Síða 1 af 1

Óska eftir turni með nokkuð góðu skjákorti

Sent: Mán 23. Feb 2026 17:41
af ornorra
Óska eftir turni fyrir golfhermi. Kröfurnar eru aðallega varðandi skjákort sem þarf að vera 3070 eða 3060Ti. Kröfurnar varðandi CPU eru ekki svakalegar, núna er ég með Intel i7-2600, 3,4GHz og það dugar vel. Diskur SD amk 512GB (er með 256GB og það er of lítið). Minni tölvunnar er núna 16GB og sleppur en 32GB væri betra til framtíðar.

Ekki þarf skjá.

Windows leyfi þarf svo auðvitað.

Er í Reykjavík

Re: Óska eftir turni með nokkuð góðu skjákorti

Sent: Mán 23. Feb 2026 18:08
af gunni91
ornorra skrifaði:Óska eftir turni fyrir golfhermi. Kröfurnar eru aðallega varðandi skjákort sem þarf að vera 3070 eða 3060Ti. Kröfurnar varðandi CPU eru ekki svakalegar, núna er ég með Intel i7-2600, 3,4GHz og það dugar vel. Diskur SD amk 512GB (er með 256GB og það er of lítið). Minni tölvunnar er núna 16GB og sleppur en 32GB væri betra til framtíðar.

Ekki þarf skjá.

Windows leyfi þarf svo auðvitað.

Er í Reykjavík


Get græjað eitthvað í þetta. Hentu á mig linu

8228076

Re: Óska eftir turni með nokkuð góðu skjákorti

Sent: Mán 23. Feb 2026 19:09
af Moldvarpan
ornorra skrifaði:Óska eftir turni fyrir golfhermi. Kröfurnar eru aðallega varðandi skjákort sem þarf að vera 3070 eða 3060Ti. Kröfurnar varðandi CPU eru ekki svakalegar, núna er ég með Intel i7-2600, 3,4GHz og það dugar vel. Diskur SD amk 512GB (er með 256GB og það er of lítið). Minni tölvunnar er núna 16GB og sleppur en 32GB væri betra til framtíðar.

Ekki þarf skjá.

Windows leyfi þarf svo auðvitað.

Er í Reykjavík


Nú er ég lítið inní golf heiminum, en þú ert að tala þarna um að 15 ára örgjörvi dugi vel? Ég á soldið bágt með að trúa því.

Hvaða golf hermi ertu að fara setja upp/nota?

Re: Óska eftir turni með nokkuð góðu skjákorti

Sent: Mán 23. Feb 2026 19:30
af ornorra
Þú verður bara að trúa mér hvað það varðar. En umræðan á svo sem ekki að snúast um golfherminn, ef þú ert áhugasamur þá er þetta það sem ég er að gera : Keyri GS-PRO í HD upplausn (medium to high graphics). Neminn er frá Unekoor. Það reynir langmest á skjákortið, mitt GTX1070 er aðeins að rembast þar.

Að því sögðu þá býst ég auðvitað við að menn bjóði nýrri örgjörva og væntanlega eitthvað betri en það er ekki alltaf þannig að nýrri sé betri í þessum bransa ef ég skoða cpu.userbenchmark.com