Síða 1 af 1

Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 17:25
af moltium
Jæja kæru vaktvinir.

Núna er kominn tími á að uppfæra uppþvottavélina, hefur þvegið að mér finnst ekki nægilega vel í svolítinn tíma og núna hefur lýsingin í skjáborðinu verið að detta út.

Þá er spurning hvað fer maður í næst, eitthver hér fróður í þessum málum og búinn að grúska og kynna sér hvað séu "bestu" kaupin í dag?

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 17:38
af jonsig
Ef hún er ekki að þrýfa nógu vel, þá er ekkert vitlaust að taka hana í sundur og hreinsa uppsafnaða drullu, ef þetta er ekki hringrásardælan. Um að gera að sjá hvort þú getir ekki gert eitthvað í skjáborðslýsingunni, yfirleitt mjög auðvelt að laga þetta. Og tonn af video af einhverjum rússum að laga þetta.
Mín var að yfirfylla um daginn, ca.3mánuðum eftir að ábyrgðin var búin, fann hvað var að með að fara bara á troubleshooting síðuna hjá electrolux. Þurfti bara að taka skynjarann í sundur og þrýfa varlega. Og búmm allt í gang næstu 2 árin :) 2klst. Og einni uppþvottavélinni minna á ruslahaugunum

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 17:55
af moltium
Já það er mjög góður punktur, það er ekki svo langt síðan ég þreyf hana vel en fannst ég ekki fá neina bætingu á henni. Var með smá trix að halda tveimur tökkum inni þá átti hún til að gefa mér aftur skjálýsinguna en það er dautt núna. Gefum youtube annan hring sjáum hvað setur.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 18:26
af jonsig
Svona viðgerðir virka ógnvekjandi, en í rauninni eru þetta með auðveldari viðgerðum. Þetta er allt í einhverjum unitum sem er bara smellt í og kosta lítið, kannski ekki á íslandi en á ebay, genuine oem partar.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 21:03
af liljakristing
Bosch og Miele ef þú vilt góð þrifagæði og langa endingu. Bosch aðeins meira budget á meðan Miele er rollsinn í langflestum heimilistækjum :) Ert síðan góður með 44dB eða lægra í hljóði og mæli með að vélin opni sig sjálf eða sé með einhverjum spes þurrkfítus svo þú sért líka góður þar.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 21:16
af moltium
liljakristing skrifaði:Bosch og Miele ef þú vilt góð þrifagæði og langa endingu. Bosch aðeins meira budget á meðan Miele er rollsinn í langflestum heimilistækjum :) Ert síðan góður með 44dB eða lægra í hljóði og mæli með að vélin opni sig sjálf eða sé með einhverjum spes þurrkfítus svo þú sért líka góður þar.


Takk fyrir að deila þinni reynslu :happy

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 21:38
af audiophile
Ég hef verið mjög ánægður með mína Bosch. Var ekkert of dýr og stendur fyrir sínu. Fannst Bosch einhvernveginn lenda akkúrat á þessum gullna meðalvegi að fá gæði án þessa að borga fáránlega hátt verð. Miele er líklega með því besta sem fæst en fannst það vera svo miklu dýrara fyrir eitthvað sem kannski nýttist mér ekki.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 24. Jan 2022 23:09
af Tbot
moltium skrifaði:Jæja kæru vaktvinir.

Núna er kominn tími á að uppfæra uppþvottavélina, hefur þvegið að mér finnst ekki nægilega vel í svolítinn tíma og núna hefur lýsingin í skjáborðinu verið að detta út.

Þá er spurning hvað fer maður í næst, eitthver hér fróður í þessum málum og búinn að grúska og kynna sér hvað séu "bestu" kaupin í dag?


Það vantar frá þér info um hvað vélin er gömul.
Hefur áhrif á hvað borgar sig að leggja mikinn pening og tíma í viðgerðir.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 00:00
af moltium
Tbot skrifaði:
moltium skrifaði:Jæja kæru vaktvinir.

Núna er kominn tími á að uppfæra uppþvottavélina, hefur þvegið að mér finnst ekki nægilega vel í svolítinn tíma og núna hefur lýsingin í skjáborðinu verið að detta út.

Þá er spurning hvað fer maður í næst, eitthver hér fróður í þessum málum og búinn að grúska og kynna sér hvað séu "bestu" kaupin í dag?


Það vantar frá þér info um hvað vélin er gömul.
Hefur áhrif á hvað borgar sig að leggja mikinn pening og tíma í viðgerðir.


Já hún er milli 5-6 ára vélin.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 00:13
af Klemmi
Lífið er of stutt fyrir lélegar uppþvottavélar.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 00:25
af Viktor
Bosch

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 01:07
af Sinnumtveir
Gleymdu merkjanafnakeppnini með öllu. Ég hef nú átt 4 AEG og/eða Eloctrolux vélar í röð og það furðulegasta af öllu furðulegu er hve furðu ólíkar þær eru þrátt fyrir að vera, jú einmitt, furðu líkar. Það þarf ekki nema smá eftirtektarsemi til að átta sig á að ekki eru nema 2 -3 framleiðendur að uppþvottavélum þó vörumerkin séu óteljandi. Stærsti munurinn á öllum AEG/Electrolux vélunum eru hlutir sem snúast um smáatriði í grindunum sem maður setur óhreina "tauið" í. Virknin er meira og minna óbreytt.

