Já þið segið það... ég verð að deila með ykkur miður bitri reynslusögu af töpuðum Gögnum..
Þetta var á björtum degi í ágúst mánuði.. þegar Síminn hélt hið fræga Skjálftamót, þá var GimliGamli á kæjanum líkt og vanalega og var búinn að snáka alveg helvítis helling af dóti..
Það er ekki frásögu færandi nema hvað.. að á Sunnudeginum þá allt í einu vantaði bara heilu möppurnar í tölvunni... Mér rann kalt vatn milli skins og hörunds og ég missti þvag og krullaðist þegar ég áttaði mig á því að þarna var horfið um 40GB af stöffi... mjög persónulegu líka.. Allt var gert til að reyna að endurheimta þetta en ekkert gékk upp.. En þetta var ekki endirinn á þessu helvíti.. Heldur fékk ég faglegan aðstoðarmann til að aðstoða mig við að formatta og hreinsa svo vélina og skipta HD niður í partitions... og nota bene þá er þessi drengur einnig starfsmaður Símans og einn af Stjórnendum Skjálfta..
En í staðinn fyrir að skipta niður partition .... þá FORMATTAÐI hann það eina sem ég átti eftir á Harða disknum.. Já... ég þakkaði honum pent fyrir með hringsparki í andlit og 40 höggum í röð í nýrun og er hann ennþá gubbandi blóði
Þannig að eftir stóð ég ..Geeersamlega úti að drulla hvað gagnamagn á Vélbúnaði varðar.. og með Kerfisfræðing í Sjokki og talandi Hebresku allt í einu Reiðbrennandi ...
..The morale with this story .... = Að endurheimta töpuð gögn getur verið hættulegt ... reyndu frekar að taka backup af því sem þú átt eftir
..Takk fyrir mig í bili ...