Síða 1 af 2

Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 16:58
af GuðjónR
Og þykir þetta bara eðlilegt?

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 17:02
af Snaevar
Mér skilst að nánast allir sem selja iPhone á Íslandi eru að selja þá á kostnaðarverði, eins lágt og verslanirnar geta mögulega verðsett þá. Allavega hef ég heyrt það frá vinum í bransanum. Ef svigrúm væri til að bjóða betri kjör þá væri það löngu búið og gert myndi ég halda þar sem allir v.v. myndu fara rakleiðis þangað. En hvað veit ég.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 17:10
af Trihard
Macland voru reyndar með hann á 239.990 kr. í forsölu í smá tíma.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 17:11
af GuðjónR
Snaevar skrifaði:Mér skilst að nánast allir sem selja iPhone á Íslandi eru að selja þá á kostnaðarverði, eins lágt og verslanirnar geta mögulega verðsett þá. Allavega hef ég heyrt það frá vinum í bransanum. Ef svigrúm væri til að bjóða betri kjör þá væri það löngu búið og gert myndi ég halda þar sem allir v.v. myndu fara rakleiðis þangað. En hvað veit ég.

Ég fæ 10% afslátt hjá Nova þannig að eitthvað er svigrúmið. +2 ár í ábyrgð þó það sé fyrirtæki.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 19:12
af Mossi__
5 krónur eru alveg 5 krónur.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 19:26
af audiophile
Svona er þetta þegar sami innflutningsaðili selur til allra endursöluaðilanna. Það er alveg sama sagan með Samsung síma. Heildsölurnar í raun ákveða verðið. Auðvitað er þá engin samkeppni því enginn vill borga með þessu.

Ég myndi ekki hika við að taka þennan 10% afslátt hjá Nova ef þeir eru að bjóða þér það. Færð það hvergi annarsstaðar og þeir fá ekki krónu í vasann fyrir þá sölu heldur gegnum þjónustur sem þú ert væntanlega með í áskrift hjá þeim.

Held að algeng álagning á símum sé á bilinu 5-10%.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 19:34
af worghal
audiophile skrifaði:Held að algeng álagning á símum sé á bilinu 5-10%.

held að það sé nærri 10-15%

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 19:56
af rickyhien
:P það vilja allir að verslanir koma með lægsta verð og svo 10-20% afsl af því að þau versla svo mikið hjá þeim..þess vegna eru svo margar verslanir sem setja himinhá verð til að geta gefið viðskiptavinum "afslátt" xD

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 20:48
af Semboy
Vera í samning við þá https://www.elkogroup.com, Ég er 95% viss elko kaupir vörurnar af þeim. Ég veit ekki um vodafone og hina.
Ég mundi giska þau fá sirka 30% afslátt fyrir þennan iphone síma.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 20:55
af rickyhien
Semboy skrifaði:Vera í samning við þá https://www.elkogroup.com, Ég er 95% viss elko kaupir vörurnar af þeim. Ég veit ekki um vodafone og hina.
Ég mundi giska þau fá sirka 30% afslátt fyrir þennan iphone síma.


nei Elko er að kaupa þetta frá Epli :D stundum SRX
annars er úrvalið mikið frá elkjop.no

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 20:56
af Hizzman
þessi sími kostar 221þ í þýskalandi eftir leiðréttingu v. vsk (1449 evrur)

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 21:01
af Semboy
rickyhien skrifaði:
Semboy skrifaði:Vera í samning við þá https://www.elkogroup.com, Ég er 95% viss elko kaupir vörurnar af þeim. Ég veit ekki um vodafone og hina.
Ég mundi giska þau fá sirka 30% afslátt fyrir þennan iphone síma.


nei Elko er að kaupa þetta frá Epli :D stundum SRX
annars er úrvalið mikið frá elkjop.no


Ég kemst að þessu ámorgun.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 22:33
af Sinnumtveir
Þetta er ekki flókið: Ef spurningin er Apple? Ef spurningin er Samsung? Þá er svarið rétt og slétt NEI!

