Síða 1 af 1

Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Þri 20. Apr 2021 23:54
af jonsig
Er ég eini sem finnst nýliðarnir hérna (núna)vera oftar en ekki bara í eitthverju braski, eins og t.d. ætla koma 560ti kortinu sínu í verð eða bögga mann með PM hvort maður sé að selja skjákort osvfr. ? Einhverjar bland týpur komnar á vaktina til að þyggja og láta sig síðan hverfa .. Þetta er alveg að detta í að vera pirrandi.

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 00:44
af Haflidi85
Held að þetta sé rétt hjá þér, maður sér að menn eru orðnir duglegir að eyða út söluþráðum þegar hlutur er seldur ofl. sem "gamlir" vaktarar gera ekki.

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 04:54
af hoaxe
Er þetta ekki bara aukin eftirspurn á hardware = leita fleiri ráða og villast svo hingað inn.

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 08:45
af Dropi
Mikið af lélegum söluþráðum líka, engar myndir, jafnvel ekki einusinni linkar. Samt sem áður hljóta að vera nýliðar sem koma hérna inn í esport pælingum eða eh og hafa áhuga á tölvum sem lesa meira en þeir skrifa, ég var ekkert að pósta á vaktinni fyrr en eftir svona 5-6 ár af lurkin! Nú eftir þrítugsaldurinn vellur allskonar vitleysa uppúr manni, filterinn algjörlega horfinn.

Svona í alvöru finnst mér alltaf jafn gaman að lesa langar umræður eftir þessa gömlu hunda sem hafa verið hér í 20 ár, þekki þá nær eingöngu af myndunum en aldrei af nafninu. Væri skemmtilegra ef fleiri væru með profile myndir.

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 09:09
af oliuntitled
Dropi skrifaði:Mikið af lélegum söluþráðum líka, engar myndir, jafnvel ekki einusinni linkar. Samt sem áður hljóta að vera nýliðar sem koma hérna inn í esport pælingum eða eh og hafa áhuga á tölvum sem lesa meira en þeir skrifa, ég var ekkert að pósta á vaktinni fyrr en eftir svona 5-6 ár af lurkin! Nú eftir þrítugsaldurinn vellur allskonar vitleysa uppúr manni, filterinn algjörlega horfinn.

Svona í alvöru finnst mér alltaf jafn gaman að lesa langar umræður eftir þessa gömlu hunda sem hafa verið hér í 20 ár, þekki þá nær eingöngu af myndunum en aldrei af nafninu. Væri skemmtilegra ef fleiri væru með profile myndir.



Tók mig rúmlega 11 ár að komast uppí "Fiktari" !!
Mynd

En ég bætti við prófíl mynd eftir þetta innlegg, bara 11 árum og 9 mánuðum eftir skráningu \:D/

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 09:47
af CendenZ
Það er bara frábært að vaktin fær nýtt fólk til að vera hérna, ég ætla vera svo ískaldur að halda því fram að vaktin fer að verða elsta íslenska virka forumið. :baby

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 10:09
af einarhr
CendenZ skrifaði:Það er bara frábært að vaktin fær nýtt fólk til að vera hérna, ég ætla vera svo ískaldur að halda því fram að vaktin fer að verða elsta íslenska virka forumið. :baby


Sammála þetta er ekkert nema jákvætt

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 10:15
af destinydestiny
Svo lengi sem þeir eru ekki að brjóta neinar reglur, þá finnst mér ekkert að því að nýliðar séu að leyta til fleirri en eins staðar til að auglýsa vöruna sína. Mér finnst það hreint magnað að nokkrir sölupóstar fara í taugarnar þínar, þú verður líka að átta þig á því, að það vilja ekki allir pósta inná hina grúbbunar en lesa sig til um allveg helling inná síðunni og ég sjálfur, hef fengið mjög mikið af gagnlegum upplýsingum. Það er ekki eins og það sé verið að spamma þær grúbbur sem má ekki selja í. Þetta átti ekki að hljóma sem eitthvað "rant". En vildi koma þessu á framfæri. Nýliðar eru líka þeir sem hafa gríðarleg áhrif á að halda forumum uppi.

