Mitac ferðatölvurnar

Skjámynd

Höfundur
Rednex
Nörd
Póstar: 147
Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfirði
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Mitac ferðatölvurnar

Pósturaf Rednex » Þri 20. Apr 2004 15:45

Hefur einhver hér reynslu af Mitac ferðatölvunum.

Þær eru á besta verðinu miðað við afl og þar af leiðandi hallast ég að því að þær séu ekki í sama klassa og IBM, Dell.

Heyrist mikið þeim og eru þær oft að bila?


Ef það virkar... ekki laga það !

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3096
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 445
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf hagur » Þri 20. Apr 2004 17:23

Ég á eina Mitac 7521. Hún er gömul, c.a 3 ára núna í sumar.

Hún hefur reynst mér frábærlega, hefur bara alls ekki slegið feilpúst.
Ég þekki til nokkura sem eiga Mitac, og það er samdóma álit að þær bila hreinlega ekki.

Hún getur verið hávær á stundum þó. Hún er með Celeron örgjörva, og með einhverju millibili, þá fer vifta í gang til að kæla hann. Þá heyrist soldið í henni.

Málið er að þessar Mitac vélar er hægt að fá með Non-mobile örgjörvum, þ.e venjulegum desktop útgáfum af örgjörvum. Þetta á reyndar ekkert bara við um Mitac, heldur flesta af þessum ódýrari framleiðendum. Þetta gerir það að verkum að batteríin endast mun skemur og hitamyndun/viftuhávaði er mun meiri, en á móti kemur að þú færð vél sem lítur rosalega vel út á pappír, en hefur þessa fyrrgreindu galla.

Ef þú verslar Mitac vél með alvöru mobile-components, t.d Centrino, þá ættirðu bara að vera í góðum málum held ég.




valur
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Fös 25. Okt 2002 00:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf valur » Þri 20. Apr 2004 19:39

Ég átti einmitt líka Mitac, hún klikkaði aldrei. Hinsvegar var hún svo hávær að ég gat ekki hugsað mér að eiga hana lengur.. þannig ég seldi hana og fékk mér silent desktop. Ef þú ert í svona skóla pakka, þá mæli ég með frekar hægvirkara og hljóðlátara ;)

kv.




Johnson 32
Nörd
Póstar: 126
Skráði sig: Þri 23. Mar 2004 17:08
Reputation: 0
Staðsetning: Atlantshaf
Staða: Ótengdur

Pósturaf Johnson 32 » Þri 20. Apr 2004 20:56

Ég a mitac 8640 og ég mæli alls ekki með henni, batteríð dó eftir 12 mánaða notkun og batterín eru í 6 mánaða ábyrgð þannig ég þarf að punga 17þús fyrir nýtt batteríi annað harðidiskurinn sem er Tohsiba hitnar mjög mikið og verður vélin mjög heit og já hún er mjög hávær. Ég mun ekki kaupa mér Mitac vél þegar ég endurnýji farðtölvuna mína.



Skjámynd

Höfundur
Rednex
Nörd
Póstar: 147
Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfirði
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rednex » Þri 20. Apr 2004 21:07

Ég er að pæla í Centrion dæminu, 109.900 kr!! án stýrikerfis (who cares, mér er illa við XP svo að ég myndi hvort eð er skella Linux eða win2000 á hana) Batterýin ættu að endast þá.

Ég fer bara niður eftir í Task.is eða Hugver og fæ að kíkja á þær/hana


Ef það virkar... ekki laga það !

Skjámynd

Nemesis
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Mið 29. Okt 2003 01:46
Reputation: 1
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Nemesis » Þri 20. Apr 2004 21:09

Mér finnst að maður ætti að fá reynsluakstur á ferðatölvur alveg eins og bíla ;)



Skjámynd

Demon
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 365
Skráði sig: Þri 20. Jan 2004 20:13
Reputation: 10
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf Demon » Þri 20. Apr 2004 22:01

Johnson 32 skrifaði:Ég a mitac 8640 og ég mæli alls ekki með henni, batteríð dó eftir 12 mánaða notkun og batterín eru í 6 mánaða ábyrgð þannig ég þarf að punga 17þús fyrir nýtt batteríi annað harðidiskurinn sem er Tohsiba hitnar mjög mikið og verður vélin mjög heit og já hún er mjög hávær. Ég mun ekki kaupa mér Mitac vél þegar ég endurnýji farðtölvuna mína.


