ELKO neitar 5 ára ábyrgð á 250.000 kr. Roborock + "SMS fúsk"

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17209
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2369
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ELKO neitar 5 ára ábyrgð á 250.000 kr. Roborock + "SMS fúsk"

Pósturaf GuðjónR » Sun 01. Feb 2026 21:22

Gemini skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Það eina jákvæða við Elko er 30 daga skilarétturinn. Ef mig vantar tæki kaupi ég það þar og prófa í 30 daga. Ef mér líkar það ekki skila ég því og fæ endurgreitt. Ef mér líkar það skila ég því samt og kaupi annars staðar þar sem ábyrgðir, neytendaréttur og landslög eru virt.


Það er next level! Kannski ef þetta er stórt og mikið tæki væri samt einfaldara bara að eiga tilbúið copy/paste erindi til kærunefndarinnar. \:D/


Hehehe, ég var nú stórlega að ýkja, en eins og maðurinn sagði; góð saga á aldrei að gjalda sannleikans!




agust1337
Gúrú
Póstar: 575
Skráði sig: Mán 20. Sep 2010 22:31
Reputation: 63
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ELKO neitar 5 ára ábyrgð á 250.000 kr. Roborock + "SMS fúsk"

Pósturaf agust1337 » Sun 01. Feb 2026 23:53

Moldvarpan skrifaði:
agust1337 skrifaði:Merkilegt, ég á Roborock s8 maxV ultra hefur aldrei lent í því að hann hafi bilað, hann að meira segja vogaði sér að reyna að þrífa upp hundaskít sem endaði með því að allt gólfið varð að því og hann sjálfur, hann er þó aðeins 1.5 ára


Blíða dæmið maður.... komandi heim og búið að dreifa hundaskít um öll gólf. Þá hefði ég nú tekið robotinn og hent honum í gólfið.

En eru þessir ryksuguróbots að gagnast ykkur? Þarf maður ekki að vera með soldið OCD,,, engin föt á gólfum, engar snúrur og erfitt örugglega með mörgum dýrum. Mér fannst og finnst þetta vera bara gimmick, tekur mann 10min að renna yfir alla íbúðina með nilfisk.


Fyrir utan þetta eina skiptið þá nei, ekki svo, en maður þarf samt að sýna því smá viðhaldi, sérstaklega ef maður er umkringdur fólki með löngu hári... 2 dætur og kona, þetta er fljótt að vefjast um allt sem snýst haha, en já hann hefur verið mjög flottur, ekkert sem ég get kvartað yfir sko. Hann veit alveg hvað hann getur farið yfir og ekki, þó eru einstaka skipti sem hann flækist í einhverri snúru en ekkert all oft. Mér alla vegna finnst þetta mjög þægilegt.


What ever you do, what ever you think you can do, there'll always be an Asian who's better than you.


Meso
Ofur-Nörd
Póstar: 204
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Reputation: 3
Staðsetning: Ak City
Staða: Ótengdur

Re: ELKO neitar 5 ára ábyrgð á 250.000 kr. Roborock + "SMS fúsk"

Pósturaf Meso » Mán 02. Feb 2026 09:23

Algjörlega glatað að Elko vilji ekkert gera.
En annars hef ég mjög góða reynslu af Roborock, erum með S7 Max í vinnunni sem er kominn upp í 54km2 & 1100 klst og er enn á fullu daglega.
Er með S8 MaxV heima, alger snilldar græja, eina sem ég þarf að passa eru snúrur, hann á það til að flækja sig í þeim ef þær liggja út á gólf.




playman
Vaktari
Póstar: 2049
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 82
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: ELKO neitar 5 ára ábyrgð á 250.000 kr. Roborock + "SMS fúsk"

Pósturaf playman » Þri 03. Feb 2026 15:26

Er ekki í lögum að þeim varahlut sem að skipt er út að hann öðlist 2 ára ábyrgð að nýju,en ekki allt tækið, en sé öllu
tækinu skipt út og þér afhent nýtt þá öðlast nýja tækið nýja 2 ára ábyrgð, eins ef að tæki þarfnast
sömu viðgerðar í þriðja sinn innan ábyrgðatíma þá eigi kaupandi rétt á að skila tækinu, fá endurgreitt eða sambærilegt tæki.


CPU: Intel Core i7-14700KF Icosa Core @ 3.4GHz RAM:32GB DDR5 6000MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
SSD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z790 Eagle AX GPU: NVIDIA RTX 3070Ti 8Gb
[Main screen:]LG UltraGear 32GP850-B 32" QHD nano-IPS [Secondary screen:] BenQ GW2455 - 24" 16:9 [Tertiary Screen:] BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17209
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2369
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ELKO neitar 5 ára ábyrgð á 250.000 kr. Roborock + "SMS fúsk"

Pósturaf GuðjónR » Þri 03. Feb 2026 19:15

playman skrifaði:Er ekki í lögum að þeim varahlut sem að skipt er út að hann öðlist 2 ára ábyrgð að nýju,en ekki allt tækið, en sé öllu
tækinu skipt út og þér afhent nýtt þá öðlast nýja tækið nýja 2 ára ábyrgð, eins ef að tæki þarfnast
sömu viðgerðar í þriðja sinn innan ábyrgðatíma þá eigi kaupandi rétt á að skila tækinu, fá endurgreitt eða sambærilegt tæki.

Nýr hlutur eða ný vara = ný ábyrgð.