Að kaupa góða fartölvu


Höfundur
reyndar
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Fim 02. Maí 2013 15:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf reyndar » Fös 03. Maí 2013 18:23

Nú ætlar pabbi minn að kaupa sér fartölvu. Hann gerir ekkert annað en að vafra um á netinu og skoða tölvupóstinn sinn, heimabanki og svo framvegis. Hann langar að kaupa vél á 70 þús (B vara, sýningavél). En mér lýst illa á það vegna þess að bæði ég og litla systir mín ódýrar basic tölvur (undir 100þús 500gb diskur, 1,4 ghz og svo framvegis) Bara mjög basic og ætti að duga vel fyrir vefráp EN nú eru tölvurnar okkar beggja (báðar innan við 2 ára) orðnar fullar af ryki og drepa á sér nema ég setji undir tölvuna vhs hulstur til að hún nái að kæla sig.

Basicly vil ég ekki að pabbi minn brenni sig á því að kaupa sér tölvu sem endist ekki neitt og er ódýr þannig að ég vil ráðleggja honum að kaupa MacBook pro. hann hefur í sjálfu sér ekkert við hana að gera en hún endist og endist og er mjög góð. Amk væri það vélin sem ég myndi kaupa. Ég vil eiga tölvu sem ég get legið með uppi í rúmi (ég veit að það er bannað) en það er t.d hægt á mac. Allir í kring um mig hafa svo brjálað góða reynslu af mac en allir sem hafa farið á dílinn sem ég valdi s.s ódýr og bara það sem maður þarf eru allir ósáttir við að hafa ekki keypt eitthvað dýrara.

Hvað segið þið, á ég ekki að plata kallinn til að kaupa þessa: http://www.epli.is/tolvur/macbookpro/ma ... hz-i5.html ?

Mynduð þið ráðleggja að bæta einhverju við hana? Það eru þarna möguleikar á einhverjum stækkunum. Eða ætti ég að fara ofar í gæðum eða hvað segið þið?




steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf steinarorri » Lau 04. Maí 2013 13:49

Það er náttúrulega ekkert að því að rykhreinsa tölvuna sína endrum og sinnum ;)
Algjör óþarfi að fara í rándýra macbook pro fyrir basic vefráp




littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2377
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 148
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf littli-Jake » Lau 04. Maí 2013 18:34

70K er leiðinlega lítið fyrir vél sem á að endast eitthvað nema náttúrulega að þú kaupir B vöru eða notað. En það er alveg út í hött að láta kallinn kaupa einhvern 200K maca til að skoða tölvupóstinn sinn. Það er næstum þreföldun á budget. 100K fartölva er svona sirka það sem hann ætti að vera að miða á. T.d. http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=2022

Ef að hann er virkilega bara í að browsa mbl og skoða tölvupóst er þá ekki spjaldtölva rétta svaið? Það er til alveg slatti af ágætis spjaldtölvum á þessu verði og þá er ég ekki bara að hugsa um Ipad.

Beilaðu á þessum maca pælingum. Þær meika ekkert sens miðað við verð vs. tilvonandi notkun.

PS. Láttu rykhreinsa fartölvuna þína. Æskilegt að gera það á árs til 18 mánaða fresti.


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180


Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf Bjosep » Lau 04. Maí 2013 19:06

Ending tækja ræðst ekki bara af gæðum heldur einnig af meðferð þeirra. Flestar fartölvur sem ég veit um eru mikið á ferðinni og endast eftir því. Fartölvur sem ferðast minna endast alveg merkilega vel.



Skjámynd

tveirmetrar
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Mar 2012 15:41
Reputation: 18
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf tveirmetrar » Lau 04. Maí 2013 19:16

viewtopic.php?f=11&t=54830

Þetta væri að kaupa góða fartölvu ;)
Er eins og ný.


Hardware perri


skoffin
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Mán 31. Jan 2011 20:21
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf skoffin » Lau 04. Maí 2013 19:20



...hún er meira að segja bleik. Skella á hana 2-3 hello kitty límmiðum og kallinn hlýtur að vera sáttur.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf AntiTrust » Lau 04. Maí 2013 19:21

Myndi mæla með því að hækka budgetið aðeins og skoða ódýrar Lenovo/Thinkpad línur. Hægt að fá fínar IdeaPad og ThinkPad EDGE vélar á 110-140þús, m.a. hjá Nýherja.

Ef hann vill halda sig í sub 100k skalanum þá er hægt að fá fína Lenovo Essentials vélar, myndi þó ekki stóla á meiri gæði þar en í öðrum vélum. Acer vélarnar hafa líka skánað mikið undanfarin ár og eru orðnar þokkalega solid.




littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2377
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 148
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Ótengdur

Re: Að kaupa góða fartölvu

Pósturaf littli-Jake » Mán 06. Maí 2013 16:46

skoffin skrifaði:


...hún er meira að segja bleik. Skella á hana 2-3 hello kitty límmiðum og kallinn hlýtur að vera sáttur.


Að sjálfsögðu. Það er náttúrulega ekki minsti möguleiki að IdeaPad U310 sé framleidd í nema einum lit....


i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180