Síða 1 af 1

Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 16:55
af Lexxinn
Er hægt að auglýsa hvaða turn sem er, sem leikjaturn? Svo lengi sem það sé skjákort má þá klína titlinum "Leikjaturn" hingað og þangað?
Þarf ekki að vera eitthver standard.

Dæmi:
Mynd Mynd Mynd

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 17:02
af Viktor
Jájá :)

Nema kannski vélar með Intel GPU á örgjörvanum ;)

Ef það er sæmilegt dedicated GPU þá getur það alveg flokkast sem leikjavél fyrir þá sem þurfa ekki að spila nýjustu leikina.

Recommended GTA 5 System Specifications
OS: Windows 8.1 64 Bit, Windows 8 64 Bit, Windows 7 64 Bit Service Pack 1.
Processor: Intel Core i5 3470 @ 3.2GHZ (4 CPUs) / AMD X8 FX-8350 @ 4GHZ (8 CPUs)
Memory: 8GB.
Video Card: NVIDIA GTX 660 2GB / AMD HD7870 2GB.

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 17:06
af Lexxinn
Sallarólegur skrifaði:Jájá :)

Nema kannski vélar með Intel GPU á örgjörvanum ;)

Ef það er sæmilegt dedicated GPU þá getur það alveg flokkast sem leikjavél fyrir þá sem þurfa ekki að spila nýjustu leikina.

Recommended GTA 5 System Specifications
OS: Windows 8.1 64 Bit, Windows 8 64 Bit, Windows 7 64 Bit Service Pack 1.
Processor: Intel Core i5 3470 @ 3.2GHZ (4 CPUs) / AMD X8 FX-8350 @ 4GHZ (8 CPUs)
Memory: 8GB.
Video Card: NVIDIA GTX 660 2GB / AMD HD7870 2GB.


Sammála að vissu leyti en ég mundi skilja þessa "leikjatölvu" titla á brask&brall eða tölvu hópum á facebook en finnst það skondnara á vaktinni miðað við aldur íhluta.
Einnig setur þú upp system requirements fyrir 7,5árs leik. ](*,)

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 17:14
af ZiRiuS
Gamlar leikjatölvur hætta ekkert að vera leikjatölvur. Myndi allavega ekki setja skilyrði að leikjatölva verði að spila nýjustu leikina. En það mætti alveg hafa titilinn í þátíð á þessum þráðum, hljómar minni blekking þó ég efast um að margir hér séu að blekkjast.

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 17:15
af appel
Ég er með 780ti og spila alveg leiki á henni

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 20:36
af einarn
Málið er að consoles alveg uppi 8th gen voru dáldið að halda aftur þróunn á tölvuleikjum og þú þurftir ekkert sérlega öfluga tölvu til að geta keyrt leiki af þeirri kynslóð, 750ti var nokkurnveginn á par við það sem ps4 og xbone bjuggu yfir og min requirment á leikjum mátti varla fara yfir það sem þær réðu við. Ég myndi segja að ef þú ert með sæmilegan dedicated gpu þá ertu með leikjavél.

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 20:54
af ChopTheDoggie
Jájá, öll þessu dæmi eru leikjatölvur.
Skiptir engu máli hversu gömul skjákortin eru, eru þá gamlir sportbílar ekki lengur orðnir sportbílar því partarnir eru orðin gömul? :-k

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 21:40
af Mossi__
750ti, 780 og 960 eru öll bara solid fyrir budget leikjatölvur, enn í dag. Þó jú, það er hæpið að fara neðar en 750ti bara upp á compatability og svoleiðis.

Af þessum tölvum sem þú tekur sem dæmi, þá er eina sem vekur spurn hjá mér FX-8350 örrinn. En það er mikið til vegna þess hreinlega að ég þekki ekki þessa gerð AMD örgjörva.

En ég meina.. skil alveg hvaðan þú ert að koma.Þetta er soldið bara svona, hvað er bandspotti langur.

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Þri 02. Mar 2021 22:14
af Gurka29
Svo virðist vera voru kannski fínar tölvur á sýnum tíma en allt frekar úrelt í dag.

Lít stundum yfir söluhópa á Facebook og það er erfitt að slá suma út þegar að það kemur að vitleysu. “ þrussu leikjaturn til sölu “ þá er þetta GTX 960 og einhver fornaldar i5 örri síðann er smurt á 80.000 yfir raunvirði.

Siðann seljast nánast allar þessar tölvur guð má vita hvernig.

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Mið 03. Mar 2021 07:50
af Maddas
Fer alltaf um mig kjánahrollur þegar ég les "til sölu alvöru leikjaturn!" Ef það þarf að taka það fram þá í flestum tilvikum er þetta gamalt low-midrange hardware sem er verðlagt lengst upp í skýin, en það hefur komið fyrir að maður klikki á linkinn og við manni blasir alvöru leikjaturn :shock:

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Mið 03. Mar 2021 09:58
af Lexxinn
ZiRiuS skrifaði:Gamlar leikjatölvur hætta ekkert að vera leikjatölvur.


Ef við pælum samt aðeins í því er þessi i5 4690 á pari við ryzen 3100 - mundi enginn kaupa hann í dag fyrir eitthverja leikjavél. Á sama tíma slátrar 1050 basic kort þessum 750ti kortum - bendir enginn á að kaupa 1050 kort til að fara í leikjaspilun nú til dags.

Finnst þessir titlar svolítið þurfa að fylgja þróun í búnaðinum. Flestir myndu hlægja ef eitthver kæmi með 10 ára fermingarvél sem var þá helvíti flott, eða með geforce 8800 korti og titla sem leikjavél. Tel vaktina ekki vera árbæjarsafn tölvubúnaðar.

Nota bene ég er ekkert að pæla í verði, það er annar handleggur.

ChopTheDoggie skrifaði:Jájá, öll þessu dæmi eru leikjatölvur.
Skiptir engu máli hversu gömul skjákortin eru, eru þá gamlir sportbílar ekki lengur orðnir sportbílar því partarnir eru orðin gömul? :-k


Við skulum nú ekki fara bera saman epli og ananas. Eðlilegra væri að ætla setja fram að bera saman 20 ára lúxusbíl og nýjan lúxusbíl...

Re: Eru allar tölvur leikjatölvur?

Sent: Mið 03. Mar 2021 10:19
af L0ftur
Fer þetta ekki bara svolítið eftir leikjum sem menn spila?

Það mætti kannski hafa fyrirsögn 3 ára gömul leikjavél, 5 ára, 10 ára og svo þar eftir götunum.
Ég myndi halda að tölva sem ætluð er í tölvuleikjaspilun sé leikjavél burt séð frá aldri hennar.
Við meigum ekki bara miða við 3A leiki.

Rétt eins og skrifstofuvél er alveg jafn mikil skrifstofuvél eftir 10 ár, bara þeim mun lélegri.

Við sem þekkjum þetta sjáum strax hvort þetta er búnaður sem hentar okkur eða ekki.