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Mið 04. Okt 2023 22:42
af agnarkb
Hef alveg verið út úr lúppunni með high end síma í nokkur ár núna en damn.........kvartmilljón fyrir síma? :shock:

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fim 05. Okt 2023 06:05
af mikkimás
agnarkb skrifaði:Hef alveg verið út úr lúppunni með high end síma í nokkur ár núna en damn.........kvartmilljón fyrir síma? :shock:

Screenshot 2023-10-05 060448.png
Screenshot 2023-10-05 060448.png (84.39 KiB) Skoðað 3756 sinnum

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fim 05. Okt 2023 11:19
af Moldvarpan
Og ég með 5 ára gamlann budget android síma :roll:

Drullufínn ennþá.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fim 05. Okt 2023 18:53
af Semboy
rickyhien skrifaði:
Semboy skrifaði:Vera í samning við þá https://www.elkogroup.com, Ég er 95% viss elko kaupir vörurnar af þeim. Ég veit ekki um vodafone og hina.
Ég mundi giska þau fá sirka 30% afslátt fyrir þennan iphone síma.


nei Elko er að kaupa þetta frá Epli :D stundum SRX
annars er úrvalið mikið frá elkjop.no


Samkvæmt félaga minn sem er með samning við elkogroup. Hann segir elkogroup sé keðjan fyrir öll elko búðir um allan heim.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fim 05. Okt 2023 19:15
af Hausinn
Moldvarpan skrifaði:Og ég með 5 ára gamlann budget android síma :roll:

Drullufínn ennþá.

Er sjálfur með Galaxy S9+ sem ég fékk notaðan fyrir svona 3 árum síðan á 30þús. Virkar fullkomnlega og gerir allt sem þarf. Mun aldrei alveg skilja þessa dellu varðandi það að vera með nýjasta símann.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fim 05. Okt 2023 19:28
af rapport
Er með S10 lite úr S8 úr S6 úr S3 úr S2 úr optimus one...

Var reyndar með drulluskemmtilegan Motorola milli S8 og S10lite en myndavélin tók lélegri myndir en S6 þrátt fyrir hærri upplausn.

Að kveikja vasaljósið með því að hrista símann var uppáhalds featureið

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fim 05. Okt 2023 21:10
af benony13
Semboy skrifaði:
rickyhien skrifaði:
Semboy skrifaði:Vera í samning við þá https://www.elkogroup.com, Ég er 95% viss elko kaupir vörurnar af þeim. Ég veit ekki um vodafone og hina.
Ég mundi giska þau fá sirka 30% afslátt fyrir þennan iphone síma.


nei Elko er að kaupa þetta frá Epli :D stundum SRX
annars er úrvalið mikið frá elkjop.no


Samkvæmt félaga minn sem er með samning við elkogroup. Hann segir elkogroup sé keðjan fyrir öll elko búðir um allan heim.


Þessi gaur vinnur hjá Elko…
En skakkiturn (epli) er með markaðinn á Íslandi

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fim 05. Okt 2023 22:13
af russi
Apple ákveður þessi verð og svigrúmið þar er ekkert.
Þetta er t.d svipað með Nintendo.
Ef seljandi fer eitthvað út fyrir þessi verð á hann á hættu að fá ekki selja búnaðin, samkeppni kemur þessu því afskaplega litið við. Fyrir utan það að álagning á þessu er ótrúlega lág

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fös 06. Okt 2023 11:19
af cocacola123
Fyrirtækin græða mjög lítið á farsímasölu.
Einblína miklu meira á aukahluti, áskriftir og tryggingar með símanum þegar hann er seldur.
Þar liggur gróðinn frekar.

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fös 06. Okt 2023 11:29
af GuðjónR
cocacola123 skrifaði:Fyrirtækin græða mjög lítið á farsímasölu.
Einblína miklu meira á aukahluti, áskriftir og tryggingar með símanum þegar hann er seldur.
Þar liggur gróðinn frekar.


Já það er satt, iPhone er alveg að setja Apple á hausinn það er svo lítil framlegð af farsímasölu. :guy

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fös 06. Okt 2023 11:59
af cocacola123
GuðjónR skrifaði:
cocacola123 skrifaði:Fyrirtækin græða mjög lítið á farsímasölu.
Einblína miklu meira á aukahluti, áskriftir og tryggingar með símanum þegar hann er seldur.
Þar liggur gróðinn frekar.


Já það er satt, iPhone er alveg að setja Apple á hausinn það er svo lítil framlegð af farsímasölu. :guy


Hahaha þá á ég vissulega við búðirnar hérna á íslandi.
Álagningin hjá apple er væntanlega helvíti góð \:D/

Re: Brjáluð samkeppni !!!

Sent: Fös 06. Okt 2023 19:06
af Viktor
Apple utilizes a minimum advertised price, or MAP, retail strategy. This strategy prevents retailers from pricing their Apple products below the MAP.

By ensuring the price for Apple products never drop below a specific price, Apple can maintain their product popularity. The minimum advertised price enables Apple to keep its distribution channels clear while ensuring their profits do not see a decrease. All this lends a hand to keeping Steve Job’s original strategy in place, creating premier products that sell for premium prices. After launching its products, Apple is known to discontinue its previous catalogue.

This strategy ensures that customers do not switch to its old devices due to a price drop. Maintaining the price spectrum it offers to its customers is a core strategy of the company, and doing so also ensures the sale of its new product line.