Hentugur Intel örgjörvi fyrir litla borðtölvu


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2414
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 282
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Hentugur Intel örgjörvi fyrir litla borðtölvu

Pósturaf jonfr1900 » Mið 06. Mar 2024 00:00

Ég er að spá í að setja saman litla borðtölvu, þá með því að kaupa nýtt móðurborð í borðtölvuna (ATX stærð) mína og færa það móðurborð (mini-ATX) yfir í annan tölvukassa sem ég á (sem er mini-ATX). Færa örgjörvann milli móðurborða. Það eina sem mig vantar þá er hentugan örgjörva sem getur verið í litlum kassa með litla kæliviftu. Þetta þarf ekki að keyra hratt, enda á þetta að keyra á litlu afli og helst vera notað fyrir gesti og annað tilfallandi.

Ég hef verið að skoða Intel i3 örgjörva en ég veit ekki alveg hvort að ég ætti að fara í svo gamalt. Það yrði þá helst Intel i5 örgjörvar sem henta í þetta en ég er ekki alveg viss hversu lágt ég get farið.

Takk fyrir aðstoðina.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6302
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Hentugur Intel örgjörvi fyrir litla borðtölvu

Pósturaf worghal » Mið 06. Mar 2024 00:33

https://computer.is/is/product/orgjorvi ... -8t-uhd730
þessi er ágætur þrátt fyrir að vera i3.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7076
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Tengdur

Re: Hentugur Intel örgjörvi fyrir litla borðtölvu

Pósturaf rapport » Mið 06. Mar 2024 09:01

Hvaða socket er á gamla móðurborðinu?

Það hefur áhrif á hvaða CPUz koma til greina.




TheAdder
Tölvutryllir
Póstar: 679
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 11:22
Reputation: 191
Staða: Ótengdur

Re: Hentugur Intel örgjörvi fyrir litla borðtölvu

Pósturaf TheAdder » Mið 06. Mar 2024 09:56

Hvaða chipset er á móðurborðinu hjá þér, eða hvaða örgjörva ertu með? Það eru minnir mig almennt bara 2 kynslóðir af örgjörvum sem virka með hverju chipset hjá Intel.


NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo


pathfinder
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Þri 24. Jún 2003 01:00
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Hentugur Intel örgjörvi fyrir litla borðtölvu

Pósturaf pathfinder » Mið 06. Mar 2024 11:50

Ekki spá í hvort örgjörvi sé i3 eða i5. Best að skoða benchmark á þeim örgjörvum sem þú ert að spá í. Nýr i3 er hraðari en 4 ára gamall i5. https://www.cpu-monkey.com/en/compare_c ... e_i3_14100




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2414
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 282
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hentugur Intel örgjörvi fyrir litla borðtölvu

Pósturaf jonfr1900 » Mið 06. Mar 2024 13:53

rapport skrifaði:Hvaða socket er á gamla móðurborðinu?

Það hefur áhrif á hvaða CPUz koma til greina.


Ég er með 1700 socket, enda er ég að nota Intel(R) Core(TM) i5-14600K örgjörva núna. Þetta er bara færsla á móðurborðum og örgjörvum, ekkert stórkostlega flókið.
Síðast breytt af jonfr1900 á Mið 06. Mar 2024 14:01, breytt samtals 1 sinni.