Benzmann skrifaði:Ef ég man rétt, þá eru neytendalög þannig að söluaðili hefur 3 tilraunir til að laga / gera við gallaða vöru innan ábyrgðartímans, sem er 2ár á raftækjum til einstaklinga.
Ef sami galli er enn til staðar eftir 3 tilraunir og ekki tekist að lagfæra tækið, þá á kaupandi rétt á nýju tæki eða fulla endurgreiðslu.
Ég myndi alltaf mæla með að biðja um fulla endurgreiðslu frekar en nýtt tæki.
Ef söluaðili lætur kaupanda fá nýtt tæki, þá endurnýjast ábyrgðin ekki þótt tækinu hafi verið skipt út fyrir nýtt.
Ábyrgðin er 2 ár frá söludagssetningu á upprunalega reikninginum.
Þannig að það er alltaf best að biðja um að fá fulla endurgreiðslu, og fara svo og versla sér nýtt tæki
Því þá ertu kominn með nýjan sölu reikning / nótu, og ert með 2ára ábyrgð á tækinu.
En einnig mæli ég alltaf með að kaupandi leiti sér ráðgjafar hjá Neytendasamtökunum.
Þeir geta svarað öllum þínum spurningum, og þrýst á söluaðila
Aðillinn sem hér um ræðir keypti 5 ára ábyrgð.
Svo eru stór raftæki með 5 ára ábyrgð, svokölluð hvítvara sem á að duga til lengri tíma.
Elko er bara algjört sorp þegar kemur að því að virða neytendalögin hér á landi.
Það vantar að slíkt framferði endi með sviptingu á viðskiptaréttindum.