Síða 1 af 1

framlengju á hátarlafestingu

Sent: Lau 10. Sep 2022 21:09
af gutti
Hvar get ég keypt eða láta búa til framlengju á hátarlafestingu sirka 90 cm lengt ?

Re: framlengju á hátarlafestingu

Sent: Sun 11. Sep 2022 11:10
af Hlynzi
Ég myndi bara kíkja með þetta í stálsmiðju, Myndu bara saga rörið og sjóða nýtt í, það væri líka hægt að fá rör sem passar yfir hvíta rörið, bora göt á það fyrir skrúfu til að fara í gegn og göt fyrir svörtu hátalara festinguna og festa þar.

Eina festingin sem mér dettur í hug til sölu er fyrir kapalstiga (raflagnir hangandi undir lofti) en þær eru aldrei kringlóttar svo það þyrfti smá föndur til að festa hitt á.

Re: framlengju á hátarlafestingu

Sent: Mán 12. Sep 2022 12:26
af Manager1
Notaðu bara kústskaft, auðvelt að vinna með það og svo lakkaru það bara hvítt og enginn sér muninn :megasmile

Re: framlengju á hátarlafestingu

Sent: Mán 12. Sep 2022 14:35
af Viktor
Getur sagað rör af hækju, þá ertu kominn með stillanlega hæð. Mikið til í góða hirðinum.