Síða 1 af 1

Coolshop - T1A Refurbished fartölvur

Sent: Fim 20. Apr 2023 08:12
af Hjaltiatla
Var að spotta þetta hjá Coolshop, T1A Refurbished fartölvur.
https://www.coolshop.is/toelvur/fartoelvur/merki=t1a/

Örugglega ágætis kaup fyrir fátæka námsmenn og fleiri sem vilja versla fartölvur á góðu verði.

Re: Coolshop - T1A Refurbished fartölvur

Sent: Fim 20. Apr 2023 09:14
af CendenZ
:o þetta er eiginlega ódýrara en að kaupa nýja rafhlöðu í gamlan thinkpad :o

Re: Coolshop - T1A Refurbished fartölvur

Sent: Fim 20. Apr 2023 09:26
af GuðjónR
Vissi ekki að þeir væru með notaðar vörur :shock:

Re: Coolshop - T1A Refurbished fartölvur

Sent: Fim 20. Apr 2023 09:45
af Hjaltiatla
CendenZ skrifaði::o þetta er eiginlega ódýrara en að kaupa nýja rafhlöðu í gamlan thinkpad :o


Segðu :lol: maður hefur einhvern tímann þurft að kaupa third party batterý í gamlan Thinkpad af Ebay sem var ekki uppá marga fiska því batterý beint frá býli var aðeins of dýrt.

Re: Coolshop - T1A Refurbished fartölvur

Sent: Fim 20. Apr 2023 09:50
af Hjaltiatla
GuðjónR skrifaði:Vissi ekki að þeir væru með notaðar vörur :shock:

Já kom mér líka á óvart :) þau eru með Fartölvur,spjaldtölvur, snjallsíma og mini-pc þessa stundina undir einhvers konar "refurbished" herðferð.

https://www.coolshop.is/s/herferdin=refurbished/

Re: Coolshop - T1A Refurbished fartölvur

Sent: Fim 20. Apr 2023 13:44
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Vissi ekki að þeir væru með notaðar vörur :shock:

Já kom mér líka á óvart :) þau eru með Fartölvur,spjaldtölvur, snjallsíma og mini-pc þessa stundina undir einhvers konar "refurbished" herðferð.

https://www.coolshop.is/s/herferdin=refurbished/

Umhverfisvænt og gefur fólki færi á að eignast góðar vörur á viðráðanlegu verði. Eitthvað sem fleiri söluaðilar ættu kannski að skoða?