Síða 1 af 1

Tölvutek?

Sent: Fim 03. Apr 2008 22:09
af Sydney
Er einhver ástæða fyrir því að Tölvutek er ekki á verðlistum á vaktinni?

Re: Tölvutek?

Sent: Fim 03. Apr 2008 22:20
af Turtleblob
Heh... fyndið, hef aldrei pælt í því.

Svo eru þeir samt með auglýsingar...

Re: Tölvutek?

Sent: Fim 03. Apr 2008 23:12
af mind
Má vera tölvutek hafi ekki beðið um það, gæti líka verið vegna þess að þeir voru ekki með hefðbundna vefverslun á sínum tíma.

Kannski þarf bara endurskoða það stjórnendur :)

Re: Tölvutek?

Sent: Fim 03. Apr 2008 23:43
af hallihg
Ég hef aldrei fattað af hverju þessi gaur sem núna á Tölvutek (og átti tölvulistann), getur ekki verið með eðlilegar heimasíður.

Af hverju þarf alltaf að opna einhverja endalausa vörulista til að geta fundið út verð og hvaða vörur er verið að selja?

Er of mikið mál að setja upp einfalda heimasíðu, með vöruflokkum og tölum sem tákna verð fyrir neðan?

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 00:38
af Prags9
Þú ýtir á " Vefverslun " myndina, Þá færðu síðuna þeirra upp.

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 01:38
af Heliowin
Prags9 skrifaði:Þú ýtir á " Vefverslun " myndina, Þá færðu síðuna þeirra upp.

Vefverslun þeirra suckar. Það eru engar myndir af vörum og þannig hefur það verið allan tímann.
Ég hef reynt að gefa þeim sjéns í mjög marga mánuði en það bólar aldrei á neinum vörumyndum.

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 08:46
af ÓmarSmith
Sammála, síðan þeirra er leiðinleg.


Þetta er nefnilega ljómandi verslun sem toppar Tölvulistann any given day. Ég held að TT væru enn vinsælli í dag og líka meðal Vaktara ef síðan þeirra væri e-ð í líkingu við t.d http://www.kisildalur.is - http://www.tolvutaekni.is - http://www.tolvuvirkni.is

Hverjum er ekki sama um e-n leiðinlegan bækling með asnalegu róbotti framan á, svona í alvöru, þetta virkaði á gamla fólkið hérna back in the days en virkar þetta í dag ?

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 09:08
af hallihg
Sammála Ómari.

Kísildalssíðan er frábær.

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 12:56
af ÓmarSmith
Jamm hún er það,

Mér finnst líka Tölvutækni síðan frábær og einfalt að nota hana, góðar myndir af öllu og góðar útskýringar.

Finnst glæsilegt hvernig guðbjartur kallinn í Dalnum samt útskýrir vörurnar sínar " Óviðjafnanleg afköst " " silkimjúk svörun " ;)

High five fyrir það.

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 15:56
af Dr3dinn
Ég versla mikið við tölvutek og sé verðmun þar.

En ég er svo sammála ykkur að þessi heimasíða þeirra er vægast sagt ömurleg.

Alveg spurning að starfsmenn búðarinar sem lesi þetta og komi þessu áleiðis.

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 16:50
af Heliowin
Ég get gefið sem dæmi að ég var að leita mér að fartölvu um daginn á vefnum og Tölvutek var náttúrulega inn í myndinni. En ég varð frá að hverfa þar sem vantaði alveg myndir af þeim. Halló!

Svona hefur þetta verið lengi og líklega alveg frá því vefverslunin opnaði.

Það er dálítið merkilegt að verslun eins og Tölvutek sem hefur verið að hasla sé völl með góðum árangri leggi svona lítinn metnað í vefverslunina því venjulega vill fólk kynna sér hlutina á netinu og helst frá öllum hliðum áður en það ákveður að versla eða fara í verslunnarferð.

Edit: ég skrifa held ég ekki meira á spjallið þar sem ég hef öðlast aðalstign hérna sem hverfur við næsta innlegg. :D

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 18:55
af Gets
666 :twisted:

Re: Tölvutek?

Sent: Fös 04. Apr 2008 21:07
af Gúrú
Bin there :D

Re: Tölvutek?

Sent: Lau 05. Apr 2008 10:45
af ibaral
Sælir, sennilega best að ég svari þessu varðandi vefsíðuna okkar. Það er í raun mjög einföld ástæða fyrir því, það er að segja tímaleysi, frá því við opnuðum sem er fyrir rétt rúmlega ári þá höfum við verið mjög undirmannaðir og menn fram á kvöld við að ná utan um allt sem er í gangi, höfum því miður ekki getað sinnt uppfærslum á vefnum nema bara svona að hafa verð og vörur rétt inn á vefnum. Við lentum líka í að plug ins og fylgiforrit með verslunarkerfinu sem áttu að einfalda uppfærslur virkuðu ekki eins og skyldi þannig að það var fáránlega tímafrekt að uppfæra vefin. Þegar búðin er full af fólki á hverjum degi og síminn þagnar ekki þá einfaldlega gera menn sitt best að sinna því sem best og þess vegna því miður hefur vefverslunin mætt afgangi hjá okkur.

