Síða 1 af 1

S22 ultra

Sent: Fim 03. Mar 2022 13:50
af Bengal
Er á forpöntunarlista hjá vodafone en þeir hafa ekki fengið neinar upplýsingar frá birgja hvenær næsta sending kemur.

Einhver sem veit meira? :droolboy

Re: S22 ultra

Sent: Fim 03. Mar 2022 14:12
af Thorio
Þetta á við víst um alla S22 línuna. Fékk tölvupóst um að seinkun hafi orðið á innflutningi (bíð eftir S22+).

Tæknivörur/Samsung mobile á Íslandi eru með lista yfir áætluð afhendingu forseldra tækja sem hægt er að fylgjast með.
https://samsungmobile.is/forsala/s22_forsala/

Re: S22 ultra

Sent: Fim 03. Mar 2022 17:00
af mercury
Keypti 22 ultra 256gb í gegnum nova og fékk hann fyrir amk viku.

Re: S22 ultra

Sent: Fös 04. Mar 2022 17:10
af Bengal
mercury skrifaði:Keypti 22 ultra 256gb í gegnum nova og fékk hann fyrir amk viku.

Ok, hvenær lagðiru inn forpöntun?

Re: S22 ultra

Sent: Þri 08. Mar 2022 10:33
af nidur
Flott að forpanta síma og vera svo bara í limbói í margar vikur eftir að fá hann.

Re: S22 ultra

Sent: Þri 08. Mar 2022 12:38
af mercury
Bengal skrifaði:
mercury skrifaði:Keypti 22 ultra 256gb í gegnum nova og fékk hann fyrir amk viku.

Ok, hvenær lagðiru inn forpöntun?
daginn sem það var hægt ef ég man rétt

Re: S22 ultra

Sent: Þri 08. Mar 2022 14:09
af wicket
Miðað við svörin sem ég fékk hjá Símanum eru forpantanir afgreiddar í þeirri röð sem þær voru pantaðar. Hefur lítið komið inn af þeim tækjum sem við pöntuðum í forsölunni fyrir nokkra starfsmenn hjá okkur.

Þetta var líka svona með síðasta iPhone sem kom, þá voru sumar týpur lengur að koma en aðrar. Virðist eins og þá vera global vandamál.

Re: S22 ultra

Sent: Þri 08. Mar 2022 16:18
af Bengal
Ég pantaði 16.feb og fékk símann afhentan loksins í dag.

Hvað eruð þið að fá fyrir gamla tækið ef þið setjið það uppí?

Re: S22 ultra

Sent: Mið 23. Mar 2022 22:08
af nidur
Það væri helvíti gaman að fá símann mánuði eftir afhendingartímann.