Nei, ég hugsa að þú þurfir ekki einusinni að niðurklukka. Þessi örgjörvi væri fínn með Zalman Flower eða einhverju. Myndi samt ekki borga sig til lengdar.
BTW
Hann er rock-stable á 2Ghz á 1.475V fór aldrei yfir 29°C alla fjóra tímana sem ég var að keyra Prime95. Það leiðinlegasta fyrir mig er það að minnið er að takmarka mig þegar brautarhraðinn er annars vegar, ég get ekki keyrt það hraðar en 200Mhz. Ég á samt eftir að skoða það betur og prófa allar þessar minnisstillingar á LanParty Ultra B móðurborðinu...
En svona til að fólk átti sig á því hvað er í gangi, þá er tölvan byggð upp af eftirfarandi:
Móðurborð: DFI LanParty NFII Ultra B
Örgjörvi: AMD Athlon XP Mobile 2400+
Kæling: Asetek Waterchill KT15-L20
Minni: 2 x Kingston HyperX PC3500 256Mb
Skjákort: Powercolor ATI Radeon 9800XT
Aflgjafi: Antec Truepower 550W
Kassi Aopen H600B
Ég gerði gat fyrir vatnskassann á þakplötuna á kassanum, festi hann þar og læt viftuna draga loft í gegn, þetta var eina leiðin til að koma þessu fyrir í kassanum.
Ég er að skoða verðið á vinnsluminni en er ekkert að stressa mig á því, þetta kostar svo mikið!