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 10:51
af worghal
CendenZ skrifaði:Það er bara frábært að vaktin fær nýtt fólk til að vera hérna, ég ætla vera svo ískaldur að halda því fram að vaktin fer að verða elsta íslenska virka forumið. :baby

bara verst hvað þetta al íslenska "ég veit hvað ég er með" plagar marga þessa nýju notendur :lol:

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 10:56
af CendenZ
worghal skrifaði:
CendenZ skrifaði:Það er bara frábært að vaktin fær nýtt fólk til að vera hérna, ég ætla vera svo ískaldur að halda því fram að vaktin fer að verða elsta íslenska virka forumið. :baby

bara verst hvað þetta al íslenska "ég veit hvað ég er með" plagar marga þessa nýju notendur :lol:


Og við þurfum bara að hjálpa þeim aðeins, við vaktararnir höfum nefnilega

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 11:03
af rapport
Vaktin101 á að vera skyldukúrs í allri UT kennslu á landinu

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 11:13
af oliuntitled
Það er ekkert nema gott að nýliðar komi hingað inn, við viljum fleiri inná þennann markað :)
Væri mögulegt að gera reglurnar sýnilegri fyrir nýliða ? auglýsa regluþráðinn í registration póstinum eða álíka.

Veit ekki hvernig það er auglýst í dag þar sem minnið mitt fyrir svoleiðis nær ekki tæp 12 ár aftur í tímann :D

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 12:00
af Dropi
oliuntitled skrifaði:Tók mig rúmlega 11 ár að komast uppí "Fiktari" !!
En ég bætti við prófíl mynd eftir þetta innlegg, bara 11 árum og 9 mánuðum eftir skráningu \:D/

Þú átt svona 2 mánuði upp í 1000 pósta, when it rains it pours!

Fyndið þetta með myndirnar, ég veit hverjir flestir eru eins og "gæjinn með byssuna á hlið" aka rapport - hefði aldrei munað nafnið en myndina þekki ég strax :evillaugh

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 12:02
af Dropi
rapport skrifaði:Vaktin101 á að vera skyldukúrs í allri UT kennslu á landinu

Að vera læs á verðtöflur vaktarinnar ætti að vera spurning á lokaprófi.

Þú kaupir þér RTX 3080 skjákort, hver svínar minnst á þér?
A) Tölvulistinn
B) Att.is
C) Kísildalur
D) Amma gamla

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 14:17
af worghal
Dropi skrifaði:
oliuntitled skrifaði:Tók mig rúmlega 11 ár að komast uppí "Fiktari" !!
En ég bætti við prófíl mynd eftir þetta innlegg, bara 11 árum og 9 mánuðum eftir skráningu \:D/

Þú átt svona 2 mánuði upp í 1000 pósta, when it rains it pours!

Fyndið þetta með myndirnar, ég veit hverjir flestir eru eins og "gæjinn með byssuna á hlið" aka rapport - hefði aldrei munað nafnið en myndina þekki ég strax :evillaugh

Dropi skrifaði:
rapport skrifaði:Vaktin101 á að vera skyldukúrs í allri UT kennslu á landinu

Að vera læs á verðtöflur vaktarinnar ætti að vera spurning á lokaprófi.

Þú kaupir þér RTX 3080 skjákort, hver svínar minnst á þér?
A) Tölvulistinn
B) Att.is
C) Kísildalur
D) Amma gamla

talandi um nýliða og reglur, bannað að pósta oft í röð, nota edit takkann :fly
:lol:

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 14:33
af gnarr
worghal skrifaði:talandi um nýliða og reglur, bannað að pósta oft í röð, nota edit takkann :fly
:lol:


Er "tvisvar" oft? :-k

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 16:34
af Dr3dinn
Af hverju ættu nýliðar að vita hvernig eitthvað virkar? :)

Lífgar upp á vaktina að sjá grunn mistök, við gerum allir/öll mistök eða misskiljum eitthvað.

Eins og með nýliða á vinnustað þarf bara að leiðbeina............. en á sama tíma fýla ég að við séum grimmir við bland.is verðlagningu. (1080ti á 80þ etc, lélegar tölvur á 400þ sem kostar 200þ í innkaupum osfr osfr)

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 17:37
af hoaxe
rapport skrifaði:Vaktin101 á að vera skyldukúrs í allri UT kennslu á landinu


Hahahahahahah, þetta er mögulega besta hugmynd sem komið hefur á vaktinni

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 18:22
af audiophile
CendenZ skrifaði:Það er bara frábært að vaktin fær nýtt fólk til að vera hérna, ég ætla vera svo ískaldur að halda því fram að vaktin fer að verða elsta íslenska virka forumið. :baby


Algjörlega sammála.

Re: Nýliðar á vaktinni ?

Sent: Mið 21. Apr 2021 18:47
af Bandit79
Ég er ennþá nýliði :D Þrátt fyrir að hafa verið hérna í dágóðann tíma. Kýs að lesa meira en að pósta :P En viðurkenni alveg að þegar ég sé eitthvern vera að selja eitthvað á facebook þá bendi ég þeim oftast á vaktina ef þeir vita ekki hvað þeir eru að selja né hvað þeir halda hvers virði það er.