Plasma tv spurning

Skjámynd

Höfundur
Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3772
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 134
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Plasma tv spurning

Pósturaf Pandemic » Sun 16. Jan 2005 13:29

Jæja fjölskyldan er að pæla í að fjárfesta í sjónvarpi og helst ekkert minna en 42-50tommur. Hvað er best að fá sér. Við höfum verið að pæla í Panasonic TH-50PHD7UY Plasma og fá það beint frá útlöndum.
Eru einhverjir sérfróðir menn hér um stór sjónvörp og myndvarpa.
Okkur finnst myndvarpar vera frekar lélegur kostur vegna þess ef það kemur birta inn þá sést varla á sjónvarpið og það þarf að skipta um peru á 1-2ára fresti.

Vitiði nokkuð um verslun sem sendir svona flikki til Íslands?



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Sun 16. Jan 2005 13:49

Panasonic sjónvörpin eru skástu plasma-tækin, eða voru það allavega síðast þegar ég vissi. Þekki einn með svona 50" Panasonic tæki. Kemur alveg ágætlega út - fulllítið kannski. ;)

Ertu búinn að skoða verðin hjá Svar annars?* Þau eru ekkert rosalega ósanngjörn þar (eins og t.d. hjá Sony setrinu!!!) og svo er alltaf hægt að fá 10-15% afslátt af svona dýrum tækjum. Ég væri allavega alveg til í að borga smá aukalega gegn því að hafa íslenskan ábyrgðaraðila og 2ja ára ábyrgð.

*Ég vinn ekki hjá Svar en ofangreindur aðili keypti sitt tæki þar.




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 16. Jan 2005 14:18

Ég mæli með Pioneer plazma's, frændi minn sem á allt of mikinn pening átti eitt 42" sem ég gapti allveg yfir en seldi það og fékk sér annað 60" :?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6590
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 363
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Sun 16. Jan 2005 14:22

afhvejru ekki að fá sér frekar mjög góðann skjávarpa heldur en plasma sjónvarp.

skjávarpinn er mun ódýrari, og þú getur verið með muuun stærra "sjónvarp"


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1049
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 137
Staða: Tengdur

Pósturaf Revenant » Sun 16. Jan 2005 14:36

Ég heyrði að einkaleyfið á plasma tækjunum hafi runnið út núna um áramótin, þannig að þessi tæki ættu að lækka í verði á næstu mánuðum.

Ath. Þetta er aðeins orðrómur sem ég heyrði!



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Sun 16. Jan 2005 14:40

Nú er ég ekkert að ota að þér skjávarpahugmyndinni en ef þú skyldir vera að spá í því þá mæli ég eindregið með Panasonic LT-700 á 190þ í Svar.*

Já, aðeins meir í sambandi við ofangreindan aðila sem keypti sér sitt 50" plasma tæki í Svar:
Hann var semsagt búinn að pæla í þessu heillengi eða sirka 1/2 ár (var að flytja og vildi kaupa í nýja húsið). Hann skoðaði hvort það væri hagstætt að panta að utan og þessháttar en m/v verðin sem honum buðust í Svar þá fannst honum ekki taka því að panta frá útlandinu.
Annars er dollarinn auðvitað búinn að lækka heilmikið síðan þá svo hver veit? Finnur fullt af verslunum og verðum á Froogle.
Mér sýnist vera hagstæðara að kaupa tækið frekar hjá Svar ef maður fær allavega 10% afslátt.

*Lítur nokkuð of mikið út eins og ég vinni þar?




everdark
Ofur-Nörd
Póstar: 261
Skráði sig: Sun 04. Apr 2004 18:29
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Pósturaf everdark » Sun 16. Jan 2005 19:42

Hvernig er það, eru Plasma sjónvörp í dag ekki að upplitast svolítið mikið?




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 16. Jan 2005 20:13

Ég held að ef þú sért að pæla á flötum sjónvörpum ættiru frekar að fá þér LCD




biggi1
spjallið.is
Póstar: 440
Skráði sig: Mið 01. Des 2004 00:33
Reputation: 3
Staðsetning: Brh..
Staða: Ótengdur

Pósturaf biggi1 » Sun 16. Jan 2005 20:15

ég sá í Expert annsi flott 52" plasma TV, kostaði "aðeins" 1,8 millur



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Sun 16. Jan 2005 20:28

hahallur skrifaði:Ég held að ef þú sért að pæla á flötum sjónvörpum ættiru frekar að fá þér LCD

Neibb, bara ef maður er að kaupa þessi litlu (32" og undir).

Bæti við að flestir eru að okra á þessum sjónvörpum (t.d. BT og Sony setrið) en mér finnst 50" Panasonic tækið í Svar vera á nokkuð hófsömu verði eða 600.000 kr. (og ég myndi líklega kaupa Panasonic eða Pioneer óháð verðinu).


Íslenskar gæsalappir eru „ og “ (99 og 66). Þær má framkalla með alt-0132 og alt-0147.

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Sun 16. Jan 2005 21:06

En einhversstaðar las ég á netinu um daginn að LCD og Plasma skjáir væru frekar slappir í gæðum m.v. gömlu góðu túburnar. Passar það?



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Sun 16. Jan 2005 21:29

Já, það er rétt.


Íslenskar gæsalappir eru „ og “ (99 og 66). Þær má framkalla með alt-0132 og alt-0147.


hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 16. Jan 2005 21:46

Ekki nema kannski þessir litlu lcd eða undir 32"




biggi1
spjallið.is
Póstar: 440
Skráði sig: Mið 01. Des 2004 00:33
Reputation: 3
Staðsetning: Brh..
Staða: Ótengdur

Pósturaf biggi1 » Sun 16. Jan 2005 22:37

MezzUp skrifaði:En einhversstaðar las ég á netinu um daginn að LCD og Plasma skjáir væru frekar slappir í gæðum m.v. gömlu góðu túburnar. Passar það?


já eins og þessi 52" sem ég var að tala um áðann þá er teigt svo mikið úr myndinni en túpurnar fást ekkert stórar, nema rear projektor, allt ekki fá ykkur svoleiðis, frekar myndvarpa, það er neflilega svo stuttur endingatími á perunum í rear projektor