Síða 1 af 1

Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Mið 01. Mar 2023 22:07
af frjáls
Kæru vaktarar.
Ég bý á Spáni og er að hjálpa eldri vinum mínum sem lentu í að fá inn óboðna gesti fyrir stuttu.
Hvernig öryggismyndavélum mælið þið með til að setja upp í einbýli á einni hæð ?
Þarf að vera :
Úti og inni
WiFi
Hleðslurafhlöður
Góð upplausn
Einfalt í notkun.
Ský
Takk fyrir

Re: Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Mið 01. Mar 2023 23:07
af Semboy
Eg profadi ring a sinum tima, thad var varla ending af thessum battery.
Eg mundi hiklaust ad fa mer poe myndavelar og sidan swiss sem bidur uppa poe og tha thartu bara cat snuru a milli.

Re: Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Fim 02. Mar 2023 00:59
af Peacock12
Hafðu vælu úti. Margir feila á að hafa væluna inn. Mesta lagi pirrar nágrannana smá og þjófarnir eru ekkert að flýta sér. Ef eh lúður fer í gang úti fælir það miklu meira frá.

Re: Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Fim 02. Mar 2023 16:54
af kjartanbj
Ekki vesenast með batterís vélar og eitthvað drasl, bara kaupa snúrutengdar vélar með Poe straum. allt annað er bara vesen. Ég sjálfur er með Unifi vélar , búnar að vera skotheldar síðan 2018

Re: Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Fös 03. Mar 2023 21:27
af kjartann
frjáls skrifaði:Kæru vaktarar.
Ég bý á Spáni og er að hjálpa eldri vinum mínum sem lentu í að fá inn óboðna gesti fyrir stuttu.
Hvernig öryggismyndavélum mælið þið með til að setja upp í einbýli á einni hæð ?
Þarf að vera :
Úti og inni
WiFi
Hleðslurafhlöður
Góð upplausn
Einfalt í notkun.
Ský
Takk fyrir


Ég hef heyrt góða hluti um UniFi myndavélarnar, það er örugglega þess virði að skoða þær.

Re: Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Lau 04. Mar 2023 02:09
af Baldurmar
Fá tilboð hjá local öryggisfyrirtæki á uppsetningu og rekstri á þessu. Ég myndi ekki nenna persónulega að halda úti öryggiskerfi hvað þá (mögulega) tækniheft eldra fólk...

Re: Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Lau 04. Mar 2023 02:11
af Peacock12
Hvað er markmiðið?
Að hafa myndavélar þannig að eigandinn getur fylgst með þjófunum að verki í Malaga þar sem hann situr heima í Kópavogi gerir ekkert svakalegt gagn. Jafnvel þótt hann fái meldingu í símann og geti tjekkað hvað er að gera á hann eftir að hringja í lögregluna þarna úti og fá þá til að gera eitthvað. Kemur að tjónuðu og tómu húsi og eina jákvæða er að hann á smá videó af þvi.

Endilega hafðu vélar, en byggðu öryggið á öðrum einfaldari þáttum:
Ljóst tengd hreyfiskynjara við alla staði sem væri hægt að lauma sér inn, t.d. hurðir og glugga.
Góðar krækjur á öllum gluggum.
Góðan slagbrand og þriggja punkta læsingar á hurðum.
Þjófakerfi með hreyfiskynjara og lúðurinn undir þakskyggninu fyrir utan.
Góðar merkingar um þjófakerfi sýnilegar að utan.
Tímarofa á ljósum inni þannig að virðist vera eh í húsinu.
Ring dyrabjöllu þannig að ef þjófurinn gerir smá tjekk með að dingla er hann ekkert viss hvort eh sé í húsinu eða ekki.
Ef húsið stendur tómt til lengri tíma þá athuga með að setja rimlahlera yfir glugga (hef oft séð þá þannig að þeir eru hengdir upp að innan og svo bara teknir niður þegar komið er í húsið).
Semja við öryggisþjónustu á staðnum.

Re: Öryggiskerfi fyrir einbýlishús á Spáni

Sent: Lau 04. Mar 2023 03:13
af BugsyB
ajax