Síða 1 af 1

NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Sun 26. Jún 2022 16:29
af littli-Jake
Er búinn að prófa 3 mismunandi posa yfir helgina og síminn neitar að borga.
Búinn að restarta síma og kveikja og slökva a NFC.

Er eitthvað annað sem ég get gert?

Btw. Fékk að skila Note 9 hjá Mii þvi þetta hætti líka að virka í honum

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Sun 26. Jún 2022 18:24
af Viggi
Ertu að nota nfc til að borga með símanum? Búinn að festa borgunar appið?

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Mán 27. Jún 2022 10:42
af gnarr
Ertu mögulega með kveikt á developer mode eða með slökkt á NFC í developer mode?

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Mán 27. Jún 2022 12:50
af Minuz1
Prófa að nota nfc'ið til að tengjast öðrum síma?
Er eitthvað viðbragð eða er eins og það er dautt á símanum?

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Fim 14. Júl 2022 16:44
af netkaffi
Bara fyrir firvitnissakir, Hvað ertu búinn að nota símann lengi? Hvað segir google frændi?

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Fös 15. Júl 2022 13:16
af talkabout
Ég var að lenda í því sama núna með OnePlus Nord 5g. Kom stór uppfærsla í Android 12 og get ekki lengur notað NFC til að borga, búinn að tékka á öllum stillingum og sé ekki að neitt vanti. ÓÞOLANDI að þurfa að vera með kort í vasanum aftur... Gúgl frændi skilar engu. Maður þarf kannski bara að skipta í eitthvað öruggt eins og Samsung aftur... ](*,)

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Fös 15. Júl 2022 13:27
af zurien
talkabout skrifaði:Ég var að lenda í því sama núna með OnePlus Nord 5g. Kom stór uppfærsla í Android 12 og get ekki lengur notað NFC til að borga, búinn að tékka á öllum stillingum og sé ekki að neitt vanti. ÓÞOLANDI að þurfa að vera með kort í vasanum aftur... Gúgl frændi skilar engu. Maður þarf kannski bara að skipta í eitthvað öruggt eins og Samsung aftur... ](*,)


Er akkúrat að lenda í því sama með OnePlus 8 eftir að hafa fengið Android 12, gjörsamlega óþolandi.

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Fös 15. Júl 2022 16:45
af urban
Ég er með sama síma, lendi öðru hverju í því að NFC vill bara ekki virka til að borga með korti, þurfti þá að fara inní "Kort" appið og velja kortið aftur til að það virkaði aftur, eða hreinlega restarta símanum.
Virkar á sama tíma fínnt til að tengjast t.d. headsetti.
Ég semsagt tengi þetta frekar við appið hjá landbankanum og að það sé ekki að virka rétt með android 12 en síminn sjálfur.

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Lau 16. Júl 2022 17:05
af hfwf
Long shot, en nfc hætti að virka hjá mér því ég var að nota forrit sem blokkaði ads , og þal blokkaði það sum öpp sem notast við NFC.
leið og ég henti því út og með því slökknaði á vpn tenginu þá virkaði appið og nfc aftur.

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Lau 16. Júl 2022 22:56
af littli-Jake
Kom í ljós hjá mér að isb appið var vandamálið. Þurfti að hreinsa kortin út og virkja upp á nýtt.

Re: NFC dottið út í Redmi note 10

Sent: Sun 17. Júl 2022 13:56
af Póstkassi
Hef mikið verið að lenda í þessu á mínum Pixel 4XL með Íslandsbankaappið, virkar að henda appinu út og setja upp upp á nýtt, en þetta er að gerast 2-3x í mánuði og er ekki alveg að nenna að setja appið upp þegar ég er við það að borga...