Síða 1 af 1

DVI

Sent: Þri 21. Ágú 2007 10:33
af Daz
Var svona að láta mig dreyma um skjái eins og ViewSonic VX2835WM og sé að hann hefur ekki DVI tengi heldur þarf HDMI breytistykki á hann. Ég reyndi aðeins að gúggla mér þekkingu um DVI en fékk lítið útúr því. Hversu mikilvægt er að nota DVI í staðinn fyrir gamaldags VGA tengið og er verra að þurfa að nota breytistykki á HDMI tengið heldur en að hafa alvöru DVI tengi?

Sent: Þri 21. Ágú 2007 10:58
af ManiO
Áður en þú tekur mig 100% áreiðanlegan þá er þetta bara upplýsingar sem ég hef í raun "lagt saman 2 og 2" með. HDMI og DVI eru bæði digital tengi, VGA er analog. HDMI er bæði audio og video signal en DVI er bara video. Fræðilega þá missiru einhver gæði á að nota DVI í HDMI breytistykki, en hvort þú takir eftir því, ólíklegt.

En eins og ég sagði við upphaf innleggsins þá er ég enginn expert í þessum málum.

Sent: Þri 21. Ágú 2007 11:15
af Klesh
svo líka sambandi við þennan skjá þá er 800:1 í hlutföllum frekar lágt við skjá af þessu caliberi, frekar að kaupa þér bara sjónvarp, en þar náttúrulega tapast skerpan, það eru til betri skjáir með hærri hlutfalla tíðni, mæli sterklega með að kynna þér aðrar týpur, svo er 5ms skuggalega lítið, mjög líklega er þetta gray to gray þá

Sent: Þri 21. Ágú 2007 12:34
af Daz
Klesh skrifaði:svo líka sambandi við þennan skjá þá er 800:1 í hlutföllum frekar lágt við skjá af þessu caliberi, frekar að kaupa þér bara sjónvarp, en þar náttúrulega tapast skerpan, það eru til betri skjáir með hærri hlutfalla tíðni, mæli sterklega með að kynna þér aðrar týpur, svo er 5ms skuggalega lítið, mjög líklega er þetta gray to gray þá

Ég myndi nú kynna mér málið betur já áður en ég keypti eitthvað svona dýrt, en fyrir þessa stærð er þessi skjár mjög ódýr (og það litla sem ég nennti að finna reviews fyrir hann komu þau mjög vel út).

Sent: Þri 21. Ágú 2007 13:40
af hagur
Þegar þú tengir digital skjá (eins og LCD er) við tölvu í gegnum VGA, þá þarf skjákortið að umbreyta digital merki í analog (sem er það sem DAC-ið á skjákortinu gerir), flytja analog merki eftir VGA kaplinum og skjárinn breytir svo analog merkinu aftur í digital til birtingar.

VGA v.s DVI getur haft mjög mikið að segja. Mismikið samt eftir gæðum þessara breyta, þ.e analog to digital breytisins í skjánum og DAC í skjákortinu. Einnig getur VGA snúran haft mikið að segja.

Dæmi: Í vinnunni er ég með 20" LCD skjái, annar er tengdur með DVI en hinn VGA. Þeir eru nákvæmlega eins að öllu leyti. Sá sem er tengdur með VGA er alveg greinilega meira fuzzy. Ákveðna grátóna liti sé ég einfaldlega ekki á honum, og brightness/contrast stillingar breyta litlu. DVI tengdi skjárinn er hinsvegar alveg crisp og fínn.

Heima er ég svo með Samsung 226BW skjá. Hann er reyndar með DVI tengi, en ég er með hann tengdan við lappa sem er ekki með DVI out. Mér finnst þessi skjár koma gríðarlega vel út og skila öllum litum vel, þrátt fyrir að hann sé bara VGA tengdur. Ég hef reyndar engan samanburð, þar sem ég hef aldrei tengt hann með DVI.

Semsagt, VGA v.s DVI getur skipt og skiptir yfirleitt einhverju, en í flestum tilfellum held ég að maður sjái ekki mikinn mun.

En ef skjárinn er með HDMI tengi, þá þarf bara DVI->HDMI adapter eins og þú segir og þú átt ekki að tapa neinum gæðum á því. HDMI á að vera 100% compatible með DVI. Ég hef skoðað þetta töluvert mikið og hef hvergi séð minnst á að svona adapter komi niður á gæðum. Þetta er digital merki, og það er ekkert active conversion í gangi þarna, bara umröðun á pinnum eftir því sem ég best veit. Þú færð því annaðhvort fullkomna mynd eða enga mynd :)

Sent: Þri 21. Ágú 2007 14:09
af Xyron
kannski líka rétt að taka það fram að það eru til 3 týpur af dvi ss.
dvi-d sem er bara digital
dvi-a sem er bara analog
dvi-i sem getur flutt bæði merki
Mynd
síðan eru til digital dvi snúrur sem geta flutt tvöfalt merki (dual link) fyrir skjái sem eru með mjög háa upplausn.. ss. bara skjáir sem notaðir eru í professional vinnslu

Re: DVI

Sent: Mið 22. Ágú 2007 10:18
af °°gummi°°
Daz skrifaði:Var svona að láta mig dreyma um skjái eins og ViewSonic VX2835WM og sé að hann hefur ekki DVI tengi heldur þarf HDMI breytistykki á hann. Ég reyndi aðeins að gúggla mér þekkingu um DVI en fékk lítið útúr því. Hversu mikilvægt er að nota DVI í staðinn fyrir gamaldags VGA tengið og er verra að þurfa að nota breytistykki á HDMI tengið heldur en að hafa alvöru DVI tengi?
Ég sé að hann er uppseldur svo ég vildi benda þér á að kaupa ekki þennan skjá nema hafa skoðað hann í gangi fyrst. Málið er að þegar maður situr við svona stóran skjá þá er það sem er lengst til hægri og vinstri svo langt frá manni að litirnir geta verið farnir að brenglast. Það er TN/film panell í þessum skjá og á þeim eru litirnir fljótir að brenglast um leið og horft er á þá frá hlið.