Ástæðan fyrir því að vefurinn er tvískiptur er að þar sem við treystum ekki alveg vefverslunarpartinun þá vildu menn hafa front sem væri alla vegana með réttan vörulista í excel formati ásamt nýjustu auglýsingum ofl. Fundum ekki leið til að koma vörulýsingu úr okkar ferli inn í vefverslunina, það er núna komið í lag og því aðeins einn excel listi í gangi, það er nefnilega slatti af fólki sem virðist nýta sér hann.

Okkur finnst að sjálfsögðu miður að þetta hafi verið svona hálfklárað allt en það stentur til bóta og as we speak er verið að græja uppfærsluferlið og síðan verður einvala lið (ja kannski 2) sett í að massa inn myndum á næstunni. Þetta tók allt bara aðeins lengri tíma en við gerðum ráð fyrir.

Varðandi bæklingana sem einhver var að drulla yfir hér að ofan þá endilega droppið inn í búðina hjá okkur á þeim degi sem bæklingar koma út, það segir held ég mest um virkni á þeim.

Kveðja
Bragi - Tölvutek

Re: Tölvutek?

Sent: Lau 05. Apr 2008 10:57
af Turtleblob
ibaral skrifaði:Varðandi bæklingana sem einhver var að drulla yfir hér að ofan þá endilega droppið inn í búðina hjá okkur á þeim degi sem bæklingar koma út, það segir held ég mest um virkni á þeim.


Þeir geta alveg virkað, það þýðir ekki að þeir séu fullkomnir. Fólki er slatti mikið sama um hvort að fígúrurnar ykkar séu skemmtilegar held ég, hinsvegar er tiltölulega lítill hluti fólks sem lætur þetta fara í taugarnar á sér, do it for them! S.s. þetta er ekki að afla ykkur viðskiptavina en þið tapið sennilega einhverjum smápeningum á því. Svo ekki sé nú talað um tímann og peningana sem fer í að teikna/módela þessa hluti.

Re: Tölvutek?

Sent: Lau 05. Apr 2008 11:54
af Gúrú
Svo ekki sé minnst á hvað er oft mikið af bulli í þeim(ekki bara bæklingunum ykkar, bæklingum yfir höfuð)

512MB 8600 GT
Nýjasta og öflugasta
skjákortið í dag með
512MB sjálfstætt minni
og 1.28GB Turbo Cache


:^o

Re: Tölvutek?

Sent: Lau 05. Apr 2008 13:58
af ibaral
Sælir aftur, nei nei að sjálfsögðu eru bæklingarnir ekki fullkomnir, held að það sé bara ekki til, alltaf einhver sem fílar ekki það sem er í gangi, 3d gaurarnir eru bara leið til að poppa þetta upp, finna svona þema til að pakka öllu inn í, marsbúi í mars and so on, þó mér þyki nú vænt um þá verð ég ekkert sár þó menn fíli þá ekki :D Tengdó er t.d dugleg að láta mig vita hvað er að gera sig og hvað ekki.

Við værum hinsvegar ekki að setja pening í þetta ef þetta væri ekki að virka, það ætti að vera öllum ljóst held ég.

Varðandi bull í bæklingum vona ég nú að okkar séu að mestu lausir við það, fyrir utan kannski einverjar klaufavillur, reynum bara að hafa réttar vörulýsingar en kannski geta menn agnúast út í eitthvað orðalag ofl. Reynum alla vegana að hafa þetta rétt :8)

Bragi H

Re: Tölvutek?

Sent: Lau 05. Apr 2008 16:38
af coldone
Ég man þegar Tölvutek opnaði og maður fór að skoða, þá varð maður bara nokkuð glaður, með verð og fleira. En síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og ég hef ekki verslað mikið við þá. Sérstaklega þegar ég var að uppfæra hjá mér tölvuna og ákvað að fá tilboð hjá þeim í tölvu, þá varð tilbðið dýrara en ef ég hefði bara bent upp í hillu og tekið bara einn og einn hlut. Og tilboðið var að fá bara hlutina en ekki setja saman, fyrir þá sem voru að velta því fyrir sér. Og nú þegar maður skoðar síðuna hjá þeim verður maður bara ruglaður því hvorki eru myndir, og upplýsingar af skornum skammti við hverja vöru. Finnst mér nú frekar léleg afsökun að segja að það sé svo mikið að gera. Að skella í það minnsta myndum inn af vörunni getur ekki tekið það langan tíma. Nóg um þetta en vona að þetta lagist og maður fari að sjá betri síðu.

