Síða 1 af 1

Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 10:44
af Templar
Sælir

Vantar skrúfur í tölvuna á vatns kælinn, sjá mynd.
Hvar er möguleiki að nálgast svona skrúfu í rvk?

Takk..

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 11:14
af Bassi6
Fossberg.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 11:24
af Tbot
Spurning hvort einhver ætti varaskrúfu úr sínu "riggi"

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 11:39
af Hausinn
Er þetta ekki bara venjulegur 3mm skrúfgangur? Gætir mögulega keypt venjulega 3mm skrúfu í sömu lengd í Byko eða annars.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 12:10
af johnnyblaze
Hvað er hún löng og hvað vantar margar? Ég á þetta mögulega til.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 12:20
af Hlynzi
Fossberg á allskonar skrúfur (sérstaklega littlar) en í þessu tilfelli eins og Hausinn nefnir keyptu bara skrúfu í sömu stærð (M3 ?) og finnur svo sömu lengd, oftast eru þær staðlaðar. Ég á meira að segja töng til að klippa skrúfur í lengd.
Bauhaus er líka með hörkuúrval síðan Byko og Húsasmiðjan.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 20:25
af Templar
Þetta er M3 30mm á lengd án þess að telja höfuðið á henni. Yrði fúlt að þurfa að panta þetta að utan. Er á Alphacool 30x360mm vatnskæli.
Ef einhver á þetta til væri það geggjað, mig vantar 4 stk. mun annars prófa Fossberg og einn í viðbót í næstu viku áður en ég panta.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 20:49
af Viktor
Er ekki með skífumál en á fjórar svona úr einhverju

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 22:55
af RassiPrump
Fossberg, Würth, Ísól, Íhlutir mögulega, finnst það hæpið en húsasmiðjan, byko eða bauhaus gætu átt eitthvað. Ferrozink einnig gæti komið til greina.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Lau 12. Nóv 2022 22:58
af johnnyblaze
Til á þessum bæ.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 08:37
af Templar
Vuktor, Johnny eru þessar m3 eða með fínni gerð skrúfgangs? Ef svo og þið megið missa þær vil ég semja við ykkur.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 08:55
af johnnyblaze
Ég fann allavega nokkrar gerðir, svo eitthvað hlýtur að passa.

Re: Besti skrúfu lager í Borg óttans?

Sent: Sun 13. Nóv 2022 10:34
af Templar
Já þessar fjórar til hægri á myndinni eru M3 skrúfgangur.