Gott kvöld.
Við þurfum að endurnýja sjónvarpið okkar og ég rak augun í þetta: https://www.coolshop.is/vara/lg-55-oled ... 25/23VJ8K/
Ég notast nær eingöngu við mibox og myndi í raun vilja að viðmótið sé hvað "heimskast" og eins lítið pirrandi og hægt er.
Er þetta þokkalegt fyrir peninginn? Ég er hvorki audiophile né videophile, en vil að sjálfsögðu ekki kaupa drasl.
ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
OLED er algjört videophile sjónvarp. B-línan er ódýrasta OLED línan frá LG og er mjög fín en ekki alveg eins björt og C-línan og hvað þá G-línan. Ef þú ert með sjónvarpið í stofu og með mikla dagsbirtu gæti þetta sjónvarp verið of dimmt fyrir þig. Einnig glmapar nokkuð mikið á OLED sjónvörpin og helst hönnuð fyrir dimmt umhverfi, sérstaklega B-línan. Þetta getur verið pirrandi á íslandi á sumrin þegar það er sól allan sólarhringinn.
En myndgæðin á LG eru langbest og ég er viss um að þú munir kunna að meta þau þrátt fyrir að vera ekki videophile. En ef þér er sama um það þá geturðu fengið stærra sjónvarp fyrir sama pening. Persónulega finnst mér 55" nokkuð lítið árið 2026 fyrir sjónvarp í stofu. En ég veit ekki hvaða stærð aðstaðan þín leyfir.
Þetta virðist vera sæmilegt verð fyrir OLED sjónvarp samt, en það er mjög oft góður afsláttur hjá Rafland og einnig nokkuð góðir dílar í Costco ef þú ert ekki að drífa þig að kaupa.
EF þú ætlar að skoða eitthvað annað þá færðu mikið fyrir peninginn með TCL Mini-LED sjónvörpunum. Mini-LED er næst best á eftir OLED. Mini-LED getur verið mjög bjart og einnig með góðan svartan lit. Mun betra en QLED.

-
ABss
Höfundur - has spoken...
- Póstar: 186
- Skráði sig: Mið 25. Mar 2020 11:08
- Reputation: 73
- Staða: Ótengdur
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Takk fyrir þetta, þetta hjálpar. Eins og staðan er núna er sjónvarpið frekar nálægt og því 55" yfirdrifið nóg. Ég vil því ekki stærra. Ég myndi giska á að hitta sé 42"? 48"? Hvað svo sem var normið fyrir sirka 10 árum.
Orðum það þannig, ég myndi velja mér þokkalega góða skó þrátt fyrir að vera ekki hlaupari né stunda fjallgöngur. Þannig að þetta ætti að heita gott fyrir peninginn?
Ætti ég að skoða þessa G og C línu frekar? Jafnvel minna ef gæðin eru þeim mun betri?
Gamla var Samsung og viðmótið í því bara allt í lagi. Er viðmótið í LG þokkalegt?

Síðast breytt af ABss á Mán 16. Feb 2026 20:26, breytt samtals 1 sinni.
-
cocacola123
- Ofur-Nörd
- Póstar: 263
- Skráði sig: Þri 29. Sep 2009 20:38
- Reputation: 18
- Staða: Tengdur
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Ég á sjálfur LG C3 55 tommu.
En C línan er með bjartari skjá en B línan sem getur munað þó miklu hérna á sumrin.
En mæli 110% með þessum sjónvörpum. Myndin er mjög frábær.
Viðmótið er bara svipað "fínt" og í samsung. Maður er fljótur að læra inn á þetta.
En langaði bara að benda á að Lg oled 6 línan kemur úr upp úr mars og þá fer 5 línan á mikinn afslátt.
Ég keypti mitt C3 55 tommu á 200þúsund þegar C4 var að koma út.

