Sydney skrifaði:max567 skrifaði:Ok takk fyrir, en meinaru þá þangað til að batteríið verður ónýtt? eða hversu lengi hægt er að vera í tölvunni?
Bæði.
Rafhlaðan endist skemur og þarf því að hlaða oftar sem stuðlar að fljótari eyðileggingu á henni.
Hérna hefuru rangt fyrir þér , lithium ion rafhlaðan hefur það yfir Ni-MH og Ni-Cd að hún er ekki jafn viðkvæm fyrir óreglulegum hleðslum eða vera hlaðin oft .. hún er líka laus við memory effect , en ljóta hliðin á Li-ion er sú að hún er ónýt eftir 3 ár , það er tímaskali á henni um leið og hún kemur útúr framleiðsluvélinni þá fer henni að hnigna. Þú gætir látið "nýtt li-ion/li-poly" þriggja ára batterípakka í tölvuna þína en mundi bara afkasta 10% á við glæ nýja rafhlöðu úr verksmiðjunni
í raun skemmast þær ekki nema vegna tíma og eða óeðlilegs hitastigs (við mikla afhleðslu eða hitastigs vegna lélegrar hleðslutækni) það munar kanski 10w á straumnotkun þessara véla . og hitastig við auka 10w álag er ekkert að ráði.. og ekkert sem þarf að pæla í í dag
Ástæðan fyrir hnignun vs.X-tíma er sú að innri contactar li-ion cellu kristallast og auka viðnám í cellunum . efnafræðileg ástæða að baki , ekki vegna hleðslu , þetta er vandamál sem ekki ennþá hefur verið greitt úr
Hleðslutæknin sem notuð er í þessum fartölvum í dag kemur nánast í veg fyrir að cellurnar hitni að einhverju ráði , og skemmast því nánast ekkert við hleðslu
PS. Samt væri þetta hárrét hjá þér ef þú hefðir sagt þetta fyrir 3 árum síðan