stillingar í gegnum Pixel IMS appið

https://www.reddit.com/r/GooglePixel/co ... that_adds/