iPhone 14 ekki með sim kort stuðning (bara í Bandaríkjunum?)


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2348
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

iPhone 14 ekki með sim kort stuðning (bara í Bandaríkjunum?)

Pósturaf jonfr1900 » Mið 07. Sep 2022 23:34

Nýi iPhone 14 verður ekki með sim korta stuðning fyrir eintök sem eru framleidd í Bandaríkjunum. Þetta mun gera Apple fært að loka símanum fyrir öðrum mörkuðum, eitthvað sem er illa hægt að gera á ólæstum símum með venjuleg sim kort.

Apple Removes SIM Card Tray on All iPhone 14 Models in U.S. (MacRumors)

Find wireless carriers that offer eSIM service (Síminn er skráður en ég hef ekki fundið ennþá önnur íslensk fjarskiptafyrirtæki)



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1244
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: iPhone 14 ekki með sim kort stuðning (bara í Bandaríkjunum?)

Pósturaf Njall_L » Fim 08. Sep 2022 09:26

eSIM væðing hérlendis virðist stoppa á Auðkenni að mestu þar sem Rafræn Skilríki virka ekki með eSIM og það er vissulega eitthvað sem lang flestir (ef ekki allir) símanotendur þurfa að hafa virkt á aðalnúmerinu hjá sér.
https://support.nova.is/hc/is/articles/ ... C3%ADmann-

Enn sem komið er er Auðkennis appið alls ekki nægilega góð lausn til að taka við af SIM rafrænu skilríkjunum en þetta verður vonandi til þess að Auðkenni fari að drífa út lausn.

Mér finnst þetta samt tæknilega mjög flott skref og alveg tímabært aðallega vegna þess hversu hátt hlutfall af rúmmáli síma fer í SIM kort, rúmmál sem mætti vel nota í annað í þétt-pökkuðu tæki.


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 973
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: iPhone 14 ekki með sim kort stuðning (bara í Bandaríkjunum?)

Pósturaf Jón Ragnar » Fim 08. Sep 2022 10:41

Þetta á bara við síma sem eru SELDIR í USA.

EU / Canada ofl eru með sim tray



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 175
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: iPhone 14 ekki með sim kort stuðning (bara í Bandaríkjunum?)

Pósturaf russi » Fim 08. Sep 2022 13:00

Auðkennis appið er nú bara fínt og hefur ekki klikkað hingað til hjá mér.
Það sem vantar fyrir það er að fleiri innleiða það.

Fyrir mér er rafræn skilríki afsökun fyrir að innleiða ekki eSIM ein sú allra slakasta afsökun sem ég hef heyrt, fyrirsláttur fyrir að innleiða þetta þar sem því fylgir leyfisgjöld




darkppl
Gúrú
Póstar: 543
Skráði sig: Mán 12. Júl 2010 21:40
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: iPhone 14 ekki með sim kort stuðning (bara í Bandaríkjunum?)

Pósturaf darkppl » Fös 09. Sep 2022 15:59

Nova Segja allanvegana að þeir eru að bíða eftir Auðkenni að leyfa fólki að fá að nota eSim

Sem að mínu mati er mjög léleg afsökun er með eitt aðalkort með rafrænum skílríkjum þarf ekki þau á auka númer.

Býst við að vodafone er með sömu svör

Síminn er hinsvegar kominn með eSim stuðning


I7-8700K|Corsair H-150i|Asus Maximus X Hero (Wifi) |32GB G.Skill Tridend Z RGB|GTX 1080ti |
Coolermaster Mastercase 5|