Tölvan slekkur á sér ?


Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 15:23

Málið er það að þegar ég er að spila Dirt2 þá tekur hún uppá því að slökkva bara á sér. :thumbsd
Ég get kveikt strax á henni aftur og allt er eðlilegt.

Ég er búinn að lesa eitthvað um að þetta gæti verið hitavandamál, svo ég downloadaði einhverju sem heitir "Real Temp" og
samkvæmt því er hitinn að fara mest í 67°C. (ef ég er að gera þetta rétt)

Tölvan er nýuppsett svo það er ekkert ryk í henni og auðvitað nýtt kælikrem.
Hún virðist vera alveg í topp standi nema þegar ég spila Dirt2.
Þetta er frekar pirrandi þar sem þetta er eini leikurinn sem ég nenni að spila núna og þá er tölvan með stæla.

Hvað haldið þið? Og hvað ætti ég að athuga nánar?

CPU: E8400
RAM: 4Gb DDR3
Graphics: ATI Radeon HD 4800 Series
Windows 7 64bit
Ég veit ekki nafnið á kælingunni, en hún er stór og ætti að ráða við þetta.

Öll hjálp vel þegin.



Skjámynd

reyndeer
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Fim 21. Jan 2010 16:11
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf reyndeer » Þri 07. Jún 2011 15:25

Gerist þetta bara þegar þú spilar þennan leik?



Skjámynd

tanketom
</Snillingur>
Póstar: 1043
Skráði sig: Fim 06. Jan 2011 12:39
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf tanketom » Þri 07. Jún 2011 15:27

Hvað er hitinn á skjákortinu?
Ég lenti í sama dæmi einu sinni með 8800 kortið mitt og þá var það bara ónýtt


Twenty years from now you will be more disappointed by the things that you didn't do than by the ones you did do


Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 15:30

Já þetta gerist bara í þessum leik.

Ég veit ekki hitann á skjákortinu, hverju downloada ég til að sjá það?



Skjámynd

AndriKarl
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Sun 01. Nóv 2009 22:46
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf AndriKarl » Þri 07. Jún 2011 15:31

Hoddikr skrifaði:Já þetta gerist bara í þessum leik.

Ég veit ekki hitann á skjákortinu, hverju downloada ég til að sjá það?

http://www.cpuid.com/softwares/hwmonitor.html



Skjámynd

reyndeer
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Fim 21. Jan 2010 16:11
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf reyndeer » Þri 07. Jún 2011 15:33

Hoddikr skrifaði:Já þetta gerist bara í þessum leik.

Ég veit ekki hitann á skjákortinu, hverju downloada ég til að sjá það?


Ertu búinn að prufa aðra grafík-þunga leiki? Getur t.d. notað MSI afterburner til að sjá hitann á skjákortinu.

http://event.msi.com/vga/afterburner/im ... tup210.zip




Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 15:53

Eftir smá tíma í leiknum leit þetta svona út

Mynd



Skjámynd

reyndeer
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Fim 21. Jan 2010 16:11
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf reyndeer » Þri 07. Jún 2011 16:04

Hoddikr skrifaði:Eftir smá tíma í leiknum leit þetta svona út

Mynd


Já sæll, skjákortið er nú aðeins yfir eðlilegum hitamörkum :wtf ég myndi líta inn í turninn og athuga hvort viftan sé ekki örugglega að snúast þegar hún er í gangi. Ertu nokkuð með kortið yfirklukkað?




Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 16:11

Nei það er ekkert yfirklukkað hjá mér, eftir aðeins meiri spilun er hitinn hærri

Mynd

Var að kíkja inní kassann, og það er enginn vifta á skjákortinu bara fyrir CPU.
Þetta hefur aldrei verið vandamál fyrr en nú. Ég er búinn að nota þessa tölvu lengi, en það var skipt um móðurborð og RAM fyrir stuttu.



Skjámynd

reyndeer
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Fim 21. Jan 2010 16:11
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf reyndeer » Þri 07. Jún 2011 16:17

Hoddikr skrifaði:Nei það er ekkert yfirklukkað hjá mér, eftir aðeins meiri spilun er hitinn hærri

Var að kíkja inní kassann, og það er enginn vifta á skjákortinu bara fyrir CPU.
Þetta hefur aldrei verið vandamál fyrr en nú. Ég er búinn að nota þessa tölvu lengi, en það var skipt um móðurborð og RAM fyrir stuttu.


