Síða 1 af 1
Hátíðnihljóð frá móðurborði
Sent: Mið 02. Feb 2005 08:25
af W.Dafoe
Ég er að lenda í helvítis böggi með (að ég held) móðurborðið
http://start.is/product_info.php?cPath=80_36_93&products_id=914 ASUS A7V400-MX VIA KT400A.
Þannig er mál með vexti að það er eitthvert hátíðnihljóð í vélinni sem ég er "nánast" búinn að rekja til móðurborðsins.
Hvað er hægt að gera í svona tilfellum?
kv. Ari Björnsson
Sent: Mið 02. Feb 2005 11:38
af CendenZ
vinnsluminni, þéttar sem "tísta" eða mja.. northbridge vifta ?

Sent: Mið 02. Feb 2005 13:29
af CraZy
ég er líka með svona hátíðni hljóð í tölvunni og ég er nokkuð viss um að það sé harðidiskurinn. En aðeins spurning, stundum þegar ég keiri upp td. Sandra þá heirist svona bremsu hljóð í harðadiskunum er það normalt?
Sent: Mið 02. Feb 2005 13:49
af W.Dafoe
CendenZ skrifaði:vinnsluminni, þéttar sem "tísta" eða mja.. northbridge vifta ?

það er ekki vifta á nortbridge, pottþétt ekki harði diskurinn, ætla að ath með vinnsluminnið snöggvast ...
Sent: Mið 02. Feb 2005 17:32
af MezzUp
CraZy skrifaði:En aðeins spurning, stundum þegar ég keiri upp td. Sandra þá heirist svona bremsu hljóð í harðadiskunum er það normalt?
„Bremsu hljóð“? Ef að það koma svona „klikk“ þá fer hann líklega að gefa upp öndina
Sent: Mið 02. Feb 2005 18:00
af skipio
Ég hef líka stundum verið með svona hátíðnihljóð í vélinni minni sem ég hef einnig rakið til móðurborðsins. Það furðulegasta við það var að þegar ég var í Adobe Acrobat og hélt inni músarhnappnum til að scrolla upp/niður að þá hvarf hljóðið alltaf en kom svo aftur þegar ég sleppti takkanum. Verulega skrítið, finnst ykkur ekki?
Þegar ég fer að hugsa um það þá kannast ég ekki við að hafa heyrt það í tölvunni eftir að ég flutti í nýju íbúðina svo kannski var þetta eitthvað rafmagnstengt? (Þetta var ekki aflgjafinn, tékkaði á því.)
Sent: Mið 02. Feb 2005 18:45
af CraZy
neibb ekkert klikk meira svona eins og þegar maður lætur tannhjól spóla

Sent: Mið 02. Feb 2005 19:36
af MezzUp
CraZy skrifaði:neibb ekkert klikk meira svona eins og þegar maður lætur tannhjól spóla

Hmm, hljómar ekki traustvekjandi. Ég myndi allavega bakka upp mikilvægustu gögnin þín á geisladiska.
Sent: Mið 02. Feb 2005 19:45
af CraZy
hehe já ég er byrjaður að setja alla leikina og bíómyndirnar á diska

Sent: Mið 02. Feb 2005 21:48
af W.Dafoe
já þú ættir heldur betur að taka öryggisafrit sem fyrst. Ég hef átt þá nokkra sem enda svona eins og reka bíl í gír án þess að kúpla, þeir gáfust upp mjög stuttu síðar ...
Sent: Mið 02. Feb 2005 23:36
af Snorrmund
Uss.. ættuð að heyra í gamla 15gb disknum okkar..! það heyrist sko tikk í honum, gíringarhljóð þegar hann hægir á sér og bara almenn læti þetta er IBM Deskstar(Deathstar:)) reyndar alveg hætt ða nota hann.. planið er að setja glugga á hann

Sent: Fim 03. Feb 2005 16:12
af Hörde
Ef þú heyrir breytingu á hljóðinu eftir því hvort örrinn sé idle eða að vinna, þá er það sama í gangi hjá mér, og búið að vera í meira en ár eða frá því ég uppfærði örgjörvann. Ég hafði alla vega ekki tekið eftir því áður.
Það hefur alla vega ekkert issjú verið yfir þessu.