Sælir, FX5600 kortið mitt er að öllum líkindum bilað svo ég setti í vélina mína ATI Radeon 7200 64mb til að bjarga mér. Ég virðist geta spilað alla leiki fínt nema Grand Theft Auto: Vice City sem er uppáhaldið mitt. Ég kveiki á leiknum og tónlistin byrjar sem fylgir honum en skjárinn slekkur á sér (eins og gerist ef kveikt er á skjánum en ekki tölvunni) og ef ég ýti á Windows takkann á lyklaborðinu tekur skjárinn aftur við sér og ég þarf að slökkva á leiknum með Task Manager.
Kortið virkaði með leiknum í annarri vél svo þetta er eitthvað hjá mér væntanlega.
Er með AMD Duron 1300mH, 256 í minni og er að nota nýjasta Catalyst driverinn fyrir þetta kort. Búin að prófa að setja leikinn inn aftur og það skiptir engu máli.
Rosalega er ég orðin leið á þessum skjákortsvandræðum og rosalega fynndist mér gott ef einhver ætti töfralausn handa mér
Ofurlæðan