Ég hef ætlað mér að kaupa tölvu með intel örgjörva og Geforce 7800gt, ekkert mikið pælt í rest, mun það ekki virka eins vel og það á að gera ef ég er með DDR minni?
 
 
svona til að taka það fram veit ég mjög lítið um tölvur

 
 

faithless skrifaði:Þakka ykkur fyrir
Vantar bara turn án harðadisks og minnis og ætla að reyna að vera í kringum 80.000.
Ein spurning enn, AMD x2 3800, hver er munurinn á Retail og OEM og hvoru munduði mæla með?
@Arinn@ skrifaði:Ef þú ert að fá þér dualcore þá þarf mjög líklega að flasha BIOS ef þú kannt það ekki myndi ég láta einhvern annann gera það fyrir þig.

Veit Ekki skrifaði:@Arinn@ skrifaði:Ef þú ert að fá þér dualcore þá þarf mjög líklega að flasha BIOS ef þú kannt það ekki myndi ég láta einhvern annann gera það fyrir þig.
Það þarf nú ekkert að vera ef hann fær sér fínt móðurborð. Svo ef hann segist ekki kunna mikið á tölvur þá fer hann nú varla að setja þetta saman sjálfur.
Ég legg til að þú farir í Kísildalinn http://www.kisildalur.is og kaupir þar og látir setja saman fyrir þig.