Ég var að setja upp media center heima hjá mér í gær með Plex og allt gekk eins og í sögu. Nema ég tók síðan eftir því að helmingurinn af þáttunum í einni af þáttaséríunni minni sjást ekki en hinn helmingurinn sést. Allir þættirnir eru avi skrár og af svipaðri stærð, ég er búinn að refresha margoft án þess að plex detecti annan helminginn af þáttunum. Hefur einhver hér lennt í svipuðu eða hefur einhverja hugmynd hvað sé að hjá mér ?
Með von um að einhver sé með lausn á þessu vandamáli mínu
Kveðja, Gísli