Síða 1 af 1

Tölvutækni lokað

Sent: Lau 10. Feb 2024 11:06
af Klemmi
Sælir félagar,

vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður Tölvutækni lokuð næstu vikurnar, og óvissa um framhaldið eftir það. Vildi að ég gæti gefið nánari upplýsingar, en því er ekki að dreifa að svo stöddu.

Unnið er að því að setja inn sambærilega yfirlýsingu á heimasíðu og aðra miðla, en þeir sem eiga óafgreiddar pantanir, eða mögulega hluti í viðgerð, geta haft samband við mig og ég kem því í farveg. Reynt verður að ganga frá þeim málum eins hratt og kostur er.

Frekari upplýsingar um stöðuna og framhaldið koma síðar, veit að það er kannski erfitt, en ég bið ykkur um að spyrja ekki nánar út í ástæður hér.

Með fyrirfram þökkum og óskum um sýndan skilning,
Klemenz Hrafn

Re: Tölvutækni lokað

Sent: Þri 20. Feb 2024 00:19
af rapport
Heimasíðan er eitthvað tvíræð, voru eigendaskipti eða á bara enn eftir að uppfæra síðuna?

Re: Tölvutækni lokað

Sent: Þri 20. Feb 2024 08:55
af Klemmi
Klemmi skrifaði:Frekari upplýsingar um stöðuna og framhaldið koma síðar, veit að það er kannski erfitt, en ég bið ykkur um að spyrja ekki nánar út í ástæður hér.


Vonast til að geta svarað þér sem fyrst. Vonandi ekki langt í það :happy

Re: Tölvutækni lokað

Sent: Þri 20. Feb 2024 18:05
af Nariur
Hvernig ert þú tengdur Tölvutækni?

Re: Tölvutækni lokað

Sent: Þri 20. Feb 2024 18:44
af jonsig
Nariur skrifaði:Hvernig ert þú tengdur Tölvutækni?


Vann þar og er kunnugur eigandanum.