Passar allir hlutirnir saman?


Höfundur
Skippó
Nörd
Póstar: 137
Skráði sig: Mið 17. Apr 2013 18:01
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Skippó » Þri 14. Maí 2013 02:52



Intel i7 7700k, Gigabyte G1 Gaming GTX1070, 2x8 gb DDR4, PRIME Z270-K, Thermaltake 730W 80 Plus, Fractal Design Define R5.

Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Þri 14. Maí 2013 03:02

Jú ætti að passa, kælikremið er nú þegar á retail viftunni þannig ég mæli með að þú kaupir þér smá. Passaðu þig bara að setja ekki of mikið. :)




Höfundur
Skippó
Nörd
Póstar: 137
Skráði sig: Mið 17. Apr 2013 18:01
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Skippó » Þri 14. Maí 2013 03:08

Snilld takk fyrir þetta.


Intel i7 7700k, Gigabyte G1 Gaming GTX1070, 2x8 gb DDR4, PRIME Z270-K, Thermaltake 730W 80 Plus, Fractal Design Define R5.

Skjámynd

Guðni Massi
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Sun 01. Jan 2006 02:28
Reputation: 1
Staðsetning: Sauðárkrókur
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Guðni Massi » Þri 14. Maí 2013 03:47

Eitt atriði sem ég tók eftir. Ivy Bridge notar 1.5v vinnsluminni en ekki 1.65v eins og er valið.

Þú þyrftir þá þetta í staðinn:
http://tolvutek.is/vara/mushkin-8gb-ddr ... um-cl9-15v


32GB G.Skill Trident Z RGB — 500 GB Samsung 980 Pro — Gainward RTX 3070 Phoenix GS — Corsair RM850W — Phanteks 500 Air
BenQ BL3200PT — Logitech Z5500 — Ducky Shine 7 — Logitech G502
Google Pixel 4XL — Samsung Galaxy Tab A 10.1

Skjámynd

demaNtur
Kerfisstjóri
Póstar: 1241
Skráði sig: Þri 30. Nóv 2010 17:18
Reputation: 62
Staðsetning: 192.168.1.254
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf demaNtur » Þri 14. Maí 2013 07:15

Guðni Massi skrifaði:Eitt atriði sem ég tók eftir. Ivy Bridge notar 1.5v vinnsluminni en ekki 1.65v eins og er valið.

Þú þyrftir þá þetta í staðinn:
http://tolvutek.is/vara/mushkin-8gb-ddr ... um-cl9-15v


Klukkast það ekki sjálfkrafa niður?



Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Þri 14. Maí 2013 11:40

Hefði haldið að það myndi klukkast sjálfkrafa niður, ég þori þó ekki að lofa því :)




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Klemmi » Þri 14. Maí 2013 11:58

Spennan á minnunum er ekki eitthvað sem maður talar um að klukki sig niður. Verið er að tala um þá spennu sem minnin eiga að þurfa skv. framleiðanda til að geta keyrt á ákveðnum klukkuhraða og latency.

Oft er þessi uppgefna spenna þó ekki heilög, þ.e. mögulega má keyra minnin á lægri spennu, en það skiptir þó litlu máli þar sem flest öll móðurborð styðja alveg að keyra minnin á ágætis spennubili.

Því ætti þetta minni sem þú valdir alveg að ganga með þessum íhlutum.

Persónulega set ég stærsta spurningamerkið við örgjörvakælinguna, geri ráð fyrir að hún geti orðið fjandi hávær.



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Xovius » Þri 14. Maí 2013 13:26

Klemmi skrifaði:Persónulega set ég stærsta spurningamerkið við örgjörvakælinguna, geri ráð fyrir að hún geti orðið fjandi hávær.


33db á 2000rpm stendur þarna. Þá ætti hún nú ekki að vera mjög hávær í venjulegri vinnslu...




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Klemmi » Þri 14. Maí 2013 13:42

Xovius skrifaði:33db á 2000rpm stendur þarna. Þá ætti hún nú ekki að vera mjög hávær í venjulegri vinnslu...


15db á 800rpm sem hún er líklega sjaldan á nema í idle.

Annars þýðir lítið að hlusta á mig þegar kemur að hávaða frá tölvum, ég vil að þær steinþegi, ekki allir jafn viðkvæmir fyrir því.



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Xovius » Þri 14. Maí 2013 13:47

Klemmi skrifaði:
Xovius skrifaði:33db á 2000rpm stendur þarna. Þá ætti hún nú ekki að vera mjög hávær í venjulegri vinnslu...


15db á 800rpm sem hún er líklega sjaldan á nema í idle.

Annars þýðir lítið að hlusta á mig þegar kemur að hávaða frá tölvum, ég vil að þær steinþegi, ekki allir jafn viðkvæmir fyrir því.


Ég stilli örgjörvaviftur hjá mér nú oftast þannig að þær séu bara á um 800rpm. Þessi kæling ætti nú alveg að geta haldið óyfirklukkuðum 3570k í ásættanlegum hita undir þeim kringumstæðum í flestri venjulegri notkun myndi ég halda.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Passar allir hlutirnir saman?

Pósturaf Daz » Þri 14. Maí 2013 15:11

Xovius skrifaði:
Klemmi skrifaði:
Xovius skrifaði:33db á 2000rpm stendur þarna. Þá ætti hún nú ekki að vera mjög hávær í venjulegri vinnslu...


15db á 800rpm sem hún er líklega sjaldan á nema í idle.

Annars þýðir lítið að hlusta á mig þegar kemur að hávaða frá tölvum, ég vil að þær steinþegi, ekki allir jafn viðkvæmir fyrir því.


Ég stilli örgjörvaviftur hjá mér nú oftast þannig að þær séu bara á um 800rpm. Þessi kæling ætti nú alveg að geta haldið óyfirklukkuðum 3570k í ásættanlegum hita undir þeim kringumstæðum í flestri venjulegri notkun myndi ég halda.


Ég myndi ekki treysta á það. Sjáðu hvort þú getir fundið reviews um kælinguna eða notkunardæmi þar sem hægt er að lesa hitatölur við ákveðið álag (miðað við ákveðinn kassahita líka).
Einnig ætti aldrei að treysta dBA tölum frá framleiðanda, þær eru réttar, en aðeins miðað við þær aðstæður sem framleiðandinn ákveður að nýta sér. Oftast ekki samanburðarhæfar við "raunverulegar" mælingar, eða yfirleitt samanburðarhæfar við vörur frá öðrum framleiðendum.