Ef ég yrði spurður myndi ég giska á að 40 - 44db munur á því sem er beisiklí sama þvottavél snúist um vísvitandi mismunandi hljóðeinangrun. Mun, sem breytir nákvæmlega ekki einseyringi í framleiðslukostnaði. Munur sem er framkallaður af einbettum viljai til að hafa fé af viðskiptavinum á "semi"-siðlegan hátt. Þetta heitir vöruskil (eða eitthvað álíka, á ensku "product segmentation") og snýst um að "búa" til skil/mun milli einstakra vara til að hámarka afrakstur framleiðandans.

Dæmi: Gunna er grandvör millistéttarkona og hún kaupir uppþvottavélina X fyrir x-krónur. Gunnhildi skortir ekki fé og hún kaupir uppþvottavéina X-plus sem sögð er vera 2db lágværari en X. Verðið sem Gunna borgar er 50% hærra verðið sem Gunnhildur greiðir. Gjöf en ekki gjald þó X-plus sé eiginlega sama og X.

Hugaðu að verði og hljóðmengun (færri "db" er betra en fleiri) en hve miklu það ætti að skipta snýst um skipulag heimilisins hjá þér. Þeir sem eru með eldhús, borðstofu og stofu alrými hafa mest not af allra hljóðlátustu þvottavélunum.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 08:21
af moltium
Klemmi skrifaði:Lífið er of stutt fyrir lélegar uppþvottavélar.


Virkilega góður punktur Klemenz!

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 14:37
af svensven
Ég fékk mér Bosch Seríu 6 fyrir 2-3 árum, líka virkilega vel við hana. Þvær vel, hljóðlát og þægilegt að raða í, hægt að breyta skúffum eftir þörfum, sama með hnífaparaskúffuna sem er efst - hægt að breyta henni örlítið eftir þörfum.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 14:55
af rapport
Veit að heilbrigðisstofnanir eru hrifnastar af Siemens og Miele sem bjóða 60min program sem fer yfir 65-70 gráður.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 23:01
af Viktor
Sinnumtveir skrifaði:Gleymdu merkjanafnakeppnini með öllu. Ég hef nú átt 4 AEG og/eða Eloctrolux vélar í röð og það furðulegasta af öllu furðulegu er hve furðu ólíkar þær eru þrátt fyrir að vera, jú einmitt, furðu líkar. Það þarf ekki nema smá eftirtektarsemi til að átta sig á að ekki eru nema 2 -3 framleiðendur að uppþvottavélum þó vörumerkin séu óteljandi.


Veit ekki hvort það sé flökkusaga, en maður hefur heyrt að mörg merki eins og Electrolux sé í raun bara merkið framan á. Geta verið margir framleiðendur, en fá svo að nota merkið þeirra til að markaðssetja vélarnar.

Það er svipað og í matvörunni, framleiðendur greiða Jamie Oliver fyrir að fá að nota nafnið hans og hafa mynd af honum á pakkningunum.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Fim 27. Jan 2022 23:08
af GuðjónR
Miele er það sem þú skalt kaupa.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Sun 06. Feb 2022 10:10
af Hlynzi
rapport skrifaði:Veit að heilbrigðisstofnanir eru hrifnastar af Siemens og Miele sem bjóða 60min program sem fer yfir 65-70 gráður.


Þarft bara að hafa í huga að stofnanir nota þá oftast Miele Professional línuna, hún er eflaust full öflug fyrir heimilisstörfin.

Allt í Miele hjá foreldrum mínum og þau tæki eru orðin 18 ára og ennþá mjög fín.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Sun 06. Feb 2022 10:22
af axyne
moltium skrifaði:
Klemmi skrifaði:Lífið er of stutt fyrir lélegar uppþvottavélar.


Virkilega góður punktur Klemenz!


Sá ekki eftir þeim pening sem ég eyddi í uppþvottavél á sínum tíma.
Vorum orðin gráhærð að vaska upp í höndunum (heimili með 2 lítil börn).

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Sun 06. Feb 2022 14:00
af playman
Varstu búin að skoða spaðana í vélinni? Ekki óalgengt að það fari eitthvað inní þá sem á ekki að fara, eggjaskurn er langvinsælasti
orsakavaldurinn, sjást ílla á hvítu leirtaui, þarf ekki nema nokkrar litlar flísar til þess að stífla og eyðast ílla upp.
Þetta veldur því að ekki náist nægur þrýstingur í spöðunum.

Þar sem að þessar vélar víbra í notkun þá er ekki óalgengt að snúrur og borðar losni aðeins og valdi bilunum á t.d. skjálýsingu og tökkum.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 07. Feb 2022 19:55
af rapport
Hlynzi skrifaði:
rapport skrifaði:Veit að heilbrigðisstofnanir eru hrifnastar af Siemens og Miele sem bjóða 60min program sem fer yfir 65-70 gráður.


Þarft bara að hafa í huga að stofnanir nota þá oftast Miele Professional línuna, hún er eflaust full öflug fyrir heimilisstörfin.

Allt í Miele hjá foreldrum mínum og þau tæki eru orðin 18 ára og ennþá mjög fín.


Nei, venjuleg Miele eða Siemens eru með 60 min 65 gráðu programmi.

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 07. Feb 2022 21:49
af dadik
Ég er með eina frá miele sem fer að nálgast 18 árin. Hún er með 75° program sem tekur 2:08 að klárast

Re: Næsta uppþvottavél?

Sent: Mán 07. Feb 2022 23:55
af GuðjónR
Miele ekki hugsa um neitt annað.