Síða 1 af 1
					
				Northbridge heatsink
				Sent: Fim 24. Mar 2005 02:57
				af zaiLex
				Þar sem viftan á móðurborðinu er að gefa soldið leiðinlegt hljóð frá sér þá ætla ég að fá mér 
svona
northbridge kælingu frá zalman. Ég var bara að pæla hvort þetta myndi passa
hérna er mynd af móbóinu mínu, viftan er hjá skjákortsraufinni þannig að skjákortið sjálft er svolítið yfir viftunni, og þessi zalman kæling er svona turn þannig að mér lýst ekkert á blikuna 

, er þetta algengur staður fyrir chipset viftu?
edit: linkur lagaður 

 
			
					
				
				Sent: Fim 24. Mar 2005 03:01
				af Dust
				Þetta er reyndar bæði linkar á móðurborðið  

 
			
					
				
				Sent: Fim 24. Mar 2005 03:22
				af corflame
				Nú þekki ég ekki til AMD64 móðurborðana, en a.m.k. á þessu MSI borði sem
ég er með, þá passar þetta fínt.
Aftur á móti þá er þetta verulega villandi auglýsing að mínu mati, þ.e.a.s.
hlutinn sem segir "Mjög auðvelt að festa á borðið." Ég var heillengi að föndra
þessu á, hefði sennilega gengið betur ef ég hefði ekki verið með móbóið í 
kassanum.
			 
			
					
				
				Sent: Fim 24. Mar 2005 17:01
				af Stutturdreki
				Svo framarlega sem skjákortið þitt nær ekki yfir northbridge ætti þetta að komast fyrir.
Tek undir að þetta er ekki alveg eins einfallt og það á að vera, þurfti að taka móðurborðið úr kassanum til að komast almennilega að þessu hjá mér.  Gigabyte móðurborð og northbridge er á milli AGP raufarinnar og CPU.
			 
			
					
				
				Sent: Fim 24. Mar 2005 17:07
				af emmi
				Þetta passar alveg svo framarlega að það séu 2 göt í móðurborðinu til að festa þetta niður. Smá föndur að setja þetta á, gefðu þér nægan tíma í það. 

 
			
					
				
				Sent: Fim 24. Mar 2005 20:07
				af urban
				er ég einn um það að finnast alveg svakalega stutt á milli minnisraufana á þessu móbói ??
			 
			
					
				
				Sent: Fös 25. Mar 2005 15:58
				af gnarr
				sammála.. það gæti eiginlega ekki verið minna bil á milli þeirra.
			 
			
					
				
				Sent: Mið 13. Apr 2005 23:01
				af zaiLex
				Haldiði að þetta sleppi?
			 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 08:00
				af gnarr
				mér sýnist það ekki vera séns nema að þú myndir breyta heatsinkinu eitthvað.
			 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 08:52
				af ponzer
				Ég held að þetta passi ekki, en ég var að setja svona í hjá félaga mínum fyrir nokkrum dögum og það er feitt vesen að setja þetta í   

  og þarft að taka móbóið úr og allt  

 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 09:03
				af CraZy
				afhverju ertu ekki með minnin í dualchannel  

  ?
 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 09:30
				af gnarr
				ég var einmit að fara að spurja að þessu 

 svo mundi ég eftir að MSI borðin eru með dual cannel þegar maður er með í fyrstu 2 slottum.
 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 09:42
				af ponzer
				Hvað í and****um er þetta ???
			 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 10:22
				af Zkari
				HDD festur uppi með kennaratyggjói?
			 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 11:50
				af zaiLex
				Hahhahaha, ég var að reynað að dempa harðadiskinn 

 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 12:45
				af Snorrmund
				Gekk það?
			 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 12:52
				af CraZy
				gnarr skrifaði:ég var einmit að fara að spurja að þessu 

 svo mundi ég eftir að MSI borðin eru með dual cannel þegar maður er með í fyrstu 2 slottum.
 
ok gott að vita 

 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 12:54
				af ponzer
				
			 
			
					
				
				Sent: Fim 14. Apr 2005 14:56
				af zaiLex
				Þar sem mestur hávaðinn kom var frá harðadiska bracketinu, þegar diskurinn hristi þá hristist bracketið, og já þetta virkaði, er líka með kennaratyggjó neðst til að festa bracketið betur við kassann.
og þetta er KENNARAtyggjó 
