Síða 1 af 1
Vandamál með minni - Restart
Sent: Lau 31. Des 2005 02:34
af Viktor
Er búinn að eiga í þvílíkum vandamálum með tölvuna mína síðustu 3-4 mánuðina. Tölvan mín byrjaði að re'starta sér í tíma og ótíma svo ég formataði harðadiskinn. Það virkaði ekki svo ég fékk mér nýjan 250GB disk á 10þús. Það virkaði ekki svo ég fór að skoða þetta betur og fattaði að skjákortið þurfti 350W en ég var með 300W aflgjafa. Fékk mér 420W aflgjafa á 10þús. Ekkert virkaði. Svo fékk ég mér nýtt "Super Talelt" minni í Task og tölvan hélt áfram að re'starta sér eftir 10mín - hálftíma. Lét tölvuna í viðgerð hjá tölvulistanum með nýja "SuperTalent" minninu í og þeir sögðu að það benti allt til þess að minnið væri bilað, ég sagði þeim að þetta væri glænýtt minni og þeir sögðu að minnið virkaði kanski ekki með móðurborðinu. Sótti tölvuna og lét Task prufa nýja SuperTalent minnið og þeir sögðu að það væri allt í lagi með það. Núna sit ég uppi með tölvu sem re'startar sér við minnstu áreinslu og veit ekkert hvað ég á að gera...! Hvurdjö!
Sent: Lau 31. Des 2005 07:25
af urban
bilað móðurborð !!!!
(ef það er ekki það þá er það skjákoritið) (það kemur ekkert annað til greina)
Sent: Lau 31. Des 2005 14:07
af Viktor
Ok ætla að nota allt gamla draslið og fá mér nýtt sambærilegt móðurborð undir 10þúsund...
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... BIT_IS7_E2
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 3cdc3ed464
Þetta er held ég það eina sem kemur til greina, lýst ekkert á þetta 478 móðurborð hjá Task.
Er þetta móðurborð ekki eins og fyrir minn örgjörva?
Sent: Lau 31. Des 2005 14:26
af BrynjarDreaMeR
ég mundi taka Abit því abit og asus eru að gera bestur móbóinn svo ef þú ert að spá í að yfir klukka fá þér þá epox
Sent: Lau 31. Des 2005 18:28
af Viktor
En eru engin IDE tengi? Er með IDE 250GB
Sent: Lau 31. Des 2005 18:31
af Viktor
Kaupi bara Abit m móbóið og diskastýringu, þá ætti þetta að vera komið

Sent: Lau 31. Des 2005 18:49
af Birkir
Það eru tvö IDE tengi á báðum borðunum. Ég er líka nokkuð viss um að það fáist ekki s478 borð sem er ekki með IDE tengjum.
Sent: Lau 31. Des 2005 21:38
af kristjanm
BrynjarDreaMeR skrifaði:ég mundi taka Abit því abit og asus eru að gera bestur móðurborðinn svo ef þú ert að spá í að yfir klukka fá þér þá epox
Abit og Asus eru ekkert frekar en aðrir að gera bestu móðurborðin.
Edit: svo myndi ég mun frekar taka Abit IS7 móðurborðið, það er með nýrra kubbasetti.
Sent: Sun 01. Jan 2006 20:23
af Viktor
Prufaði þetta MS Memory test og það komu nokkrir failure, en forritið gerir ekkert í því að laga failurin
http://oca.microsoft.com/en/response.as ... 65&SID=603
-
En þegar ég er búinn að kaupa nýja móbóið er ég búinn að kaupa:
Nýtt skjákort - 18k
Nýjan aflgjafa - 10k
Nýt minni - 10k
Nýtt móðurborð - 8k
Samtals 45þúsund krónur
-
En ekki búinn að kaupa nýtt:
-
örgjörva
Netkort
CD/Floppy drif
Kassa
USB hub
-
Ef nýtt móðurborð lagar ekki dæmið, er þetta þá þess virði?
Sent: Mán 02. Jan 2006 02:06
af Rusty
Er ekki bara kannski örrinn? Heitur örri hefur gaman að því að restarta.

Sent: Mán 02. Jan 2006 15:44
af Viktor
En móbóið tekur ekki við SuperTalent minninu, og það kemur alltaf bluescreen áður en hún re'startast!