Gott kvöld.
Við þurfum að endurnýja sjónvarpið okkar og ég rak augun í þetta: https://www.coolshop.is/vara/lg-55-oled ... 25/23VJ8K/
Ég notast nær eingöngu við mibox og myndi í raun vilja að viðmótið sé hvað "heimskast" og eins lítið pirrandi og hægt er.
Er þetta þokkalegt fyrir peninginn? Ég er hvorki audiophile né videophile, en vil að sjálfsögðu ekki kaupa drasl.
ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
OLED er algjört videophile sjónvarp. B-línan er ódýrasta OLED línan frá LG og er mjög fín en ekki alveg eins björt og C-línan og hvað þá G-línan. Ef þú ert með sjónvarpið í stofu og með mikla dagsbirtu gæti þetta sjónvarp verið of dimmt fyrir þig. Einnig glmapar nokkuð mikið á OLED sjónvörpin og helst hönnuð fyrir dimmt umhverfi, sérstaklega B-línan. Þetta getur verið pirrandi á íslandi á sumrin þegar það er sól allan sólarhringinn.
En myndgæðin á LG eru langbest og ég er viss um að þú munir kunna að meta þau þrátt fyrir að vera ekki videophile. En ef þér er sama um það þá geturðu fengið stærra sjónvarp fyrir sama pening. Persónulega finnst mér 55" nokkuð lítið árið 2026 fyrir sjónvarp í stofu. En ég veit ekki hvaða stærð aðstaðan þín leyfir.
Þetta virðist vera sæmilegt verð fyrir OLED sjónvarp samt, en það er mjög oft góður afsláttur hjá Rafland og einnig nokkuð góðir dílar í Costco ef þú ert ekki að drífa þig að kaupa.
EF þú ætlar að skoða eitthvað annað þá færðu mikið fyrir peninginn með TCL Mini-LED sjónvörpunum. Mini-LED er næst best á eftir OLED. Mini-LED getur verið mjög bjart og einnig með góðan svartan lit. Mun betra en QLED.

-
ABss
Höfundur - has spoken...
- Póstar: 185
- Skráði sig: Mið 25. Mar 2020 11:08
- Reputation: 73
- Staða: Ótengdur
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Takk fyrir þetta, þetta hjálpar. Eins og staðan er núna er sjónvarpið frekar nálægt og því 55" yfirdrifið nóg. Ég vil því ekki stærra. Ég myndi giska á að hitta sé 42"? 48"? Hvað svo sem var normið fyrir sirka 10 árum.
Orðum það þannig, ég myndi velja mér þokkalega góða skó þrátt fyrir að vera ekki hlaupari né stunda fjallgöngur. Þannig að þetta ætti að heita gott fyrir peninginn?
Ætti ég að skoða þessa G og C línu frekar? Jafnvel minna ef gæðin eru þeim mun betri?
Gamla var Samsung og viðmótið í því bara allt í lagi. Er viðmótið í LG þokkalegt?

Síðast breytt af ABss á Mán 16. Feb 2026 20:26, breytt samtals 1 sinni.
-
cocacola123
- Ofur-Nörd
- Póstar: 263
- Skráði sig: Þri 29. Sep 2009 20:38
- Reputation: 18
- Staða: Tengdur
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Ég á sjálfur LG C3 55 tommu.
En C línan er með bjartari skjá en B línan sem getur munað þó miklu hérna á sumrin.
En mæli 110% með þessum sjónvörpum. Myndin er mjög frábær.
Viðmótið er bara svipað "fínt" og í samsung. Maður er fljótur að læra inn á þetta.
En langaði bara að benda á að Lg oled 6 línan kemur úr upp úr mars og þá fer 5 línan á mikinn afslátt.
Ég keypti mitt C3 55 tommu á 200þúsund þegar C4 var að koma út.

Drekkist kalt!