Drekkist kalt!
-
Prentarakallinn
- spjallið.is
- Póstar: 415
- Skráði sig: Mið 01. Jún 2011 13:22
- Reputation: 32
- Staða: Tengdur
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Á sjálfur B4 sem er eldri týpan og ógeðslega ánægður með það en vandinn með oled er að þetta er organic light-emitting diode (OLED) sem þýðir að það getur komið svokallað burn-in. Það gerist ef maður t.d spilar alltaf sama leikinn eða horfir á sömu sjónvarpsstöð þá geta hlutir eins og t.d Rúv merkið brunnið í skjáinn sem svona léttur skuggi. Svo geta þau líka skemmst við það aðstanda í beinu sólarljósi eins og inní stofu, þetta er orðið frekar mikið non-issue í dag en samt ennþá möguleiki í ýktum tilfellum. Þannig ef þú villt bestu myndgæði, horfir á fjölbreytt efni og ert ekki með það inní stofu með engar gardínur þá færðu ekki betri myndgæði fyrir verðið. En ef þú villt mjög góð myndgæði en idiot proof notkun þá mæli ég með þessu TCL sjónvarpi, það er með alla fítusa sem þú þarft, HDMI 2.1, 144Hz, Svæðaskipt baklýsing (eins og oled bara MUN færri baklæysingar svæði), Google TV stýrikerfi o.s.f.
https://elko.is/vorur/tcl-55-mqled80k-mini-led-sjonvarp-2025-396942/55MQLED80K
Dæmi um mun á oled og Mini Led baklýsingu
https://youtube.com/shorts/TmriyWIHy0E?si=vfz0aYmP0CBvkVNh
https://elko.is/vorur/tcl-55-mqled80k-mini-led-sjonvarp-2025-396942/55MQLED80K
Dæmi um mun á oled og Mini Led baklýsingu
https://youtube.com/shorts/TmriyWIHy0E?si=vfz0aYmP0CBvkVNh
TV: LG G4 | Soundbar: LG SNY7
Ryzen 5 3700X | Gainward RTX 4060 | 32 GB Crucial Ballistix 3200Mhz
Ryzen 5 3700X | Gainward RTX 4060 | 32 GB Crucial Ballistix 3200Mhz
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Já þetta sjónvarp sem þú sendir er mjög gott fyrir peninginn. Ég á sjálfur LG C3 og er mjög ánægður með það. B-línan er dimmari og því ekki eins góð highlights á myndefni en samt eflaust miklu betra lita accuracy en önnur sjónvörp sem eru ekki OLED. Þú verður soldið að meta það út frá birtuaðstæðum í stofunni hjá þér. En almennt hefur C-línan verið vinsælust og besti millivegurinn fyrir birtustig og kostnað. G-línan er mjög dýr.
Ég tek undir það sem var sagt hér með afslætti þegar ný lína kemur. Hef líka séð góða afslætti hjá Rafland án þess að það sé ný lína komin, t.d. fyrir áramót minnir mig að LG C5 55" hafi verið á 200.000 eða 230.000. Það kemur vanalega útsala í mars hjá annaðhvort Heimilistækjum eða Raflandi. LG B6 og C6 línurnar koma út annaðhvort í Mars eða Apríl þá ætti að detta inn góður afsláttur á C5 og B5. En þú þarft að vera snöggur, þau fara hratt.
´
Ég myndi ekki pæla í þessu burn in neitt svakalega ef þú ert bara að nota þetta sem eðlilegt sjónvarp. Ég hef aldrei lent í þessu og enginn í kringum mig sem á OLED. Eflaust getur þetta gerst en tekur langan tíma og innbyggða vörnin við þessu í nýlegu sjónvörpunum er mjög góð.

falcon1
- </Snillingur>
- Póstar: 1039
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 139
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: ÓE: Aðstoð við val á sjónvarpi
Fjárfesta í góðum myrkragardínum. Mesti munurinn hjá mér var þegar það varð loksins myrkur í stofunni þar sem sjónvarpið er. 