Talandi um tölvuverslanir finnst mér vert að nefna eitt sem enginn hérna virðist fétta fingur út í. Það er með tölvuverslunina Tölvutækni, allir eru voða happy með hana og ég hef verslað mikið af þeim, en eitt er sem fer gífurlega í taugarnar á mér, það er þetta verð sem er strikað yfir. Þvílíkt bull, þeir skella inn nýrri vöru og strika yfir td. 50.000 og síðan er fyrir neðan eitthvað tilboð uppá 40.000. Þetta er að ég held ekki löglegt því ekki má auglýsa verð á vöru sem aldrei hefur verið. Væri gaman að fá svar frá aðilum hér sem eru starfsmenn Tölvutækni.

Re: Tölvutek?

Sent: Lau 05. Apr 2008 18:07
af hallihg
coldone skrifaði:Talandi um tölvuverslanir finnst mér vert að nefna eitt sem enginn hérna virðist fétta fingur út í. Það er með tölvuverslunina Tölvutækni, allir eru voða happy með hana og ég hef verslað mikið af þeim, en eitt er sem fer gífurlega í taugarnar á mér, það er þetta verð sem er strikað yfir. Þvílíkt bull, þeir skella inn nýrri vöru og strika yfir td. 50.000 og síðan er fyrir neðan eitthvað tilboð uppá 40.000. Þetta er að ég held ekki löglegt því ekki má auglýsa verð á vöru sem aldrei hefur verið. Væri gaman að fá svar frá aðilum hér sem eru starfsmenn Tölvutækni.


Það er rétt hjá þér að þetta sé ólöglegt eða óleyfilegt samkvæmt samkeppnislögum.

Mig minnir að samkeppnisstofnun hafi einhvern tímann verið að gefa verslunum áminningar fyrir þetta, held að það hafi verið í auglýsingum matvöruverslana.

Re: Tölvutek?

Sent: Lau 05. Apr 2008 20:02
af Ripper
coldone skrifaði:Talandi um tölvuverslanir finnst mér vert að nefna eitt sem enginn hérna virðist fétta fingur út í. Það er með tölvuverslunina Tölvutækni, allir eru voða happy með hana og ég hef verslað mikið af þeim, en eitt er sem fer gífurlega í taugarnar á mér, það er þetta verð sem er strikað yfir. Þvílíkt bull, þeir skella inn nýrri vöru og strika yfir td. 50.000 og síðan er fyrir neðan eitthvað tilboð uppá 40.000. Þetta er að ég held ekki löglegt því ekki má auglýsa verð á vöru sem aldrei hefur verið. Væri gaman að fá svar frá aðilum hér sem eru starfsmenn Tölvutækni.

Sælir!

Við notum þetta bæði til að sýna breytingar frá eldra verði og einnig mikið til að sýna algengt verð sem er á sambærilegri vöru eða sömu vörunni hjá öðrum tölvuverslunum.

Þessar vörur eru þá alltaf á mjög fínu verði og detta allar undir tilboðsvörur á síðunni. Þetta er aðalega hugsað til að skipta niður vörum sem eru á sértilboði og svo hinum sem eru á venjulegu fínu verðunum! :)

Vonandi angrar þetta ekki marga en við erum allavega ekki að setja himin hátt verð og svo eitthvað lélegt tilboð til að blekkja viðskiptavini.

Annars er frábært að heyra hversu margir eru sáttir við heimasíðuna og verðin ;)

kv. Pétur

Re: Tölvutek?

Sent: Mán 07. Apr 2008 22:05
af Dazy crazy
Mér finnst súperpirrandi að ef maður fer í t.d. uppfærslur á þessari blessuðu heimasíðu tölvutækni að þá kemur allt neðst og maður þarf að skrolla niður. :D

Re: Tölvutek?

Sent: Mán 07. Apr 2008 23:30
af Klemmi
Dazy crazy skrifaði:Mér finnst súperpirrandi að ef maður fer í t.d. uppfærslur á þessari blessuðu heimasíðu tölvutækni að þá kemur allt neðst og maður þarf að skrolla niður. :D


Ég kannst ekki við það 8-[ áttu screenshot svo við getum séð það og vonandi lagfært ef þetta tengist síðunni en ekki browsernum eða upplausninni hjá þér :oops:

Re: Tölvutek?

Sent: Mán 07. Apr 2008 23:42
af Dazy crazy
Afsakið, þetta er bara í Operu (Sem er samt besti browserinn). Besti hvað? bullshit.

Re: Tölvutek?

Sent: Þri 08. Apr 2008 01:35
af Viktor
Tölvutækni all-the-way... reyndar er kísildalsheimasíðan betri, með þessu körfu-kóða systemi :P

En djöfull er ég þreyttur á þessum leiðinda fígúrum hjá Tölvutek. Fáránlega óaðlaðandi litir, hver ryðgað eitthvað ryðgað til að reyna selja rafeindabúnað? Eins og ég segi, leiðinlegar fígúrur og slappt litaval.