Jamm, ég þekki þrjá sem eiga held ég bara sömu vél og þú.
Aðeins einn af þeim hefur komist hjá því að lenda í vandræðum.
Geisladrifið bilaði hjá öðrum, síðan var það batteríið, síðan minnið
Hin tölvan þá var það eitthvað með skjáinn :roll:

En já, þessar eru háværar, en mín er ennþá háværari...
Ace Go (eitthver tala)
Keypt í tölvulistanum aðallega vegna þess að þá var hún eina tölvan með Ati Radeon 9000 korti fyrir utan Dell sem mér þótti aðeins of dýr.

En já hún er með non-mobile örgjörva og er mjög hröð en helst til of hávær! :roll:




Hlynzit
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 390
Skráði sig: Mið 12. Nóv 2003 21:32
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk city baby yeahh
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzit » Þri 20. Apr 2004 23:01

systir mín á eina svona, hún er þrælfín.


Þessi blái karl þarna er Sonic
http://www.hlynzi.com

Skjámynd

Mal3
Nörd
Póstar: 109
Skráði sig: Mán 23. Jún 2003 10:49
Reputation: 0
Staðsetning: 101
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Mal3 » Sun 25. Apr 2004 23:36

Johnson 32 skrifaði:Ég a mitac 8640 og ég mæli alls ekki með henni, batteríð dó eftir 12 mánaða notkun og batterín eru í 6 mánaða ábyrgð þannig ég þarf að punga 17þús fyrir nýtt batteríi annað harðidiskurinn sem er Tohsiba hitnar mjög mikið og verður vélin mjög heit og já hún er mjög hávær. Ég mun ekki kaupa mér Mitac vél þegar ég endurnýji farðtölvuna mína.


Smá thread hijack: ég held að það sé Toshiba diskur í fartölvunni minni og ég verð var við nokkurn hita, sérstaklega undir mikilli diskvinnslu. Er einhver tegund af diskum sem eru betri að þessu leyti? Eru þessir Toshiba diskar ekki ágætir að öðru leyti?

Ég býst ekki við að fara út í diskskipti á vélinni, þó ég muni líklega eiga hana lengi, en hverju mælir fólk með þegar kemur að fartölvu HDD?




ParaNoiD
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 307
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 21:08
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ParaNoiD » Þri 01. Jún 2004 11:03

12 mánaða rafhlöðuending telst því miður eðlilegt.
en 17 þús fyrir rafhlöðu?

gerðu samanburð ég held að þú komist að því að það sé ekkert mjög dýrt miðað við marga aðra hérna heima.

ég á sjálfur 8640 og er alveg yfir mig ánægður með hana ... jú jú það heyrist aðeins í henni en það er alveg í lagi þar sem þessi vél er slatta öflug og það má alveg gera ráð fyrir að það heyrist eitthvað í þessu.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1780
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Þri 01. Jún 2004 12:54

ég á mitac 7020 sem ég er búinn að eiga núna í 4 ár. p3 600 mhz var einu sinni massagripur. er með 8 mb skjákorti sem þótti gríðalega flott þá.

ég nota hana ennþá. þótt batterýið sem löngu orðið ónýtt, reyndi einu sinni að gefa því "shock" til að endurlífga það. virkaði því miður ekki.

skjárinn á það til að detta út meðan hún er köld en auðveld að kveikja á honum aftur með að kveikja og slökkva á skjánum nokkrum sinnum.

geisladrifið er orðið mjög picky á suma diska. og á það til að virka ekki stundum.

ég samt mæli eindregið með Mitac :8) samt ekki kaupa þér tölvu með desktop Örgjörfa.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16279
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1998
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Þri 01. Jún 2004 16:02

Rednex skrifaði:Ég er að pæla í Centrion dæminu, 109.900 kr!! án stýrikerfis

Hvar fæst þetta?




ParaNoiD
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 307
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 21:08
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ParaNoiD » Mið 02. Jún 2004 00:33

ég veit bara að Mitac Centrino kostar 114,900 í Hugver án stýrikerfis




corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Pósturaf corflame » Mið 02. Jún 2004 18:04

ParaNoiD skrifaði:12 mánaða rafhlöðuending telst því miður eðlilegt.


Ég sé ekkert eðlilegt við 12 mán endingu, rafhlaðan í minni HP vél dugar fínt ennþá eftir tæp 2 ár. Tek reyndar fram að ég keypti "top of the line" vélina enda dugir hún ágætlega ennþá og kemur væntanlega til með að gera það þar til ég klára skólann.



Skjámynd

Höfundur
Rednex
Nörd
Póstar: 147
Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfirði
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rednex » Fös 04. Jún 2004 00:29

Mitac vélarnar fást einnig í Task.is
http://www.task.is/Scripts/prodList.asp?idCategory=150


Ef það virkar... ekki laga það !