Síða 1 af 1

Örbylgjuloftnet

Sent: Þri 20. Apr 2021 04:51
af jonfr1900
Ég ætla að benda á að það er fullt af örbylgjuloftnetum sem eru ennþá tengd á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Í dag eru þessi loftnet eingöngu að trufla farsímasamband á 2600Mhz tíðnisviðinu sem er núna notað fyrir 4G og 5G farsímasamband.

Póst og Fjarskiptastofnun er með vefsíðu um þetta.

Truflanir á farsímasambandi (Fjarskiptastofa)

Breytt. Tengill endurnýjaður. Einnig ætla ég að benda á það að örbylgjuloftnet færa niður tíðnina frá 2600Mhz niður á 474Mhz til 855Mhz bandið eða niður á 231Mhz til 447Mhz og geta því truflað fjarskipti á þeim tíðniböndum (talstöðvar, Tetra og fleira).

Re: Örbylgjuloftnet

Sent: Fös 29. Mar 2024 03:50
af jonfr1900
Uppfærði þetta aðeins. Þar sem ég held að þetta sé ennþá vandamál á höfuðborgarsvæðinu á ákveðnum svæðum.