Ráðlegg að þú fáir viftu fyrir skjákortið.




Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 16:25

ok, ég redda viftu á skjákortið.

Er það ástæðan að hún drepur á sér þegar ég er að spila leikinn?
Hvað með hitan á CPU? Hann fer mest í 69°C. Er það í lagi?



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4328
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf chaplin » Þri 07. Jún 2011 16:48

Hitinn á örgjörvanum sleppur, mætti vera lægri en hitinn á kortinu to much. Nýtt hitaleiðandi krem gæti lagað bæði vandamálin hjá þér.


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

Skjámynd

reyndeer
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Fim 21. Jan 2010 16:11
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf reyndeer » Þri 07. Jún 2011 17:37

daanielin skrifaði:Hitinn á örgjörvanum sleppur, mætti vera lægri en hitinn á kortinu to much. Nýtt hitaleiðandi krem gæti lagað bæði vandamálin hjá þér.


Það gæti verið lausn að setja heatsink með hitaleiðandi kremi, en hitaleiðandi krem eitt og sér efast ég um að geri nokkuð fyrir skjákortið :-k




Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 17:47

reyndeer skrifaði:
daanielin skrifaði:Hitinn á örgjörvanum sleppur, mætti vera lægri en hitinn á kortinu to much. Nýtt hitaleiðandi krem gæti lagað bæði vandamálin hjá þér.


Það gæti verið lausn að setja heatsink með hitaleiðandi kremi, en hitaleiðandi krem eitt og sér efast ég um að geri nokkuð fyrir skjákortið :-k


Það er einmitt það, ég gæti svosem makað skjákortið í krem. :) en það gerir nú ekki mikið hehehe
Ég græja viftu á skjákortið til að ná hitanum niður.

En eru menn sannfærðir um að það sé vandamálið og ástæðan fyrir því að hún drepur á sér?????
Eða er eitthvað annað sem er líka vandamál?



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3818
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Daz » Þri 07. Jún 2011 17:52

reyndeer skrifaði:
daanielin skrifaði:Hitinn á örgjörvanum sleppur, mætti vera lægri en hitinn á kortinu to much. Nýtt hitaleiðandi krem gæti lagað bæði vandamálin hjá þér.


Það gæti verið lausn að setja heatsink með hitaleiðandi kremi, en hitaleiðandi krem eitt og sér efast ég um að geri nokkuð fyrir skjákortið :-k

ef þu finnur 4800 kort sem keyrir með engu heatsinki þa ert fjari fundvis! augljoslega a að setja kremið undir gamla heatsinkið



Skjámynd

mercury
Besserwisser
Póstar: 3360
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf mercury » Þri 07. Jún 2011 17:53

einhver smá möguleiki að ef þú ert með lítinn og gamlan aflgjafa að hann sé ekki að ráða við álagið. hvernig aflgjafa ertu með ?
Ég myndi byrja á því að reyna að lækka hitann á skjákortinu niður í svona 70-80°



Skjámynd

reyndeer
has spoken...
Póstar: 194
Skráði sig: Fim 21. Jan 2010 16:11
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf reyndeer » Þri 07. Jún 2011 17:54

Hoddikr skrifaði:
reyndeer skrifaði:
daanielin skrifaði:Hitinn á örgjörvanum sleppur, mætti vera lægri en hitinn á kortinu to much. Nýtt hitaleiðandi krem gæti lagað bæði vandamálin hjá þér.


Það gæti verið lausn að setja heatsink með hitaleiðandi kremi, en hitaleiðandi krem eitt og sér efast ég um að geri nokkuð fyrir skjákortið :-k


Það er einmitt það, ég gæti svosem makað skjákortið í krem. :) en það gerir nú ekki mikið hehehe
Ég græja viftu á skjákortið til að ná hitanum niður.

En eru menn sannfærðir um að það sé vandamálið og ástæðan fyrir því að hún drepur á sér?????
Eða er eitthvað annað sem er líka vandamál?


Til að byrja með er þetta eina vitið. Skjákortið er að fara yfir 100°C, sem er alltof mikið, og einkennin geta verið akkúrat þessi. Skjákort og örgjörvar eru yfirleitt varin þannig í BIOSnum að þegar þau ná ákveðnum hitahápunkti slökkva þau á öllu systeminu án nokkurra viðvaranna.



Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf mundivalur » Þri 07. Jún 2011 18:02

Er lélegt loftflæði í kassanum hjá þér? E8400 á 4ghz er yfirleitt 50-55c heitur í leik!




Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 18:07

mercury skrifaði:einhver smá möguleiki að ef þú ert með lítinn og gamlan aflgjafa að hann sé ekki að ráða við álagið. hvernig aflgjafa ertu með ?
Ég myndi byrja á því að reyna að lækka hitann á skjákortinu niður í svona 70-80°


Ég er með svona aflgjafa, hann er nú nokkur ára gamall
http://www.amazon.com/Thermaltake-W0101 ... B000E86CXM

mundivalur skrifaði:Er lélegt loftflæði í kassanum hjá þér? E8400 á 4ghz er yfirleitt 50-55c heitur í leik!


veit ekki með loftflæðið en hann er bara 3ghz hjá mér ef það skiptir máli



Skjámynd

kjarribesti
1+1=10
Póstar: 1145
Skráði sig: Fim 04. Jún 2009 01:55
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogurinn, reglulega fyrir norðan
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf kjarribesti » Þri 07. Jún 2011 18:27

Ef það er engin kæling á skjákortinu þá verðuru bara að kaupa viftu til að setja á það myndi ég segja.

http://buy.is/product.php?id_product=9207595 þessi passar.


_______________________________________

Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf mundivalur » Þri 07. Jún 2011 18:29

Loftfæði ss. viftur á kassanum,framan,ofan,hlið og aftan. Þú segir að það sé stór kæling á örgörvanum ,þá á ætti hann ekki að fara yfir 50c.,ath kælinguna og aukaloftflæði í kassann!
Hvernig turnkassi er þetta?




Allinn
spjallið.is
Póstar: 459
Skráði sig: Fim 17. Apr 2008 18:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Allinn » Þri 07. Jún 2011 18:32

Gæti verið hiti eða tölvan er ekki að fá nógu mikin Juice, hvernig aflgjafa ertu með?

EDIT: nvm sé það.




Höfundur
Hoddikr
Græningi
Póstar: 37
Skráði sig: Sun 20. Mar 2011 11:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Hoddikr » Þri 07. Jún 2011 18:59

kjarribesti skrifaði:Ef það er engin kæling á skjákortinu þá verðuru bara að kaupa viftu til að setja á það myndi ég segja.

http://buy.is/product.php?id_product=9207595 þessi passar.


Já þarf að græja það, redda því fljótlega

mundivalur skrifaði:Loftfæði ss. viftur á kassanum,framan,ofan,hlið og aftan. Þú segir að það sé stór kæling á örgörvanum ,þá á ætti hann ekki að fara yfir 50c.,ath kælinguna og aukaloftflæði í kassann!
Hvernig turnkassi er þetta?


Ég veit ekki hvað kassinn heitir en ég tók nokkrar myndir
Mynd

Svo er þetta kælinginn á CPU og skjákortið
MyndMynd
Og undir skjákortinu er ég með þráðlaust netkort, svo það er nú ekki pláss fyrir stóra viftu. Enn ég finn einhverja lausn á því.
Mynd



Skjámynd

mundivalur
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
Reputation: 82
Staðsetning: South side
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf mundivalur » Þri 07. Jún 2011 19:20

Þetta kallast sko lokaður kassi :megasmile ,er eingin vifta að framan niðri?
Svo á að vera vifta fyrir aftan örgjörva kælinguna!
Ég mundi EKKI hafa hurðina á þessum kassa,fyrr en það er búið að bora hann út :megasmile



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3818
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Tölvan slekkur á sér ?

Pósturaf Daz » Þri 07. Jún 2011 21:00

Þar sem ég er ekki með ósvipað setup (viftulaust kort með álíka heatsink og nákvæmlega þessu heatsink á CPUinu, þá langar mig að mæla með því að þú setjir kassaviftu á opið bak við CPU heatsinkið (sem dregur loft út). Skjákortið mitt er heitara með kassann opinn, en lokaðann + kassaviftu. En þú nærð líka að lækka hitan verulega með því að smella einhverri viftu á skjákortheatsinkið, ég prófaði að setja stock CPU viftuna á það einusinni (passað merkilega vel) og idle hitinn fór niður um 20°C, load hitinn 30°C.