Síða 1 af 3

Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 15:54
af GuðjónR
Þá er komið að því, eftir farsæla samfylgd með Hringdu.is undanfarin áratug er komið að krossgötum.
Hringdu ætlar að slökkva á netþjóninum og því þarf Vaktin að finna sér nýtt heimili.

Var að frétta þetta fyrir hálftíma eða svo og hef því ekki náð að skoða aðrar hýsingar en mér sýnist á þriggja ára pakka hjá 1984.is hljóma ágætlega.

Eitthvað sem mælir með eða móti því?

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 15:57
af krat
Er þetta nægilega stórt fyrir þetta?

Myndi athuga managed hosting hjá 1984.is, meiri möguleikar að stýra
Mynd

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 16:02
af worghal
er ekki einhver hérna sem er að vinna hjá 1984.is og getur reddað þér afslætti á þessu? :o

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 16:04
af Hjaltiatla
Veistu á hvernig netþjóni vaktin keyrir á í dag? þ.e hvort þetta sé samhýst með öðrum vefsíðum eða sérhýst á netþjóni (best væri að fá einhverjar spekka um núverandi umhverfi t.d diskapláss og hvernig disk/ar er verið að nota , cpu og ram.
1984 eru allavegana með fín verð

Edit: fljótt á litið virðist spjall.vaktin.is vera keyrandi á sér netþjóni eins og staðan er í dag, en þú ert að skoða shared hosting hjá 1984

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 17:11
af GuðjónR
Veit ekki hvernig netþjónninn er, en Vaktin deilir honum með mörgum öðrum.

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 17:18
af Pandemic
Setja þetta á digital-ocean eða linode? Verður þetta að vera á íslandi?

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 17:30
af kiddi
Pandemic skrifaði:Setja þetta á digital-ocean eða linode? Verður þetta að vera á íslandi?


Hefurðu reynslu af hraðanum hjá þeim? Ég hef nokkrum sinnum komið nálægt uppsetningu á phpBB spjallkerfum á erlendum vefþjónum og það var martröð hreint út sagt, ekki nógu hratt fyrir okkur á klakanum.

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 17:37
af Hjaltiatla
GuðjónR skrifaði:Veit ekki hvernig netþjónninn er, en Vaktin deilir honum með mörgum öðrum.


Hmm...ok
Mynd

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 17:40
af kristoferandrik
Hef stundað viðskipti við 1984 í nokkur ár og þeir hafa reynst mér mjög vel.

Lenti reyndar í því fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan (mögulega lengra) að þá krassaði serverinn þeirra.
Síðurnar mínar láu sumar niðri í nokkra daga. Þeir voru samt voða vinalegir og tóku öllum ábendingum alvarlega og fóru strax í málin.
Eru mjög fljótir að bregðast við, sem skiptir öllu.

- Kristófer Andri

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 18:15
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Veit ekki hvernig netþjónninn er, en Vaktin deilir honum með mörgum öðrum.


Hmm...ok
Mynd

Það er ekkert að marka þetta. :happy

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 18:39
af russi
Hýstu hana innanlands, það er það eina sem skiptir máli, stuttar boðleiðir ef eitthvað kemur uppá, betri upplifun fyrir okkur sem notum vefinn

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 19:04
af pattzi
Ég nota biz.nf hefur reynst vel en spurning hvort það henti vaktinni

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 19:10
af vesi
Leyfðu okkur að taka þátt í kostnaði ef það verður einhver.

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 20:36
af mainman
vesi skrifaði:Leyfðu okkur að taka þátt í kostnaði ef það verður einhver.


Hljómar vel.
Ég er alveg til í að styrkja þetta.
2-3 þús þeir sem geta og þá er þetta fljótt að hjálpa til við hýsinguna á þessu.

By the way þá mæli ég hiklaust með 1984.is.
Ég er með nokkra vefi hýsta þar og aldrei nein vandamál. Bara lausnir hjá þeim.

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Fim 22. Okt 2020 20:41
af GuðjónR
vesi skrifaði:Leyfðu okkur að taka þátt í kostnaði ef það verður einhver.

Fallega boðið en það eru tveir öflugir hýsingaraðilar búnir að hafa samband og viðrað hugmyndir um framtíðarheimili þannig að þetta leysist fljótlega.
Þá verður líka hægt að uppfæra spjallborðið sjálft fljótlega úr phpBB 3.1.12 > 3.3.1 :)

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Mán 26. Okt 2020 20:09
af appel
Vaktin niðri um tíma áðan, lætur vita þegar flutningar verða :)

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Mán 26. Okt 2020 21:08
af GuðjónR
appel skrifaði:Vaktin niðri um tíma áðan, lætur vita þegar flutningar verða :)

Já ég geri það, var að taka backup í dag en netþjóninn var að gera upp á bak þannig að ég prófa aftur á minni álagstíma.
Ætla að prófa þetta svona 2x áður en ég breyti DNS færslunum.

Sensa er nýja heimilið :happy

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 07:49
af Jón Ragnar
GuðjónR skrifaði:Sensa er nýja heimilið :happy



Verið velkomin :hjarta

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 08:10
af GuðjónR
Jón Ragnar skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Sensa er nýja heimilið :happy



Verið velkomin :hjarta


Takk takk :hjarta

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 12:12
af rapport
Er ég að ímynda mér það er vaktin orðin sprækari?

EDIT: þetta post tók 4ever að detta inn

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 15:56
af GuðjónR
Jæja ... spurning um að drífa í þessu bara?
Spjallið verður offline í ~2 tíma eða svo ... ef allt gengur vel.

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 16:08
af GuðjónR
Okay ... læt vaða ...
Spjallborðið verður óvirkt næstu 2 tímana eða til kl 18:00 ef allt gengur að óskum. :happy

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 20:39
af GuðjónR
Það hafðist, DNS þjónarnir eru misfljótir/lengi að uppfæra sig, þurfti að tengjast í gegnum VPN og Ítalíu til að sjá spjallið hérna megin en fljótlega verður þetta komið hjá öllum.

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 20:57
af Hjaltiatla
Gleymdist að lækka TTL á léninu áður en þú færðir þig yfir á nýja netþjóninn :lol:

Re: Vaktin.is flytur

Sent: Þri 27. Okt 2020 22:25
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Gleymdist að lækka TTL á léninu áður en þú færðir þig yfir á nýja netþjóninn :lol:

TTL = 15 á báðum stöðum :)