Síða 1 af 1
Ódýr Android box. Hvað er skást
Sent: Mán 13. Okt 2025 10:48
af littli-Jake
Ég er með Nvidia box í stofunni en nú þarf að græja eitthvað svipað hjá guttunum.
Er búinn að vera að horfa á Mii boxið en er ekki viss um að það sé að fara að vera smoth.
Væri kannski best að nota bara PS4 til að setja upp eitthvað IPTV, Plex og eitthvað þannig?
Re: Ódýr Android box. Hvað er skást
Sent: Mán 13. Okt 2025 13:44
af Dropi
Ég hef endurnýjað Xiaomi boxið mitt í hvert skipti sem nýtt kemur út. Nýtt kostar 13 þús, ég sel það gamla á 5000kr og þetta hef ég gert núna á 2-3 ára fresti.
Lítill kostnaður fyrir að halda hlutunum smooth. Mi box 3 kom út í sumar.
Re: Ódýr Android box. Hvað er skást
Sent: Mán 13. Okt 2025 18:30
af littli-Jake
Og er Mii 3 að standa sig þokkalega?
Re: Ódýr Android box. Hvað er skást
Sent: Mán 13. Okt 2025 23:19
af einarhr
littli-Jake skrifaði:Og er Mii 3 að standa sig þokkalega?
er með 3 Mi Andriod tv, 1 Me box 3, 1 Mi box 3s 4k og eitt Mibox TV stick 4k, öll til fyrirmyndar, er með Mibox 3s með usb netkorti svo það keyrir 4K Atmos mjög vel af td Plex, er með hin á Wifi 1080p inni í svefnherbergi og þau er frábær
Re: Ódýr Android box. Hvað er skást
Sent: Mán 13. Okt 2025 23:52
af J1nX
er með sirka 5ára gamalt mii box sem svínvirkar ennþá

mæli með
Re: Ódýr Android box. Hvað er skást
Sent: Þri 14. Okt 2025 11:59
af Gorgeir
Ég er með 1 stk Mibox 3s. Stendur fyrir sínu. Ekkert svaka snappy en gerir það sem það segist geta.
Er svo með Google streamerinn frá Google (keypti hann reyndar í US á 99 dollara sem er ansi betra verð en hér heima.) Það tæki svínvirkar vel og fer með í öll ferðalög og spilar allt af Plex og hinum veitunum.
Nota svo Skjöldinn fyrir sjónvarpið heima. Allir vita hvað það getur en það kostar mest.
Get hiklaust mælt með Miboxinu ef þú villt budget (granted er bara með 3s og 4 er klárlega betra en það)
Re: Ódýr Android box. Hvað er skást
Sent: Þri 14. Okt 2025 16:37
af littli-Jake
Jæja ég er sannfærður. Skelli mér á Mii